Ársrit Torfhildar - 01.04.1991, Síða 48

Ársrit Torfhildar - 01.04.1991, Síða 48
Ársrit Torfhildar LÍFSSPEKI? Guðmundur Andri þarf eiginlega að rifja upp kynni sín af lífinu. Hann þarf að skilgreina fjölskyldu sína, bakgrunninn, til að geta náð einhverjum rótum í tilverunni. Komast út úr "nautheimsku núinu". Eina leiðin er að reyna að snúa á óminnið. "En úr því að ég skrifaði það niður gerist það aftur og aftur" (267). Hann getur endurtekið atburði, skapað sér fortíð, skrifað sig til hringrásar lífsins. Það má því segja að uppbygging sögu GA sé viss samræming forms og efnis. Línulaga tími gengur hér ekki upp, minnislaus maðurinn getur ekki haldið áfram eins og ekkert sé eins og Hringur sem aldrei lítur til baka. Sagan verður því ekki rökræn framvinda. Hann rifjar æskuna ekki skipulega upp heldur koma minningarnar óboðnar og fyrirvaralaust. Hringur burðast ekki með slíkar byrðar á bakinu. Allt er nýtt fyrir honum og ekki þörf á neinu fortíðaruppgjöri! En hin bamslega fundvísi á undrið í heiminum endurnýjar Guðmund Andra og setur af stað einhvers konar hringrás í bókinni. Það er því ekki að ósekju að sonurinn heitir Hringur, hann er mótvægið við fortíðina, dauðann, eyðinguna, lífsleiðann. í honum hefst lífið að nýju... Hann er maskínan sem Guðmundur Andri notar til að veiða lífið í. Honum tekst jafnvel að blása lífi í drumbinn Harald. Vítamínsprauta. "Ef maður gæti verið eins og bömin leika sér. Allt undir kontról af því þau búa til allt sjálf, em sjálfum sér nóg og hafa svo algera sköpunargáfu að þau geta bmgðið sér í allra kvikinda líki. Skipta um ham, hamsleysið" (43). Er þá niðurstaðan einföld lífsspeki þar sem mælt er með samneyti við börnin sem alltaf sjá hversdaginn fullan af furðuverkum? I togstreitunni milli heimsmyndar hvers einstaklings og einhverrar alheimsmyndar er það einkaveröldin sem gæðir núið lífi og skiptir manninn mestu máli. Svar bókarinnar má því útleggjast sem tilbrigði við stefið um að maðurinn skuli rækta garðinn sinn. (Gísli Sigurðsson. 1986:43) Þetta kemur greinilega fram í bókinni og sést t.a.m. á því að nálægðin er miklu meiri í Guðmundar-Andra sögu en Andra sem er séður úr krítískri fjarlægð. Hinu má þó ekki gleyma að hér er ekki 'ídealísering' á ferðinni eða afdráttarlaus tilmæli um hvemig maður skuli haga lífi sínu. Vissulega er sýnd Andra, sem lifir fram fyrir sig í 46

x

Ársrit Torfhildar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Torfhildar
https://timarit.is/publication/1918

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.