Ársrit Torfhildar - 01.04.1991, Síða 25

Ársrit Torfhildar - 01.04.1991, Síða 25
Ársrit Torfhildar líkara en að heilu sögurnar séu sprottnar upp úr algengum orðatiltækjum, sem mynda þá grunnhugmynd í hverri sögu fyrir sig og gengið er út frá. Einkum er þetta áberandi í þremur sögum: Ævintýrinu, Dæmisögu um hanska og Maðurinn er myndavél. I Ævintýrinu gengur Guðbergur út frá klisjunni um að ungmenni, þá sérstaklega þau sem lengi hafi stundað skóla, séu reynslulaus. Þessi imgmenni þurfi að öðlast reynslu; lenda í ævintýri. Þannig er ungmennið í sögunni látið hitta persónugerving ævintýrisins og lenda þannig svo að um munar í ævintýri. Dæmisaga um hanska fjallar meðal annars um það viðkvæma mál að ’taka upp hanskann' fyrir varnarliðið á íslandi. Krakkar finna bandarískan hanska og 'taka hann upp' en verða að lokum að losa sig við hann í sjóinn. Maðurinn er myndavél fjallar um konu sem 'drekkir sorgum sínum' í bókstaflegum skilningi með því að ganga reglulega í sjóinn. Þannig beinir Guðbergur athyglinni frá táknmyndinni að táknmiðinu í þessum algengu orðatiltækjum. Fleiri dæmi má nefna úr öðrum sögum bókarinnar, til að mynda 'háttalykilinn', að hitta naglann á höfuðið, að brjóta heilann, að verða fyrir óláni, og á einum stað segir Aron: "Ég sé helst allt eins og í anda" (24). Slíkir orðaleikir eru alls ekki nýir af nálinni í verkum Guðbergs, en engu að síður er athyglisvert hvernig hann vinnur markvisst á þennan hátt með tungumálið, og gefur því bókstaflegri merkingu. Þetta er einnig hluti af þeirri viðleitni höfundar að "rugla lesendur í ríminu", en á því hefur hann nokkurn áhuga, samanber þegar nafni einnar persónunnar í sögunni Mannsmynd úr biblíunni er breytt í miðri frásögn "í þeim eina tilgangi að rugla ykkur [lesendur, innsk. EG] í ríminu að ástæðulausu" (16). VI Skyndilega var eins og hann hefði fengið hnefahögg, sama höggið og systir hans fékk forðum. Hann tók ósjálfrátt fyrir munninn og kúgaðist. Hvað er þetta? spurði konan. Ertu að verða veikur? Nei, svaraði hann aumlega. Hvað þá? spurði hún undrandi. Bara raunveruleikinn, svaraði hann og stóð upp. Ég hef orðið fyrir raunveruleikanum eins og hræðilegu óláni. (49) Sú sýn sem birtist á veruleikann í smásögunum er fyrst og fremst 23

x

Ársrit Torfhildar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Torfhildar
https://timarit.is/publication/1918

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.