Mímir - 01.04.1986, Síða 37

Mímir - 01.04.1986, Síða 37
nánari lýsingu af þeim atburðum er að finna í Niðurstigningar sögu: Þá gerði síðan dominus krossmark yfir Adam og öllum helgum og íók hönd Adams og (sté) upp úr helvíti með her miklum, og fylgdu drottni allir helgir.3 Jesús hefur krossmarkið eitt vopna og með því tekst honum að hnekkja veldi myrkrahöfð- ingjans og um leið opnast hinu synduga mann- kyni aftur leiðin tii himnaríkis og eilífs Iífs. En vegna þess að Jesú tókst ekki endanlega að ráða niðurlögum Satans, héldu sporgöngumenn hans áfram baráttunni. Um það vitna hinar fjölmörgu frásagnir miðalda af viðureign trú- manna við djöfulinn og krossmarkið er jafn- framt þeirra skæðasta vopn. Þótt á síðari tímum hafi verið hljótt um þess- ar frásagnir af hinum drambsama og valdasjúka Lucifer, helvíti og niðurstigningu Jesú og djöf- ullinn sé vart nefndur í ræðum og ritum nú- tímaklerka, hefur hann verið bráðlifandi í hug- um miðaldamanna og gegnt þýðingarmiklu hlutverki í trúboði miðaldakirkjunnar. Þá voru sögur af helgum mönnum og kristilegar dæmi- sögur snar þáttur í messugjörðinni og í frásögn- um þessum ber töluvert á Iýsingum á hvers kyns ofsóknum og illvirkjum djöfulsins, sem ekki lætur af fíkn sinni í og baráttu fyrir þeim völdum sem samkvæmt kristninni eru ætluð guði einum — völdum yfir sálum manna í lífi jafnt sem dauða. III. Djöfullinn í sókn og vörn Sannfæringin um að hið góða muni ávallt geta sigrað hið illa er í raun undirstaða krist- innar trúar og kemur einkar skýrt fram í frá- sögnum miðalda af viðureign manna við djöf- ulinn. Þar fer sá sem trúir undantekningarlaust með sigur af hólmi, enda þótt andstæðingurinn sé gerður eins ógnvænlegur og frekast er unnt. í sögum af helgum mönnum birtist djöfullinn gjarnan í líki viðbjóðslegustu og grimmustu villidýra, dreka og eiturkvikinda. 3 Niðurstigningar saga, Heilagra manna sögur II, bls. 7. Eftir það gengu óhreinir andar í sýn við hinn helga Antonium I líkömum ýmislegra skóg- dýra' sá hann bœði leones og pardos, hin grimmustu dýr er svo heita, bja(r)ndýr, nöðrur og þá eiturorma er reguli kallast, og mörg önn- ur skaðsöm og eiturfull kvikindi af ýmislegu kyni. ÖU þessi skrimslfóru remjandi, hvert eft- ir sinni náttúru og raust og með gapandi gin, svo sem þau þyrsti öll til blóðs þess réttláta manns og hann að svelgja . . .4 Þessi lýsing úr sögunni af heilögum Ant- oniusi er nokkuð dæmigerð fyrir frásagnir helgisagnanna af ofsóknum djöfulsins á hendur trúmönnum. Hann birtist þar í allra kvikinda líkjum og spúir eldi og brennisteini, en allar þessar ógurlegu lýsingar þjóna fyrst og fremst þeim tilgangi að gera sem mest úr trúarstyrk þeirra sem fyrir ofsóknunum verða. Og reglan er sú í þessum frásögnum, að eftir því sem söguhetjan býr yfir sterkari trú, magnast lýsing- amar á ásjónu og ógnum djöfulsins. En það er jafnframt táknrænt fyrir aukið mikilvægi djöf- ulsins í boðun kirkjunnar á miðöldum að högg- ormur Gamla testamentisins skuli fá á sig stærð dreka og skrímsla í trúarritun miðaldakirkj- unnar. I sögu heilags Antoniusar er djöfullinn reyndar fyrirferðarmeiri en í flestum öðrum helgisögum og lýsingar hans fjölbreytilegri. Heilagur Antonius hefur kosið að helga líf sitt guði og sest að í kastala í eyðimörk og lifir þar í einveru og meinlætum. Hann fær hins vegar engan frið fyrir árásum djöfulsins og kastalinn er alsettur illum öndum í líki höggorma og eyðimörkin er sömuleiðis morandi í hvers kyns skaðlegum kvikindum. Þessar hræðilegu að- stæður varpa þó Ijóma á sjálfan Antonius því honum tekst að hrekja öll þessi kvikindi á brott með krossmörkum og bænalestri og hreinsa eyðimörkina af þessum ósóma. Þessar dáðir hans spyrjast út og til hans streyma djöfulóðir menn úr öllum áttum, sem Antonius læknar umsvifalaust í krafti trúar sinnar. Hinn mikli 4 Antonius saga, Heilagra manna sögur I, bls. 57. 37
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Mímir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.