Ársrit Torfhildar - 01.04.1991, Blaðsíða 7
Ársrit Torfhildar
svo eitthvað sé nefnt.
Þó segja megi að listaskáldin vondu hafi endurvakið
ljóðaupplestur má svo sannarlega segja að Medúsa hafi endurskoðað
fyrirbærið og hleypt í það nýju lífi. Lestrarnir líktust ljóðaorgíum og
voru oft skyldir leikhúsi, eins og Ijóst má vera af þessari upptalningu.
Upp úr þessum orgíu-vetri fór aðeins að hægjast um, 1981-2 var
stofnuð hljómsveitin Fan Houtens Kókó (Ólafur, Þór, Matthías og
Einar) og voru textar þeirra hábókmenntaleg verk í anda Dada. 1982
var opnað galleríið Skruggubúð, sem stóð fyrir fjölmörgum
sýningum bæði erlendum og innlendum, og það ár var mikil
útgáfustarfsemi á vegum Medúsu (eins og reyndar alltaf, Medúsa var
blómleg býfluga og dugleg við útunganir). 1983 var haldin sýning í
JL-húsinu, sem hlaut nafnið Gullströndin andar og var henni stefnt
gegn sýningu ungra listamanna á Kjarvalsstöðum á sama tíma,
sýningin var ekki beinlínis Medúsu-fyrirbæri, en þar komu þeir
félagar fram í glæsilegum grímubúningum og stóðu fyrir upplestri,
harmoníkuspili og sælgætisáti. 1984 var hljómsveitin Kukl stofnuð,
sem innihélt meðlimi utan og innan við Medúsu. Sama ár var stærsta
verkefni Skruggu-búðar, sýningin Við étum ekki þetta brauð, og var
henni stefnt gegn trúarlegri sýningu á Kjarvalsstöðum. Þar komu
fram listamenn frá öllum heimshornum, og haldnir voru upplestrar,
kvikmyndasýningar og tónleikar. Það ár, 1984, kom víst lægð í
hópinn.
FRÁFALL
1985 var síðasta Medúsuárið þó hópurinn hafi aldrei hætt
opinberlega, meðlimir voru einfaldlega búnir að gera allt sem hægt
var að gera saman. Það ár var dagur ljóðsins og stóðu Medúsulimir
fyrir ljóðasprengju og síðasta verkefni hópsins var síðan með
Kuklinu og hét Sirkusdútl. Hópurinn rann saman við aðra svipaða
og áberandi hópa sem þá störfuðu, það er "fyrirtækið" Oxsmá og
leikhópinn Svart og sykurlaust. Sigurjón var fjölmiðlafulltrúi Oxsmá
um tíma, sumarið 1985, en sá hópur gerði meðal annars kvikmyndina
Sjúgðu mig Nína.
TENGINGAR
Frá 1981 höfðu Medúsulimir skriflegt samband við ýmsa
súrrealistahópa um víðan heim, og reyndar líkamlegt líka, því
5