Ársrit Torfhildar - 01.04.1991, Síða 46

Ársrit Torfhildar - 01.04.1991, Síða 46
Ársrit Torfhildar gleymskunni að bráð. Tíminn er honum mjög hugleikinn. Hann heldur viðstöðulaust áfram, það er nýár, svo kemur 17. júní, Hringur byrjar í skóla, dauði, jarðarför. Saga Andra er líka ein viðstöðulaus tímaferð. En sú samfella er rofin í sögu Guðmundar Andra, bæði leitar frásögnin aftur á bak (eins og þegar hann flettir fjölskyldualbúminu) og "stoppar augnablikin upp" - gerir þau lífsseigari en tímann (á svipaðan hátt og Ijósmyndir frysta eina örskotsstund). Hringrás sögunnar kemur fram í hoppum frásagnarinnar, frá bernskuminningum/veröld foreldranna til samtímans/sambandsins við Hring. Þessir tveir pólar takast á í Guðmundi Andra og það sem þeir standa fyrir: líf og dauða, eyðingu og sköpun, lífsleiða og lífsgleði. í sögu hans er hægt á allri atburðarás, sögumaður fær smásjáraugu í stað þess að beita yfirlitssenum. Til að finna sjálfsmynd sína þarf Guðmundur Andri að draga hring frá foreldrum sínum og æsku sinni til sonarins, bemskunnar. Ná einhvers konar samræmi milli ótta og átaka í heimi þar sem einstaklingurinn kiknar undan samfélaginu (sbr. sögu Haraldar og Astu í Andra-bókunum) annarsvegar og hinsvegar sköpunargleði Hrings sem, í augum Guðmundar Andra, virðist móta heiminn að vild sinni. Andri sá ekki möguleikann á slíku samkomulagi, hann vildi bara skynja heiminn á einn hátt en síðan höfðu örlögin annan hátt á. Það er ekki um að ræða samspil milli áhrifa einstaklings og samfélags. Hreyfing í tíma og breytingar fá annað gildi í þessari sögu en sögu Andra. Það sem Guðmundur Andri sækist eftir er algleymi augnabliksins; sagan bendir á að það er ekki síður augnablikið sem skapar merkingu en það sem skapast smám saman í tímans rás. Sagan byggir í raun meira á myndrænni sköpun en tímanlegri þar sem Guðmundur Andri reynir að lífga einstaka atburði, sem í sjálfu sér eru vita ómerkilegir, og gera þá merkingarbæra. Þeir eru miklaðir upp óháð fléttunni eða hinni tímanlegu atburðarás. Kaflaheitin í sögu Guðmundar Andra ítreka þessar hugmyndir sem drepið hefur verið á. Það eru alvanalegir hlutir sem hann veltir fyrir sér og fær til að iða af lífi, breytir þeim í lítil undur; sbr. sum kaflaheitin: blokk, skiptimiði, pottablóm, hjónalíf, hádegi. Smávægilegir atburðir sem geta haft svo mikið að segja. Máttur tímans kemur líka fram í heitunum: tímavél, sjúkdómur, dauðinn. 44

x

Ársrit Torfhildar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Torfhildar
https://timarit.is/publication/1918

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.