Ársrit Torfhildar - 01.04.1991, Side 68
Ársrit Torfhildar
Svava Jakobsdóttir segir ótta kvenna við að vera einar utandyra,
utan öryggis heimilisirts, tengjast líkamlegum mismun kvenna og
karla og þar af leiðandi sé hann sérstök kvenleg reynsla. Umhverfið
sem beinlínis verður ógnandi og rís yfir höfuð þeirra verður til þess
að frumótti konunnar brýst upp á yfirborðið og gerir hana frávita af
hræðslu. "Og ég fer að velta því fyrir mér hvað sú einfalda staðreynd
að karlmaðurinn er stærri en konan, geti hugsanlega haft á hana,
viðhorf hennar til lífsins og á tilveru hennar yfirleitt."24 Svava veltir
því svo fyrir sér hvemig best sé að koma þessari reynslu kvenna á
framfæri og niðurstaða hennar er aðferð fantasíunnar, að gera hið
ómögulega að raunhæfum möguleika í skáldskap.
Þessa aðferð velur Wennicke Eide Cox líka, enda gefur hún
möguleika á að segja sögu án þess að þurfa að taka mið af lögmáli
Föðurins, rökhyggjunni. Þetta tengist kvenlegum rithætti þar sem allt
er óvænt, frásögnin er ekki í réttri tímaröð heldur er gripið niður hér
og þar í ævi Janey og textinn er ófyrirsjánlegur. Lesandinn veit það
eitt að eitthvað óhugnanlegt er á seyði en hann áttar sig ekki á því
hvað það er. Þetta er eitt aðaleinkenni kvenlegs ritháttar samkvæmt
Helen Cixous eins og fram kemur í inngangi. Annað einkenni
kvenlegs texta er flæði segir Cixous,25 það er að segja texti sem er án
upphafs og endis með margátta merkingarmið, hann einkennist af
gnægð Móðurinnar en ekki takmörkum Föðurins. í Sister kemur
þetta mikla flæði beinlínis fram í útþurrkun raunveruleika-plansins,
fantasían brýtur alla skynsemi hvað eftir annað niður svo ekkert
röklegt stendur eftir. Mynd Augustu í vatninu og hvemig systurnar
flæða saman á yfirborði þess, ná sambandi með augunum. Slíkt
gerist ekki í röklegum texta og er á mörkum hins mögulega. Það má
jafnvel segja að hér sé um offlæði að ræða þar sem orðræðan
einkennist af geðveiki, það er engin röksemdafærsla í textanum. Ef
reynt væri að beita rökhyggju á textann gengi hann ekki upp, en á
eigin forsendum, forsendum stanslauss flæðis, verður allt sem gerist
óhugnanlegt og sláandi. Þess vegna skiptir öllu máli fyrir óhugnað
sögunnar að sjónarhornið sé bundið við Janey, sem er ekki
áreiðanlegur sögumaður þar sem sem hún lifir í eigin heimi og er
algjörlega á valdi fantasíunnar.
NIÐURLAG
Barátta Janey og systranna við Mr. Emrick einkennist öðru
66