Mímir - 01.04.1986, Síða 46

Mímir - 01.04.1986, Síða 46
orð tekin alvarlega vœri allur skáldskapur und- irhefðbundnum bragarháttum andvana fadd- ur. Hvað finnst þér? Þetta er bara sami fanatismi og kemur alltaf upp og er kannski að sumu leyti nauðsynlegur meðan breytingar eru að ganga yfir. Menn verða helst að trúa svo stíft á það nýja sem þeir þykjast sjálfir vera fulltrúar fyrir að þeir haldi að það komi aldrei neitt á eftir. Þetta sem þarna gerðist ætti að vera nokkuð sambærilegt við það sem var að gerast á sama tíma í mál- aralist. Við vitum að það gekk þarna yfir ákveðið afstrakt tímabil sem olli Iíka deilum. Annars vegar voru menn sem sögðu: þetta er ekkert málverk, þetta er þara klessumálverk. Hins vegar voru þeir sem þörðust fyrir þessu nýja formi af svo mikilli einsýni að þeir urðu fanatískir. Þetta leiddi til þess að menn sem höfðu allan tímann meiri áhuga á að mála fíg- úratíft urðu næstum því að fara með veggjum. Þannig var t.d. með Jóhannes Geir. Sama gilti um menn sem gengu af trúnni. Sverrir Har- aldsson var einn af þeim mönnum sem mest var hampað þar til hann braut gegn kröfu dags- ins, hinu afstrakta málverki sem var orðin ríkj- andi hefð og því hvorki ögrandi né byltingar- kennt lengur. Hann var allt að því ofsóttur. Ég held að þetta hafi að sumu Ieyti verið sambæri- legt í ljóðlistinni. Þó má ekki gleyma því að á tímabili hættu menn gjörsamlega að yrkja und- ir fullkomlega hefðbundnum bragarháttum, en auðvitað ber að hafa í huga að mörg bestu skáldin hafa haldið í stuðlasetninguna alla tíð í gegnum þykkt og þunnt, t.d. Hannes Pétursson og Þorsteinn frá Hamri. Mig langar til að víkja stuttlega að DISN- EYRÍMUM. Var það ekki undarlegt uppátœki að ráðast í það að yrkja rímur á ofanverðri 20. öld? Jú, það má segja það og mér finnst núorðið einkennilegt að ég skuli hafa gert þetta. En grundvallarhugmyndin var sú að mig Iangaði til að gera sláandi samruna úr einhverju tvennu sem á ekki að eiga neitt skylt. Ég hafði þá þegar fengið talsverðan áhuga á þessu formi og stúd- erað það dálítið og svo þegar ég var búinn að ákveða að ég ætlaði að gera rímur, þá leitaði ég nú að efni svona í huganum. Þá vildi svo til að á þeim árum hafði ég ákaflega mikinn áhuga á ýmsum pólitískum fræðum í kringum svokall- aðan menningarimperialisma og þá varð Walt Disney fljótlega á vegi mínum. I dag finnst mér að Disneyrímur ættu frekar að vera verk sem maður segist Ianga til að gera, en geri svo aldrei, Iíkt og margir gerningar „happening" eru bara uppskrift að einhverju sem listamað- urinn myndi vilja gera, væri það hægt. En þú ákvaðst að láta ekki þar staðar num- ið? Ég segi kannski að mér þyki ótrúlegt að ég skuli hafa gert þetta, en þó ber á það að líta að bragarsmíð eins og þessi er ákaflega mikið þjálfunaratriði. Það er hreinlega hægt að koma sér í ham og ef maður gerir mikið af þessu þá er þetta miklu auðveldara en það lítur út fyrir. Afköst fyrri tíðar rímnaskálda verða þá í Ijósi þessa skiljanlegri? Já, maður skilur að það er ákaflega mikið af svona hálfgerðum formúlum í gangi í þessum kveðskap, það hlýtur bara eiginlega að vera, því afköst þessara manna hér á öldum áður voru svo lygileg. Síðan koma ERINDI lit 1979. Varstu þá fluttur heim? Nei, ég flutti ekki heim fyrr en um áramótin 1979 — 80. Þannig að Erindi eru algerlega sam- in ytra, nánar tiltekið í Stokkhólmi. Yrkisefnin í ERIND UM eru að mörgu leyti svipuð og í KVÆÐUM, en ádeila þín er orðin markvissari og þyngri. Þú deilir á neyslusam- félagið, erlent auðvald og herinn er þér þyrnir í augum. Afstaða þín er þjóðernisleg — tehirðu islenskt þjóðerni vera í hcettu? Já, ég get nú tekið undir það að margt af því sem ég hef gert ber vitni um hugleiðingar um okkar þjóðerni. Ég vona þó að þetta sé manni eðlislægt frekar en að þetta séu skrif um þjóð- erni sem einhvers konar skraut utan á okkur ís- lendingum. Spurningin um þjóðerni hlýtur bara ávallt að vera ofarlega í huga manns sem gerir það að iðju sinni að vinna úr tungumáli örlítillar þjóðar eins og okkar íslendinga. Állir 46
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Mímir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.