Mímir - 01.04.1986, Page 83

Mímir - 01.04.1986, Page 83
fyrstu bókum Jóhannesar og raunar fylgdi hún honum alla tíð en í fyrstu er hún litin með aug- um nýrómantíkurinnar. Þar blandast hún bernskuminningum Jóhannesar úr Dölunum, oft með angurværum saknaðarblæ. Minnir þá kliðmýktin oft á Stefán frá Hvítadal. Góð dæmi um ljóð af þessu tagi eru m.a. úr fyrstu bókinni (bækurnar verða hér eftir auðkenndar með út- komuári), Ijóðin Heima, Að starfi og Smalavís- ur en einnig má nefna ljóðin Álftirnar kvaka, Vor, Dalir og /Þrastaskógi (1929). í kvæði sínu Heima segir Jóhannes m.a. svo um æskuslóðir sínar í faðmi náttúrunnar: Hér er allt sem ég unni, og ég get ekki talið. Oft á heiðinni hérna hefur hugurinn dvalið, er ég flutzt hef í fjarlægð, — og nú fagna ég glaður. Nú er hjarta mitt heima. Þetta er heilagur staður! (Ljóðasafn I, bls. 12) 2) Fegurðarleit og túlkun sálarlífs. Hér er hin nýrómantíska hugsjón glögg. Jóhannes yrk- ir um heim tilgangs og fegurðar, um guð sem er góður og fagur. Hér skín í rómantíska dul- hyggju. Dæmi um Ijóð af þessu tagi eru t.d. Uppi á örœfum (sbr. hin sífellda þögn) og Leiðsla (1926) og ljóð eins og Bijröst og Jóns- messunótt (1929). Sem dæmi má nefna byrjun- arerindi Uppi á fjöllum þar sem segir: Leikur öræfaandi, hvísla einveruhljóð, breiðist hátignarhjúpur yfir heiðanna slóð. O'n af fornhelgum fjöllum þrumar forlagamál. Á þeim afskekktu stöðvum ríkir ómælissál. (Ljóðasafn I, bls. 15) Hinn trúarlegi kveðskapur getur fylgt hér með. Hann skín á flestum stöðum glöggt í gegn en einnig má finna hrein trúarljóð sbr. Nóttin helga (1926) og Gamla sagan, Við lífsins tré og Ef ég segði þér allt (1929). Hér má merkja það væntanlega þegar Jóhannes endurskoðar trú sína. Því að þótt ljóðin séu af trúarlegum toga þá íjalla Gamla sagan og Ef ég segði þér allt um misskiptingu auðs milli ríkraog fátækra.1 En þótt Jóhannes varpi frá sér hinum aldna og grimma guði kristninnar er guðshugmyndin allt of sterk í honum til þess að hann snúi baki við henni eins og síðar kemur glöggt fram, t.d. í ljóðabókinni Mannssonurinn (1966) sem var reyndar ort um 30 árum áður en hann gaf hana út. 3) Trúin á óbeislað ímyndunarafl skín á ýmsum stöðum í gegn. Fer ég engu nánar út í þá sálma en tengja má hana hinni dulrænu reynslu sem áður er getið. 4) Heimsþjáningin. Þetta er sá hluti í kveð- skap Jóhannesar sem minnst ber á. Enda er það ekki að undra því að hvergi má finna brest í hinni rómantísku hugmyndafræði, hvergi nokkur efí um þá heimsmynd sem skáldið hef- ur skapað sér. Þó örlar á ærið ógeðfelldum hlut í kveðskap hans sem um Ieið gæti gefið villandi mynd af hinni rómantísku heimsþjáningu líkt og ég tel íslenskan aðal Þórbergs Þórðarsonar hafa gert. Er hér um þunglyndisþrána að ræða en um hana yrkir hann á a.m.k. tveimur stöð- um í Bí, bí og blaka, þ.e. í samnefndu ljóði og í Huldu. Hér sést greinilega að allur harmur er uppgerð ein. Þó má finna harm þess sem bund- inn er í báða skó í ljóðinu Draumórar (1929) sem ort er í anda Jónasar Guðlaugssonar og er um þrána að „árroðans strönd“. Er ég þó alls ekki viss um einlægni höfundar í þessu ljóði. 5) Ofurmennishugmyndir má finna víða í ljóðum Jóhannesar, t.d. í kvæðum hans úr Laxdælu og Grettlu (1926) og í Ijóðum eins og Úr víkingi og Sií öld var stór (1929). Hann tign- ar hér víkingslundina og karlmennsku hinna miklu hetja. Svo segir í síðastnefndu ljóði: Égdái Egil, Gunnar, Kjartan, Kára, og karlmennskuna, sem þeim stafar frá,... (Ljóðasafn I, bls. 247). Annað dæmi er Ertu með?(1932). Segja má að hetjutrú hans hafi fylgt honum 1 Sjá nánar í grein Njarðar P. Njarðvík, Vort er ríkið. T.M.M.2. ;978, bls. 144. 83

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.