Bændablaðið - 16.05.2024, Síða 10
10 Fréttir Bændablaðið | Fimmtudagur 16. maí 2024
Kristín Linda og Inga Geirs
ÆVINTÝRI Á SPÁNI OKTÓBER 2024
UPPBYGGJANDI OG SKEMMTILEG KVENNAFERÐ
Kristín Linda, sálfræðingur
hjá Huglind, og Inga Geirs,
fararstjóri hjá Skotgöngu,
verða með sína vinsælu
sjálfsræktar-, útivistar-,
göngu- og skemmtiferð
til Albír á Spáni
18. október í haust.
Bókanir hafnar,
beint flug, gott hótel
og hálft fæði.
SJÁLFSRÆKT
OG GANGA
Vikuferð fyrir konur 40 ára og eldri,
uppskrift sem hefur algjörlega sannað sig enda þétt
og gefandi dagskrá. Inga sér um fararstjórn, skoðunarferðir
og gönguferðir og Kristín Linda heldur sín vinsælu
uppbyggjandi lífsgæðanámskeið, bæði hagnýt og skemmtileg.
Vikuferð sem hlotið hefur frábær meðmæli.
Stakar konur sérstaklega velkomnar en líka kjörið fyrir vinkonur.
Meira en 300 konur hafa nú þegar nýtt sér þessa dagskrá
og margar komið aftur og aftur, það segir sína sögu!
Samkennd, gleði, upplifanir, uppbygging og ný kynni,
vilt þú koma með?
NÁNARI UPPLÝSINGAR OG BÓKANIR: www.skotganga.co.uk
inga@skotganga.co.uk - kristinlinda@huglind.is
KS hagnaðist um
5,5 milljarða króna
– Sterk staða samvinnufélagsins
Hagnaður Kaupfélags Skagfirðinga
af rekstri félagsins á árinu 2023
reyndist rúmlega 5,5 milljarðar
króna.
Samkvæmt ársreikningi
samstæðunnar, sem samanstendur af
Kaupfélagi Skagfirðinga og nítján
dótturfélögum, námu eignir í lok árs
2023 um 88,6 milljörðum króna.
Eiginfjárstaða fyrirtækisins
styrktist á milli ára og nam 58,5
milljörðum króna í árslok 2023 en
skuldir um 30 milljörðum kr.
Rekstrartekjur KS árið 2023
jukust um 8,7% milli ára og námu
rúmlega 19 milljörðum króna á
árinu 2023. Rekstrarhagnaður fyrir
afskriftir hjá KS jókst um 18,7%
milli ára og nam 2,5 milljörðum
króna. Tekjur samstæðunnar allrar
námu 52,6 milljörðum króna en
rekstrarhagnaður fyrir afskriftir jókst
um 4,1% og nam 8,4 milljörðum
króna.Samkvæmt samstæðu-
reikningnum jukust langtímakröfur
milli áranna 2022 og 2023 um
tæpan milljarð króna, fóru úr um 1,4
milljörðum í um 2,4 milljarða. Undir
þessu heyra skuldabréfalán sem eru
bæði verðtryggð og óverðtryggð,
gefin út til allt að sex ára og bera allt
að 14% vexti samkvæmt skýringu.
Dótturfélög og eignarhlutir
í hlutdeildarfélögum
Starfsemi Kaupfélags Skagfirðinga
er víðtæk. Samvinnufélagið heldur
úti mikilli atvinnustarfsemi í
Skagafirði og víðar. Helstu rekstrar-
einingar eru, að því er fram kemur
í samstæðureikningnum, mjólkur-
afurðastöð, kjötafurðastöð, bifreiða-
verkstæði,vélavekstæði, dagvöru-
verslun og byggingavöruverslun
í Skagafirði.Einnig stunda önnur
félög samstæðunnar fjölbreyttan
rekstur víðar um land, s.s. við slátrun,
kjötvinnslu, flutninga, framleiðslu á
fóðri, byggingavörum sem og við
eignarhalds- og fjárfestingastarfsemi.
