Mímir - 01.06.1997, Side 38
Ljódasamkeppni Mímis
í vetur gekkst Mímir fyrir Ijóðasamkeppni í sam-
vinnu við Mál og menningu. Þrír valinkunnir
menningarfrömuðir, þeir Sveinn Skorri Höskulds-
son, prófessor í íslenskum bókmenntum, Sveinn
Yngvi Egilsson, bókmenntafræðingur og skáld, og
loks Andri Snær Magnason, skáld og B.A. í
íslensku, voru fengnir (þvingaðir) til að dæma
keppnina. Þátttakan fór fram úr björtustu vonum,
því alls barst á fimmta tug ljóða, svo dómnefndin
hafði úr nógu að moða.
Verðlaunin voru ekki af verri endanum; freist-
andi, glæsilegar, innbundnar bækur frá Máli og
menningu, fyrir þrjú efstu sætin, afhent af Halldóri
Guðmundssyni útgáfustjóra forlagsins.
Urslit voru kunngerð í aprfl, í veglegri kynnis-
ferð fyrir íslensku- og sagnfræðinema hjá Máli og
menningu. Það var Andri Snær Magnason, for-
maður dómnefndar, sem tilkynnti úrslitin og voru
þau sem hér segir:
1. Verðlaun; Islenska bókmenntasögu I-III, hlaut
Öm Úlfar Sævarsson fyrir ljóðið Margt býr í
djúpinu, sem síðan var birt í Tímariti Máls og
menningar, 2 :1997.
2. Verðlaun, Ritsafn Jónasar Hallgrímssonar,
féllu í skaut Bergsveins Birgissonar fyrir Leysingu.
3. Verðlaun, Islandsförin e. Guðmund Andra
Thorsson, komu í hlut Hafþórs Ragnarssonar fyrir
ljóðið Sjálfræði.
Hér á eftir fara verðlaunaljóðin þrjú. Mímir vill að
lokum þakka Máli og menningu, dómurum og
þátttakendum kærlega fyrir samstarfið.
Margt býr í djúpinu
Ég ætlaði að staldra við um stund
og spegla mig í augum þínum,
bláköldu lygnu fjallavatni.
En þó dróst mig á langinn.
Þegar við héldum saman magnaðan tómleika
komst ég að því að fjallavötn ljúga alveg eins
og önnur vötn,
blákalt.
Og þar á nykurinn heima.
36