Ársrit Torfhildar - 01.04.1991, Side 31

Ársrit Torfhildar - 01.04.1991, Side 31
Ársrit Torfhildar inntaki, að vera sjálf uppspretta hans. (14) Myndin af því þegar hún fór á ferjunni yfir fljótið til fyrsta fundarins við elskhugann var ekki tekin, þetta gerðist aldrei og því er hún "uppspretta óendanleikans", hún er uppspretta nýrra sagna sem varpa ljósi á þær sem fyrir eru. Ljósmyndir eru fryst augnablik. Þær eru óbreytanlegar og eilífar. Þær sýna okkur ekki hvernig einhver leit út á einhverju ákveðnu æviskeiði, heldur einungis hvernig hann leit út á nákvæmlega því augnabliki sem myndin var tekin og frystir það augnablik að eilífu. Þó að það hafi ekki verið tekin mynd af stúlkunni á ferjunni, þá er til mynd af syni hennar sem hún lýsir svo: Þetta er sú mynd sem kemst næst þeirri sem ekki var tekin af ungu stúlkunni á ferjunni. (18) Ljósmyndir minna þannig á ímyndir. Hún sér sjálfa sig í brotum, einhverja ímynd af sjálfri sér eða andlit sitt. ímyndir sem lýsa líðan og tilfinningalífi eru hennar viðfangsefni, hvort sem þær eru 'sannar' eða ekki; það er engin ljósmynd til af elskhuganum. Ein ákveðin ímynd er viðfangsefni sögunnar, ferjuferðin: Ég hugsa oft um myndina sem ég ein fæ ennþá séð og ég hef aldrei talað um. Hún er alltaf þarna í sömu þögninni eins og hvert annað undur. Hún er sú af sjálfri mér sem ég tek fram yfir allar aðrar, þar sem ég þekki sjálfa mig, heillast af sjálfri mér. (7) ímyndir eru líka óbreytanlegar, eilífar. Þessa ímynd hefur hún alltaf haft fyrir hugskotssjónum, eins og ljósmynd í albúmi. Þessu atriði er líka lýst ótal oft í sögunni frá öllum sjónarhornum. Þetta er óendanlega mikilvægt fyrir hana; þar sem hún fer á ferjunni yfir stórfljót, frá móður sinni til fyrsta elskhugans. í útgáfu fimmtán ára stúlkunnar er því einfaldlega lýst svona: Svo ég segi ykkur fleira, þá er ég fimmtán og hálfs. Þetta er á ferju yfir Mekong-fljót. (8) Móðir hennar vildi sífellt vera að láta taka af þeim fjölskyldumyndir, hún kærði sig ekkert um landslagsmyndir eða því um líkt, slíka hluti hafði hún enga þörf fyrir að varðveita. Systkinin skoðuðu ljósmyndir af hvoru öðru en horfðu aldrei hvort á annað, þau töluðu heldur aldrei saman, þau hleruðu og njósnuðu. Móðirin vildi frysta augnablikið, halda börnunum hjá sér á einhvern hátt, 29

x

Ársrit Torfhildar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Torfhildar
https://timarit.is/publication/1918

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.