Samvinnufélagið á FISK-Seafood
ehf., sem rekur útgerð og fiskvinnslu á
Sauðárkróki og Grundarfirði. Þá á KS
einnig meirihluta Fóðurblöndunnar hf.
sem á Bústólpa. Meðal annarra dóttur-
félaga er Esja Gæðafæði, sem vinnur
bæði íslenskt og erlent kjöt og selur
til endursöluaðila, Sláturhús Hellu
og Sláturhús KVH á Hvammstanga,
Norðlensk orka ehf., sem á Héraðsvötn
ehf., Vogabær og Vörumiðlun, sem
rekur flutningaþjónustu víðs vegar
um land.
Metafkoma VSV
Samstæðan á ýmsa verðmæta
eignarhluti í hlutdeildarfélögum.
Þar á meðal 32,9% hlut í Vinnslu-
stöðinni í Vestmannaeyjum en
vegna leiðréttingar á svokölluðum
þýðingarmun hækkaði eignarhlutur
KS í félaginu um tæplega 1,8 milljarða
króna skv. ársreikningi. Vinnslustöðin
skilaði metafkomu á árinu 2023 og á
aðalfundi þess þann 4. apríl sl. var
samþykkt að greiða hluthöfum 900
milljóna króna arð.
KS á 20% hlut í Mjólkur sam-
sölunni en einnig hluti í félögum sem
tengjast útflutningi á skyri. Einnig
á Kaupfélagið 19,5% í Þórsmörk
ehf., sem á Árvakur hf., sem rekur
Morgunblaðið. KS á einnig að öllu
leyti Nýprent ehf., sem rekur Feyki,
fréttablað Norðurlands vestra.
Árið 2023 bættust við eignar-
haldsfélögin Gleðidagur og
Gleðiskopp á lista hlutdeildarfélaga
sem samstæðan á eignarhluti í.
Einnig á KS fjárfestingafélag sem
fer með eignarhald á verðbréfum í 11%
eignarhlut í hollenska skipafélaginu
Cargow B.V., en sá hlutur var
bókfærður á tæpan milljarð króna
árið 2022.
Tvö ný í aðalstjórn
Aðalfundur Kaupfélags Skag firðinga
fór fram 23. apríl sl. í Menningarhúsinu
Miðgarði.
Mannaskipti urðu í stjórn félagsins
á fundinum. Atli Már Traustason, Ytri-
Hofdölum og Ásta Pálmadóttir, Sauðár-
króki, voru kjörin í aðalstjórn í stað
Guðrúnar Sighvatsdóttur og Péturs
Péturssonar. Aðrir í stjórn eru Bjarni
Maronsson, stjórnarformaður, en hann
hefur setið í stjórn frá árinu 1989,
Herdís Á. Sæmundardóttir, Sigríður
Gunnarsdóttir, Hjörtur Geirmundsson
og Þorleifur Hólmsteinsson. Varamenn
í stjórn eru Guðrún Lárusdóttir, Ingi
Björn Árnason og Viggó Jónsson.
Fjöldi félagsaðila Kaupfélags
Skagfirðinga í árslok 2023 var 1.277
og starfsmenn KS eru 233 talsins. /ghp
Kaupfélag Skagfirðinga á nítján dótturfélög. Mynd / ghp
Tíðni listeríusýkinga í Evrópu fer
vaxandi og samkvæmt greiningum
á fyrstu þremur mánuðum þessa
árs eru vísbendingar um að svo sé
einnig hér á landi.
Greint er frá þessari stöðu í
Fréttabréfi sóttvarnalæknis sem
gefið var út nú í apríl. Þar kemur
fram að dauðsföll af völdum
matarborinna sýkinga í Evrópu
árin 2018 til 2022 hafi oftast tengst
listeríusýkingum. Í helmingi tilvika
voru dauðsföll rekin til listeríu, alls
125 tilfelli. Salmonella kom þar
næst, en 32 dauðsföll voru rakin til
slíkra smita.
Gengur oftast fljótt yfir
Tekið er fram að slíkar sýkingar
lýsi sér oftast sem uppköst eða
niðurgangur sem gangi fljótt yfir,
en geti þó leitt til alvarlega veikinda
og jafnvel dauða.
Í umfjölluninni kemur fram að
listería sé baktería sem finnist víða
í náttúrunni, bæði í vatni og jarðvegi
sem og hjá fjölda dýrategunda.
Einkennandi fyrir listeríu sé að
bakterían þrífst vel við kælingu og
háan saltstyrk við geymslu matvæla
en fjölgi sér síðan í líkama fólks.
Listería valdi nánast aldrei sjúkdómi
hjá fullfrísku ungu fólki, nema
barnshafandi konum.
