Ársrit Torfhildar - 01.04.1991, Side 15

Ársrit Torfhildar - 01.04.1991, Side 15
Ársrit Torfhildar nálgaðist hægt og rólega. Ótti læddist að huga hans, en forvitnin náði yfirhöndinni og bægði óttanum burt. Svartur blettur firtnur hugsandi veru. Hnöttótti skugginn nam staðar og drunurnar léttust og hurfu. Hann gat hugsað skýrt og greinilega á ný. Honum til undrunar heyrði hann ókunnuga djúpa rödd segja í huga sínum: "Hvað ert þú?" Það fyrsta sem honum datt í hug var: "Ég er maður". í huga sínum heyrði hann þessa djúpu rödd spyrja: "Hvað er það?”. Hann vissi svarið við því: "Vera sem getur skilið sjálfa sig, þráð aðra veru af sama tagi, og gefið þeirri veru það dýrmætasta sem til er: sjálfa sig." Hnöttótti skugginn hvarf en röddin í huganum hélt áfram: "Þú þekkir mig greinilega þó þú vitir kannski ekki hver ég er. Þú mátt eiga mig og halda mér þar til þú deyrð, þú ert síðasti maðurinn á þessari öld sem nýtur mín, síðasti maðurinn á þessari öld sem nýtur mín, síðasti maðurinn á þessari öld...síðasti maðurinn". Hugur hans svaraði: "Ég veit hver þú ert, ég þekki þig". Svarti bletturinn hefur eignast nýtt heimili. Hún hrökk við þegar hann leit hana skærum blágráum augum á ný. Klökk af gráti, andlitið þrútið eftir klukkustundar hryggð og óvissu. Gleðin tók sér bólstað í hjarta hennar á ný og undrunin í huga hennar. "Hvað gerðist?" spurði hún stamandi, en vænti ekki svars. Regnið féll þungt á andlit peirra, dökkt hár hennar festist við kinnar hans. Lækjarsprænan óx ört og varð að þungu fljóti. Svarti bletturinn hafði skotið rótum. Þau lögðu af stað til byggða, leiddust hönd í hönd. Eftir langa göngu fundu pau helli sem pau þekktu afspumar. Saman skriðu pau inn um þröngt hellisopið. Inni var þurrt, jafnvel hlýtt. Þar sneri hann sér að henni, hann hafði ekki sagt neitt síðan...það gerðist. Hann andaði einu sinni djúpt, leitaði eftir vömm hennar og kyssti þær létt en innilega og hugsaði: "Hin eina sanna ást". Þau fundu hvort annað. Hellirinn var dimmur, jafnvel svartur. 13

x

Ársrit Torfhildar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Torfhildar
https://timarit.is/publication/1918

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.