Mímir - 01.04.1986, Síða 35

Mímir - 01.04.1986, Síða 35
Halla Kjartansdóttir: Eg sá satan af himnum sem eldingu (Lúk. 10:18) Gm djöfulinn í boðun og bókmenntum miðaldakirkjunnar 1 Grein þessi var upphaflega samin sem lokarit- gerð í námskeiði um helgisögur sem Sverrir Tómasson kenndi á Cand.mag. stigi í íslensk- um bókmenntum á vorönn 1985. Hér birtist hún með örlitlum breytingum. 1. Inngangur Hvað er flærðin, hatrið, fólskan og slægðin, andspænis heiðarleika, kærleika og sannleika? Hvað er óvinur mannkyns, faðir Iyginnar, höfðingi myrkursins, andspænis frelsara mann- kyns, föður ljóssins og sannleikans, skapara himins og jarðar? — Afskræmt kvikindi, sem hvorki er maður né skepna, heldur allt þar á milli, aldrei í einu líki en alltaf ógnvekjandi. Það getur aldrei orðið almáttugt, en það ógnar vegna þess að það er fært um að afskræma sköpunarverk guðs. Það er í senn holdgerving og ímynd hins illa og það er sá djöfull sem guðshugmynd kristninnar hefur fætt af sér, sá djöfull, sem birtist ljóslifandi í kristilegum bók- menntum miðalda. Þar kemur djöfullinn fram í ýmsurn gervum og mynd hans getur því verið margbreytileg á yfírborðinu þótt undir niðri sé hún ávallt í samræmi við þá kristilegu hugmyndafræði sem djöf'ullinn er vaxinn upp úr. Hér á eftir verður fyrst fjallað um djöfulshugmynd kristninnar, hið illa sem spillir á milli guðs og manna, en síðan hugað að því hvernig djöfullinn birtist í trúarbókinenntum miðalda og hvaða hlutverki hann gegnir þar. Ekki er ætiunin að fara ræki- lega í saumana á einstaka lýsingum eða frá- sögnum, heldur verður fyrst og fremst reynt að draga fram þá trúarafstöðu sem býr að baki hinum Ijölskrúðugu frásögnum af honum, sem koma fyrir í sögum af helgum mönnum (helgi- sögum) og kristilegum dœmisögum. I þessum trúarlegu bókmenntum miðalda eru dregin skýr mörk góðs og ills í mannlegri breytni, þar sem játarar og píslarvottar verða hinar full- komnu fyrirmyndir en ólánspersónur dæmi- sagnanna, sem eru fíflaðar af vélabrögðum djöfulsins, víti til varnaðar. I dæmisögunum er gert sem mest úr völdum og ógnum djöfulsins, en í helgisögunum birtist hins vegar sú til- hneiging að gera sem minnst úr þeim. Hér á eftir kemur betur í ljós í hverju þessi grundvall- armunur felst. En hann afhjúpar bæði afstöðu kristninnar til djöfulsins og varpar Ijósi á mis- munandi hlutverk helgisagna og dæmisagna í trúboði kirkjunnará miðöldum. II. Djöfullinn kemst til valda Kristin trú gengur út frá skörpum andstæð- um góðs og ills og byggir kennisetningar sínar á þeim, enda þótt guðshugmynd kristninnar rúmi einungis ailt hið góða. Hinu illa verður því að finna stað utan hennar og því hefur hug- myndin um djöfulinn, sem fulltrúa hins illa, alls þess sem andstætt er kristinni trú, orðið til og mótast samstíga guðshugmyndinni, sem andhverfa hennar. En samkvæmt kristinni trú er guð ekki einungis hugmynd heldur lifandi og skapandi máttur. Guð er almáttugur og algóð- ur og hann skapaði heiminn, sem var upphaf- lega góður og fullkominn. Þannig gerir kristin 35
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Mímir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.