Ársrit Torfhildar - 01.04.1991, Side 29

Ársrit Torfhildar - 01.04.1991, Side 29
Ársrit Torfhildar Þess vegna brotakenndur stíll, ímyndir frekar en atburðir í réttri tímaröð. Þess vegna minnir bókin á ljósmynd frekar en kvikmynd, þó lifna Ijósmyndimar stundum við og fá málið, en frjósa jafnan aftur. SJÓNARHORN Það að skipta oft um sjónarhorn gefur sögunni sérstakan blæ; ýmist mjög persónulegan eða fjarlægan og það er ýmist sagt frá í þátíð eða nútíð. Sögumaður, sem ég hef áður minnst á, er ráðandi rödd sögunnar, stjórnar henni og ýtir hinum röddunum fram á sjónarsviðið. Það er fyrstu persónu frásögn, höfundur sögunnar sem situr við skriftir og segir frá ýmsu sem á daga hans hefur drifið. Til þess að nálgast þá atburði frekar beitir hún einnig fyrir sig öðrum frásagnarmanni, sem er einnig hún sjálf (það er Duras) í fyrstu persónu en þá aðeins fimmtán ára og notar þá beina frásögn. Höfundi tekst að nota þessar raddir sitt á hvað, oft með örum skiptingum án þess að það trufli flæði textans. Stundum eru skiptingar það örar a ð erfitt er að átta sig á hver talar: Þennan umrædda dag hlýt ég að vera í margfrægum hælaháum skóm úr gull-lamé. Eg sé ekkert annað sem ég gæti verið í þennan dag, svo ég er í þeim. Móðir mín keypti þá handa mér, á margniðursettu verði. Ég fer á þessum gullofnu skóm í skólann. Ég fer í skólann á kvöldskóm skreyttum smágerðum similíusteinamynstrum. Þetta er vilja mínum samkvæmt. (16) Þriðja frásagnaraðferðin sem er notuð er þriðju persónu frásögn alviturs sögumanns sem stendur utan við atburðarásina. Þessi aðferð er mest notuð þegar fjallað er um elskhugann. Torfi H. Tulinius segir í grein sinni: "[...] en þegar við lítum nánar á frásögnina af Kínverjanum kemur í ljós að það er annar blær yfir henni en öðrum í bókinni. Það er eins og allt sem tengist honum sé í einhvers konar móðu. Auk þess er sagan sjálf meira í ætt við það sem á sér stað í skáldsögum en raunveruleikanum: ríkur maður er heltekinn af ást til fátækrar stúlku en ytri aðstæður banna þeim að eigast."5 Þetta er ævintýrasaga um prins og fátæka stelpu sem myndar mótvægi við líf hennar með fjölskyldunni sem einkennist af hnignun, eyðingu, ofbeldi og fátækt meðan ástarævintýrið er fullt af erótík og ríkidæmi en þó einnig sársauka. Hún flýr fjölskyldu sína þegar hún eldist og þroskast og tekur til við að gera það sem hún hefur alltaf ætlað sér, en var í óþökk fjölskyldunnar; að skrifa: 27

x

Ársrit Torfhildar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Torfhildar
https://timarit.is/publication/1918

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.