Mímir - 01.06.1997, Blaðsíða 55

Mímir - 01.06.1997, Blaðsíða 55
honum á að í Katrínardrápu Kálfs Hallssonar, sem talin er samin um 1400, sé atriði sem hægt væri að skoða sem vísbendingu um d-framburð. Sá hluti vísunnar sem skiptir máli er svona: hylme ec firi hneitis palmum hordome sem stuld ok morde Eins og sjá má er rímað saman hordome og morde í aðalhendingu. Það er brot á bragreglum, nema því aðeins að rd í báðum orðum sé borið fram á sama hátt, þ.e. að d-framburðurinn sé kominn til sögunnar. Að vísu er hugsanlegt, þótt ólíklegt sé, að rd í hordome hafi verið borið fram sem rð, sem væri þá svipað og með skírðags- helgarnar sem nefnt var að framan. Það myndi að vísu líka benda til tilvistar d-framburðarins. Það er þó að sjálfsögðu varasamt að draga of miklar ályktanir út frá einu dæmi, en eins og Ásgeir bendir á er lítið vitað um Kálf Hallsson og uppruna hans. 5.23 Um einstakar orðmyndir er ekki mikið meira að segja. Orðið tordýfill er nafn á skordýri sem var í fomu máli torðyfill. Það er samansett úr torð- sem merkir ,saur‘ og yfill sem leitt er af sögninni ,að vefa‘. Enginn vafi leikur á að fyrri liðurinn endaði á ð. Elsta dæmið um þetta orð er í Droplaugarsona sögu en hún er í Möðruvallahók sem var skrifuð á árabilinu 1316-1350. í handritinu er greint á milli d og ð og tordýfill er skrifað með ð, þ.e. torðyfill. Næsta dæmi um orðið er í Heiðreks sögu og kemur orðið fyrir í þeim hluta sögunnar sem kallaður er Heiðreksgátur. Sá kafli sögunnar sem orðið kemur fyrir í er týndur aftan af Hauksbók, sem geymir meirihluta hennar, og er bara til í uppskriftum frá 17. öld. Þar er orðið skrifað torfdýfill en tilvist/á milli r og d telur Ásgeir sanna að orðið var borið fram með d. Að vísu er handritið ekki skrifað beint eftir Hauksbókartextanum heldur eru einhverjir milliliðir. Þess vegna er ekki öruggt að d hafi verið í orðinu í Hauksbók. Orðið hefur því breyst úr torðyfill í tordýfill einhvem tíma á árabilinu 1350 til 1600 en Ásgeir heldur að það hafi verið fremur fyrr en síðar á þeim tíma, því breytingin sé mjög trúlega vegna d- framburðarins. Hér virðist mér að vísu sem Ásgeir sé kominn í hring í röksemdafærslunni. Ef breyt- ingin torðyfill > tordýfill á að sýna aldur d- framburðar er ekki hægt að segja að breytingin hafi gerst snemma vegna þess að d-framburður sé svo gamall. Ásgeir heldur áfram og bendir á að á Suður- landi sé til orðmyndin tortýfill sem hann heldur fram að sé ekki tilviljunarkennd afbökun. Rök hans byggjast á hliðstæðu dæmi. Breytingin If, rf > Ib, rb kemur til sögunnar á 14. öld og var aldauð um mestallt land um 1800. í Orðabók Björns Halldórs- sonar koma fyrir orðin gilbrur og gilprur með sömu merkingu. Upphaflega var samt / í stofn- inum, gilfróttur kemur t.d. fyrir í orðabók Jóns úr Grunnavík. Ásgeir heldur svo fram þeirri hugmynd að þegar Ib, rb framburður var að víkja aftur fyrir // rf framburði hafi Ib, rb geymst í nokkrum sjaldgæfum orðum. I sjaldgæfu orðunum var !b, rb svo breytt í Ip, rp því hljóðaraðimar Ib, rb til- heyrðu ekki lengur hinu almenna hljóðkerfi mál- sins, en Ip, rp gerðu það hins vegar. Ásgeir bendir á að svipað gæti hafa gerst með orðið tortýfill. Ásgeir lýkur svo röksemdafærslu sinni með því að benda á tvö orð sem gætu verið til komin á sama hátt. Þó viðurkennir hann að þessi dæmi séu ákaflega varasöm og þeim sé lítið að treysta, hann nefni þau frekar til útskýringar en að þau séu örugg. 6.0 Niðurstöður Að öllu þessu sögðu er ekki annað hægt en að segja að líklegt sé að Ásgeir hafi haft rétt fyrir sér. D- framburður þekkist víða á landinu og ekki er hægt að sjá nein tengsl milli svæðanna. Þótt varðveisla sé misgóð og tíðni einkennisins mismikil, er erfitt að gera ráð fyrir að það hafi breiðst út frá einum einangruðum stað til annarra einangraðra staða. Besta skýringin er þess vegna sú að þau hafi öll verið áður hluti af víðáttumiklu útbreiðslusvæði. Það virðist þó vera erfitt að segja til um hvar d-framburður hafi fyrst látið á sér kræla. Aldur d-framburðarins er líka erfitt að segja nokkuð um svo áreiðanlegt sé. Þó má telja líklegast að hann hafi komið upp um aldamótin 1400, ef marka má rök Ásgeirs og Halldórs Armanns um hliðstæður við sambærilegar breytingar í málinu á þeim tíma. Dæmi sem Ásgeir tekur urn rím og orðmyndir sem rök fýrir háum aldri d-framburðar væru ekki veigamikil ein og sér en þegar þau benda í sömu átt og annað er ágætt að hafa þau með. 53
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Mímir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.