Ársrit Torfhildar - 01.04.1991, Page 38

Ársrit Torfhildar - 01.04.1991, Page 38
Ársrit Torfhildar hann einhver innri óróleiki til að líta í átt að glerinu og hann sá að þau voru ekki þama. Hann horfði út á götuna án nokkurar fyrirstöðu, gegn um risavaxna rúðuna og út en sá engar kíkisglyrnur fylgjast með sér. Atburðurinn sannfærði hann um að þó að hann gæti ekki fest hendur á skuggum fjölskyldunnar yrði hann að vera við því búinn að þeir réðust á hann, óvænt. Því gerir hann sér nú far um að blekkja viðstadda í bókabúðinni með prúðmannlegri framkomu, mjúkmæltum góðum degi til afgreiðslukvennanna, brúnum frakka og svartri skjalatösku sem hann stillir á gólfið við hlið sér eins og múr sem á að vernda hann fyrir óþarfa hnýsni. Á meðan hann lítur í blöðin skimar hann órólegur í kring um sig, athugar hvort afgreiðslufólkið fylgist með sér og líti hann í augu þess stara þau á móti með eilitlum vandlætingarsvip. Það er greinilegt að hann ókyrrist við þessi viðbrögð því nærstaddir taka eftir að líkami hans titrar í mjúkum bylgjum sem eiga upptök sín í fótunum og breiðast þaðan út um líkamann allan. Þessar bylgjur bera hann nánast ofurliði, þær halda áfram að hlaupa um búkinn jafnvel þó hann hafi smeygt blöðunum aftur í rekkann og yfirgefi verslunina. Uti í bílnum rennur taugaæsingurinn smám saman af honum. Titrandi fingurnir ná föstum tökum á stýrinu og á rauðu ljósi flautar hann meira að segja stubb úr lagi og trommar með á gírstöngina. Fyrir nokkru gerði hann sér grein fyrir að það eru ekki myndimar sem heilla hann heldur spennan sem fylgir því að skoða þær. Á ferð um borgina, aftur á leið til vinnu, veltir hann þessari uppgötvun fyrir sér og reynir að nýta hana til að skilja sjálfan sig betur en það hefur ekki borið neinn árangur. Samt hefur honum tekist að innlima klámblaðalöngunina í daglegt líf sitt með hennar tilstiíli. í stað þess að ráfa tilviljanakennt búð úr búð hefur hann nú komið sér upp kerfi. Hann fer í ákveðnar búðir í borginni með vissu millibili og hefur á þann hátt tekist að vanabinda kenndir sínar með aðdáunarverðum hætti. Með tímanum vonast hann til að gera endurtekninguna svo vélræna að hún hætti að veita honum ánægju en ekki er að sjá að honum muni nokkurn tíma takast að ná því markmiði. Fyrir hreina tilviljun hitti ég Lúkídor aftur. Hann sat einn við hornborðið undir norðurglugganum í Staðarskála og bjó sig undir a ð dýfa skeiðinni í barmafullan disk af blómkálssúpu þegar ég sá hann. Við hliðina á súpudisknum var annar diskur, smærri með tveimur 36

x

Ársrit Torfhildar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Torfhildar
https://timarit.is/publication/1918

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.