Ársrit Torfhildar - 01.04.1991, Page 21

Ársrit Torfhildar - 01.04.1991, Page 21
Ársrit Torfhildar samskipti af einhverju tagi í flestum sögunum. Þau eru oftar en ekki kynleg og fyndin, hvort sem um er að ræða hjónaband Arons og Ellu, þar sem eiginmaðurinn þarf að þola stanslaust rifrildi eiginkonunnar; kærustupar sem slítur samvistum þegar konan missir ís ofan í hálsmálið á manninum í faðmlögum, eða ungling sem skrifast á við stúlku, en bréfin hans falla ekki í betri jarðveg en svo að stúlkan heimsækir hann í lok sögunnar og húðskammar hann. Aron og Ella eru reyndar nokkurs konar Hamm og Clov (aðalpersónurnar í Endgame eftir Samuel Beckett); andstæður sökum líkamlegs ástands. Þannig var Aron "kyrrlátur í sæti" en "þegar hann reis á fætur greip hann kynlegt eirðarleysi, sem ekki var óáþekkt niðurbældu æði og friðleysið jókst með aldrinum og eftir því sem Ella fitnaði og varð meira ósjálfbjarga" (29). Og síðar: "Ella var líka smávaxin, en hún var eirðarlaus í sæti og orðin fótalaus fyrir löngu" (29). Og eins og Hamm og Clov, þurfa þau hvort á öðru að halda, þrátt fyrir ófriðinn, sem sést meðal annars á því að Aron verður algjörlega eirðarlaus eftir dauða Ellu (að sjálfsögðu skiptir hér einnig máli hvernig dauðann ber að). í sögunni Maður sem varð fyrir óláni segir frá manni sem bítur það í sig að konan hans sé honum ótrú (ekkert kemur reyndar fram í sögunni sem bendir til að þessi grunur hans sé á rökum reistur); hann lemur systur sína og lendir á bak við lás og slá, þaðan sem hann vill mjög ógjarnan komast. Engu líkara er en hann sé að reyna að flýja hjónabandið, en hjónabandið sem slíkt fær reyndar ekki mjög blíðlega umfjöllun hjá Guðbergi. Persónurnar virðast ekki finna hamingjuna til lengdar í þeirri stofnun; skemmst er að minnast Hjartans, en jafnframt má benda á smásöguna Nöldur sem birtist í Leikföngum leiðans (1963) og hefur að geyma eitt langt rifrildi hjóna, um hund og vírnet fyrir hænsnakofa: "stagl hversdagslífsins" í hnotskum. Systir mannsins sem varð fyrir óláni segir á einum stað við bónda sinn: Suðið í honum [bróðurnum, innsk. EG] vekur upp í mér andrúmsloftið heima, en eilíft þjark í þér minnir mig á þreytu hjónabandsins, og það fer með mig. (44) Hjónabandið myndar því gjarnan ramma utan um hverskyns stagl og nöldur. En þrátt fyrir hremmingar hjónabandsins, þá er einlífið sennilega verra, ef marka má konuna í sögunni Karl Jón og konan sem tekur upp á því í einsemd sinni að búa til ímyndaðan 19

x

Ársrit Torfhildar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Torfhildar
https://timarit.is/publication/1918

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.