Ársrit Torfhildar - 01.04.1991, Side 23

Ársrit Torfhildar - 01.04.1991, Side 23
Ársrit Torfhildar þrjár mjólkurfemur í grænu innkaupaneti og hugsaði eflaust um hvað vísitölufjölskyldan skilur mikið rusl eftir sig á hverju ári og reyndi að finna róttæk ráð gegn því." (12). Herinn er einnig til umfjöllunar í Þarna flýgur hún Ella, þar sem hann verður með óbeinum hætti til að drepa Ellu og gera Aron sturlaðan. Hin bandarísku áhrif em líka á ferðinni í Mannsmynd úr biblíunni, þar í formi Marshallaðstoðarinnar, og í Bréfasambandinu, þar sem stúlka vill standa amerískum konum jafnfætis með því að leigja í sér legið. Viðfangsefnin eru þannig vissulega margvísleg og má að auki benda á ævintýraleit, minningabrot frá Portúgal, kynlega sjómenn (eða seli) o.s.frv. En það sem miklu máli skiptir varðandi tengsl milli sagnanna er einhvers konar fáránleiki, sem þó er ekki fjarri veruleikanum. Sögumar em blanda af absúrdisma og naívisma; ævintýri og raunveruleika. Og persónumar eru kynlegar, en þó einhvern veginn í næsta húsi. IV Maður má aldrei dæma fólk eftir því hvernig það er á yfirborðinu, hélt hún áfram. Maður fær bara biblíumynd af því. (19) Litríkt persónugallerí er án efa einn helsti styrkur bókarinnar. Persónumar em bæði furðulegar og skemmtilegar en fyrst og fremst er eitthvað fyndið við þær allar. Og þess vegna eru þær eftirminnilegar. Flestar eiga persónurnar sameiginlegt að þær bregðast á undarlegan hátt við aðstæðum sínum; hoppa inn í skáp, taka fimmuna til að drekka kvöldkaffið, vaða út í sjó í því skyni að flýja sorgina og þar fram eftir götunum. Ósjálfrátt verður þriðju- persónu nafnleysið (í níu sögum af þrettán) til þess að maður tengir persónurnar meira saman en ella. Jafnvel tengir þær við persónur annarra bóka, svo sem eins og Hjartað. Klausa sem þessi úr sögunni Mannsmynd úr biblíunni gæti allt eins verið úr þeirri bók: Og það er sagt, og það er rétt, að mannsins mesta böl sé það að hann fæddist. Maður þvælist um, einhvem veginn gegnum lífið, eftir vegleysum hinnar troðnu og margtroðnu tilvem. [...] og maður grísar á að segja annað hvort já eða nei á nokkum veginn réttum stöðum, við vissar og óvissar aðstæður. (7) Þetta er ein af þeim mannsmyndum sem Guðbergur fæst við, og það 21

x

Ársrit Torfhildar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Torfhildar
https://timarit.is/publication/1918

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.