Helsta smitleiðin með matvælum
Ákveðnir þættir auki mjög líkur á
sýkingu, svo sem hár aldur og ónæmis-
bæling. Listeríusýking geti leitt til
fósturláts eða nýburadauða ef móðir
smitast á meðgöngu og sýkillinn
berst til fósturs í gegnum fylgjuna.
Helsta smitleið listeríu sé með
matvælum sem ýmist hafa verið
menguð frá upphafi eða í fram-
leiðsluferli og þá helst mjúkir og
ógerilsneyddir ostar, hrátt grænmeti
eða salat, kaldreyktur eða grafinn lax
og niðursneitt kjötálegg. Listeríusmit
séu oft stök tilfelli en listería geti
þó valdið hópsýkingum sem nái til
margra landa.
Á Íslandi hafa tveir til fimm
einstaklingar greinst árlega á
Íslandi með listeríusmit, en á fyrstu
þremur mánuðum þessa árs hafa
þegar greinst fimm einstaklingar.
Er í umfjölluninni sagt mikilvægt
að lögð verði áhersla á forvarnir,
vöktun og rannsóknir mögulegra
hópsýkinga.
Nauðsynlegt sé að fræða áhættu-
hópa um tengsl listeríu við ákveðin
matvæli sem borin eru fram óelduð.
Mikilvægt sé að hafa í huga að
jafnvel matvæli sem eru framleidd
í samræmi við gæðastaðla geti
valdið sýkingu hjá fólki með skert
ónæmiskerfi. /smh
Matvælaöryggi:
Listeríusýkingar vaxandi vandamál
Helstu smitleiðir listeríu eru með
óelduðum matvælum, eins og
mjúkum ógerilsneyddum ostum.
Mynd / bbl
Fjórir íslenskir bjórar frá KHB
brugghúsi á Borgarfirði eystra
hlutu bresk bjórverðlaun fyrir
skemmstu.
KHB brugghús sendi fjóra
bjóra í keppnina London Beer
Competition í vor og fengu þeir
allir verðlaun. Lagerbjórinn Naddi
fékk gullverðlaun og bjórarnir
Gellivör, Jólanaddi og Borghildur
silfurverðlaun.
„Þessi keppni er mikils metin
í alþjóðlegum bjóriðnaði og við
einkunnagjöf er horft til gæða,
gilda og umbúða,“ segir Helgi
Sigurðsson, annar eigandi KHB
Brugghúss á Borgarfirði eystra.
London Beer Competition miði
að því að viðurkenna og fagna
bjórvörumerkjum sem neytendur
raunverulega vilja kaupa, þ.e.a.s.
smásalar, verslanir og veitingastaðir.
„Við erum himinlifandi yfir
árangri okkar í keppninni. Naddi,
dökki lagerbjórinn okkar, fékk
gullverðlaun og samtals 92 stig.
Fyrir gæði hlaut hann 95 stig.
Gellivör, IPA-bjórinn okkar, var
einnig mjög nálægt gullinu, með
samtals 88 stig, þar af 89 stig fyrir
gæði. Einnig hlutu Jólanaddi, sem
er jólaútgáfa af Naddanum, og
Borghildur, ljósi lagerinn okkar,
góða dóma og silfurverðlaun,“
segir Helgi.
KHB brugghús leggur, að sögn
Helga, áherslu á gæðahráefni og
kaupir það frá Tékklandi, frá litlu
fjölskyldufyrirtæki sem starfað
hefur í rúm hundrað ár.
„Við vitum því að gæðin eru í
lagi. Við vinnum einnig náið með
tékkneskum bruggmeisturum
með mikla reynslu og Þorsteinn
Brandsson, yfirbruggmeistari KHB,
hefur náð góðum tökum á faginu
og er með allt á hreinu hvað þetta
varðar. Allir bjórarnir okkar eru
ferskvara, ógerilsneyddir og án
viðbætts sykurs og rotvarnarefna,“
segir Helgi jafnframt. /sá
Bjórinn Naddi sló
í gegn í London
Hjónin Auður Vala Gunnarsdóttir og Helgi Sigurðsson á Egilsstöðum eiga
og reka KHB-brugghús auk gisti- og veitingareksturs á Borgarfirði eystra.
Mynd / Aðsendar
Bjórar í bauk frá KHB brugghúsi.