Ársrit Torfhildar - 01.04.1991, Síða 66

Ársrit Torfhildar - 01.04.1991, Síða 66
Ársrit Torfhildar óhugnanlegt. Janey hefur yndi af að sökkva sér í lestur bóka en það er enn eitt mjög algengt fyrirbæri í kvenlýsingum bókmennta. "I love to read, to lose myself in foreign places, new emotions, leam what other people feel; most all my friends hve within books" (214). Lesturinn er hennar undankomuleið undan ógnvekjandi raunveruleika inn í fantasíu og dagdrauma, lykillinn að dulvitimdinni. Lawrence Lipking tengir lestrarþörf kverma í bókmenntum þörf fyrir að gleyma persónu sinni og rifja upp eða muna sjálf sitt. Konur vilji sökkva sér í bók og gleyma þannig Föðurnum eða karlveldinu20 og komast nær symbíósunni, lesturinn er þá uppbót fyrir skort. Þrá eftir móðurlíkamanum. í sömu grein gerir Lipking grein fyrir óðfræði Madame de Staél og hún segir að það að konur sökkvi sér meira í lestur eða ritun bóka sé ekki eingöngu flótti undan karlveldinu eða Föðurnum heldur sé líka um að ræða leit að fjarverandi vini sem lesandinn samsamar sig við. Janey segir berum orðum að flestir vinir hennar búi í bókmn, eini vinur hennar sem ekki býr í bók býr í tjörn, engu raunverulegri en vinirnir í bókunum. Madame de Staél segir að vináttan snúist svo við í höndum lesandans og komi aftan að honum þar sem hann geti ekki horfst í augu við þær sorgir sem hann upplifir sjálfur nema að yfirfæra þær á aðra manneskju, sem er einmitt það sem Janey gerir í lok sögunnar, hún lætur systurina (eða telur sér trú um að það sér systirin) um að drepa Mr. Emerick. Hún yfirfærir lokasenuna á tvífara sinn21 og styður þannig við margar tvífarakenningar um að "Hinn", Augusta, sé vondi hluti sjálfsins. Janey er ófær um að horfast í augu við eigin gjörðir og segir því a ð Augusta hafi gert það. Madame de Staél heldur því líka fram að konur samsami sig persónum bókmennta og upplifi tilfinningar þeirra á mun nánari hátt en körlum sé unnt. Þar af leiðandi geta bækur virkað á konur sem uppspretta einmanaleika eða ýtt undir þá tilfinningu sé hún þegar fyrir hendi. "Poetry is a companion that makes the reader feel more alone".22 Janey er mjög einmana, báðar systur hennar horfnar og hún og móðir hennar talast varla við. Einmanaleiki hennar verður enn sárari þegar hún les bækur og hittir Augustu við tjörnina. Leyndarmáhð einangrar hana frá hinum, allir vita um það nema hún. Sagan gerist í fjallahéraði og hús mæðgnanna er staðsett á litlu, einangruðu bersvæði inni í skóginum. Náttúran tekur því yfir stóran 64

x

Ársrit Torfhildar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Torfhildar
https://timarit.is/publication/1918

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.