Ársrit Torfhildar - 01.04.1991, Side 39

Ársrit Torfhildar - 01.04.1991, Side 39
Ársrit Torfhildar skáskomum brauðsneiðum og þegar ég nálgaðist borðið ýtti hann honum í áttina til mín, heilsaði ekki en benti á diskinn. Ég settist andspænis honum, tók aðra sneiðina, dýfði henni í súpuna og saug. Hann sagði fátt, hafði lagt flautukassann á borðið við hlið sér; svartan, þrísmelltan kassa með rúnnuðum hornum og stálkörmum sem glömpuðu óþægilega. Ósjálfrátt strauk ég kassann til að finna hvemig hann væri viðkomu en dró höndina til baka þegar ég sá hvemig honum varð við. "Fyrirgefðu," sagði ég og kinkaði til hans kolli en hann svaraði mér ekki heldur klappaði kassanum órólega. Ég tók eftir að hann starði stíft á viðskiptavinina. Sumir þeirra gerðu sig líklega til að nálgast okkur en jafnskjótt og hann varð þess var, greip hann kassann og vildi rjúka út þannig að ég mátti hafa mig allan við að halda honum. "Ég skal ná í hamborgarann minn sjálfur," sagði ég og ýtti honum aftur í sætið, mér til undrunar hlýddi hann og sat kyrr. í æsingnum hafði hann misst súpu á borðið og dró hringi og línur í blettina, sullaði þeim fram og aftur um plötuna og tókst þannig að róa sig niður. "Er hann vel steiktur?" spurði hann þegar ég hafði tuggið fyrsta bitann af hamborgaranum. Ég sagði honum að hann væri mjög vel steiktur og að brauðið væri gott, ekki þetta mjúka, linkulega brauð sem maður fær annars staðar. "Þeir hljóta að rista brauðið," sagði ég og stakk hnífnum í kokteilsósuna, ég hafði haft áhyggjur af því að hún væri orðin gömul og olían ylli úr henni eins og gulur vessi. "Æfir þú þig mikið?" spurði ég og benti með gafflinum á kassann. Hann svaraði mér ekki beint, var upptekinn af ímynduðu strikunum á plötunni sem öll mynduðu hringform, reglulega rofin af skásettum línum. Ég ítrekaði ekki spuminguna. Þegar ég leit á útkrabbað borðið sá ég mynd hans inn á milli línanna, gangandi eftir berangurslegum fjörum Hrútafjarðarins með flautuna í hendi sér. Ég hætti að tyggja nokkra stund og virti hann fyrir mér. Hann hafði numið staðar og sneri í mig baki, flautan lafði máttleysislega úr hendinni og það glampaði á hana af eldrauðum himninum og brennandi skýjunum sem fylltu út í baksviðið og drógu svo mjög að sér athygli hans að hann bærðist vart nema ef einstöku fugl stakk sér niður í ljósið og sveimaði þar um líkt og vængjaður skuggi. Hann lét sig falla á steinhnullxmg í fjöruborðinu, yfirkominn af geðhrifum og fór höndum um andlit sitt eins og af þreytu eða harmi en í varnarskyni leit hann upp í átt að kassalaga skólabyggingunum á Reykjum sem hann áleit að væru sigur strangrar 37

x

Ársrit Torfhildar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Torfhildar
https://timarit.is/publication/1918

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.