Mímir - 01.04.1986, Síða 51

Mímir - 01.04.1986, Síða 51
Já, þaðan er það komið að tengja þá saman. Síðan þlandast sögur af Silungaþirni saman við sögur af Guðmundi Bergþórssyni. /sögunni lýsir þú samvinnu skáldsins og al- þýöumannsins sem mistekst. Eru þessi „mis- tök“ ástœðan fyrir „kyrrum kjörum"? Já, þetta er kannski það sem sagan gengur meira og minna út á. Án þess að ég vilji leggja fram einhvern skilning sem ég fyrirskipi að þurfi að vera sannleikurinn allur, þá má segja að þetta sé spurningin um það, að hve miklu leyti er hægt að taka málin í sínar eigin hendur, ef ytri aðstæður leyfa það ekki. Má þá kannski segja að þeir seilist of langt, þegar þeir reyna að galdra dverginn út úr steininum? Já, þeim tekst að galdra hann út úr steinin- um, en síðan kemur þarna truflun að utan, sem veldur því að hann hörfar aftur tilbaka þannig að honum verður aldrei náð aftur og það má segja að það sé niðurstaðan. Nú minnir þetta atvik mann dálítið á sœr- ingar Galdra-Lofts. Eru einhver hugmynda- tengsl þarna á milli? Nei, það held ég nú ekki. Þessi galdur í Kyrr- um kjörum myndi ekki flokkast undir svarta- galdur að ég hygg. Og raunar þótti sumum rit- dómurum það miður og töldu það vera galla á sögunni, hvað mikill tvískinnungur væri ríkj- andi í afstöðu höfundarins til galdursins. Aðra stundina væri hann tekinn alvarlega, en hina gerðust yfirskilvitlegir hlutir eins og ekkert væri sjálfsagðara. Jafnframt væri í sögunni gefið í skyn að galdur sé fyrst og fremst það sem aðrir haldi að sé galdur og hann sé sem sagt ekki til í fullri alvöru, heldur aðeins til sem orðrómur í tengslum við fötlun Guðmundar Bergþórssonar. Ég held að þetta sé alveg hárrétt niðurstaða varðandi Guðmund. Hann hafði orð á sér fyrir að vera kraftaskáld og ég er alveg viss um að þessi fatlaði maður sem bjó yfir þessum mikla krafti til að yrkja, hann hefur auðvitað róið að því öllum árum að ýta undir þann orðróm. Hann var svo mikið þæklaður að hann þurfti einfaldlega á því að halda bara til að geta lifað og starfað. En hvað þá um ásakanir ritdómara um tví- skinnung af þinni hálfu? Já, sko ég get alveg sagt það hreinskilnislega að ég var að reyna að hafa tvískinnung í þessari sögu. Ég vildi ekki gefa lesandanum neinar upplýsingar urn það hvort ég tryði eða tryði ekki á þennan galdur. Ég vil frekar kynna hann á þann hátt að lesandinn verði bara að finna út sjálfur hvað honum finnst. Auk þess sem galdur er sjálfsagður í skáld- skap? Já, galdurinn er náttúrlega þáttur í ölium skáldskap. Og bara sjálft orðið, er það ekki komið af að gala eða kveða, eða einhverju slíku? Hefurðu í hyggju að skrifafleiri skáldsögur? Já, ég hef fullan hug á því og ég vona að ég eigi eftir að skrifa margar skáldsögur. Þó er ég ekki endilega viss um að ég mundi gera það að sérgrein minni að skrifa sögulegar skáldsögur. Það er að mörgu leyti dálítið erfiðara. Nýjasta bókin þín heitir MARGSAGA. Þar koma margar persónur fyrir úr þínum fyrri bókum. Þarna eru Rósur ýmsar á ferð og Jó- hannes Birkiland á hjólinu og ýmsar fleiri persónur sem hafa komið fyrir hjá þér áður. Hverju sœtir þetta? Já, mér finnst nafnið Rósa einhvern veginn þess eðlis að ég hef ákveðið að hafa það í öllum mínum bókurn og ég mun halda þeim sið áfram. Þó getur verið að ég hafi gleymt að hafa nokkra Rósu með í Yddi og kannski er Jó- hannes Birkiland ekki á ferli þar heldur. Ann- ars sagði nú einhver við mig að Jóhannes Birkiland væri svona nokkurs konar höfundar- einkenni á mínum bókum, eins og það er hjá Hitchcock að láta sjálfan sig alltaf sjást bregða fyrir einhvers staðar í kvikmynd eftir sig. Það er hans „signature“. I einni mynd staulast hann út úr jámbrautarlest með kontrabassa. Hann sést alltaf í öllum myndunum og Jóhannes Birkiland gegnir svipuðu hlutverki í mínum bókum. Þú hefur tekið svona miklu ástfóstri við ákveðnar persónur? Ja, það er nú bæði það og eins er það nú líka 51
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Mímir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.