Ársrit Torfhildar - 01.04.1991, Síða 37

Ársrit Torfhildar - 01.04.1991, Síða 37
Ársrit Torfhildar Hann veit ekki lengur hvað dregur hann til að skoða klámblöð í bókaverslunum. Hann hélt að hann sæktist eftir nöktum líkömum kvennanna en hann er ekki lengur viss. A ferð milli borgarhluta í bílnum sínum reynir hann að lýsa upp höfuðið með skynsemisljósi, beita heilbrigðri dómgreind til að komast að ástæðum löngunar sinnar og skilja flæking óskipulegra hvata um líkamann. "Eftir hverju er að slægjast?" spyr hann sig og skimar eftir konunum sem aka einar milli borgarhluta. Ákveður að hripa mögulegar ástæður niður á blað og skrifa þannig úr sér vitleysuna eins og hann ímyndar sér að sé venjan. Á bílastæði framan við málningarverslun situr hann með blokk af staðgreiðslunótum í kjöltunni og skrifar að athæfi hans sé á engan hátt æskilegt, hvorki út frá siðferðilegum né hugmyndafræðilegum forsendum en finnst skyndilega þessi sjálfsrýni barnaleg og brennir miðann í öskubakkanum. "Hvað ef einhver á skrifstofunni fyndi slíkan miða á borðinu hjá mér?" hugsar hann og finnst réttast að láta þessar skriftir eiga sig. Hann stingur kvittimunum í hanskahólfið og felur þær undir skráningarvottorði og bílahandbók, hræddur um að skriftin liggi enn greypt í hvítan pappírinn og sjáist berlega, komi nótublokkin fram í dagsljósið. Hann reynir að beina hugsunum sínum í aðrar áttir, leggur höfuðið á stýrið og nýr enninu til á köldu plastinu svo minningin um syndlaust ástandið áður en klámblaðalöngunin tók að vefjast fyrir honum, nái föstum tökum á höfðinu. Hann hafði staðið við tímaritarekkann í bókabúð í miðbænum og í hamingjusömu hugsunarleysi flett nöktum síðum blaðanna þegar skelfingin greip hann fyrirvaralaust. Honum þótti sem konan sín og börn stæðu fyrir utan glerið og fylgdust með honum; konan sveiflaði handtöskunni fram og aftur og hafði sett upp aðkenningu af glotti, en sonurinn fylgdist með honum í litlum, grænum vasakíki sem hann lagði að rúðunni. Það var þessi vasakíkir sem hann var hræddastur við. Hann reyndi að blekkja hann með því að þrífa sportveiðiblað og smella því ofan á klámblaðið en fann fyrir tilliti hans eins og brennandi geisla. Hann opnaði það og athyglisverð grein um fluguhnýtingar blasti við honum, sem hann einsetti sér að lesa enda þótt hann fyndi pappírinn bylgjast undan sveittum lófunum. Orðin hneigðust til að standa ein og stök og tolldu illa saman í skiljanlegum setningum, en með hugarorku sinni tókst honum að halda utan um þau og ákvað að kaupa bæði blöðin og fullyrða að aðeins hefði verið um eitt að ræða. Við kassann knúði 35

x

Ársrit Torfhildar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Torfhildar
https://timarit.is/publication/1918

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.