Ársrit Torfhildar - 01.04.1991, Blaðsíða 23
Ársrit Torfhildar
þrjár mjólkurfemur í grænu innkaupaneti og hugsaði eflaust um
hvað vísitölufjölskyldan skilur mikið rusl eftir sig á hverju ári og
reyndi að finna róttæk ráð gegn því." (12). Herinn er einnig til
umfjöllunar í Þarna flýgur hún Ella, þar sem hann verður með
óbeinum hætti til að drepa Ellu og gera Aron sturlaðan. Hin
bandarísku áhrif em líka á ferðinni í Mannsmynd úr biblíunni, þar í
formi Marshallaðstoðarinnar, og í Bréfasambandinu, þar sem stúlka
vill standa amerískum konum jafnfætis með því að leigja í sér legið.
Viðfangsefnin eru þannig vissulega margvísleg og má að auki
benda á ævintýraleit, minningabrot frá Portúgal, kynlega sjómenn
(eða seli) o.s.frv. En það sem miklu máli skiptir varðandi tengsl milli
sagnanna er einhvers konar fáránleiki, sem þó er ekki fjarri
veruleikanum. Sögumar em blanda af absúrdisma og naívisma;
ævintýri og raunveruleika. Og persónumar eru kynlegar, en þó
einhvern veginn í næsta húsi.
IV
Maður má aldrei dæma fólk eftir því hvernig það er á
yfirborðinu, hélt hún áfram. Maður fær bara biblíumynd af því.
(19)
Litríkt persónugallerí er án efa einn helsti styrkur bókarinnar.
Persónumar em bæði furðulegar og skemmtilegar en fyrst og fremst
er eitthvað fyndið við þær allar. Og þess vegna eru þær
eftirminnilegar. Flestar eiga persónurnar sameiginlegt að þær
bregðast á undarlegan hátt við aðstæðum sínum; hoppa inn í skáp,
taka fimmuna til að drekka kvöldkaffið, vaða út í sjó í því skyni að
flýja sorgina og þar fram eftir götunum. Ósjálfrátt verður þriðju-
persónu nafnleysið (í níu sögum af þrettán) til þess að maður tengir
persónurnar meira saman en ella. Jafnvel tengir þær við persónur
annarra bóka, svo sem eins og Hjartað. Klausa sem þessi úr sögunni
Mannsmynd úr biblíunni gæti allt eins verið úr þeirri bók:
Og það er sagt, og það er rétt, að mannsins mesta böl sé það að
hann fæddist. Maður þvælist um, einhvem veginn gegnum lífið,
eftir vegleysum hinnar troðnu og margtroðnu tilvem. [...] og
maður grísar á að segja annað hvort já eða nei á nokkum veginn
réttum stöðum, við vissar og óvissar aðstæður. (7)
Þetta er ein af þeim mannsmyndum sem Guðbergur fæst við, og það
21