Bændablaðið - 13.06.2024, Síða 33

Bændablaðið - 13.06.2024, Síða 33
33ViðtalBændablaðið | Fimmtudagur 13. júní 2024 falla til við pelsun eru send í brennslu en Björn er bjartsýnn á að þau muni nýtast til kjötmjölsframleiðslu þegar búið verður að byggja upp aðstöðu til þess. Ein hliðarafurð minkaræktar er minkaolía. Einar Einarsson, sem var með minkabú á Skörðugili, sá um að skrapa og þurrka skinn fyrir nokkra minkabændur og framleiddi handáburð og aðrar snyrtivörur úr fitunni sem féll til. Björn segir óljóst hvert framhaldið verði af því, en Einar hætti í minkarækt um áramótin. Þegar skinnin hafa verið þurrkuð eru þau send á uppboðshús erlendis. Áður en saumaðar eru úr þeim flíkur þurfi kaupendurnir að senda skinnin í sútun. Vann í verksmiðju Volvo Björn er uppalinn í Holti þar sem pabbi hans og tveir föðurbræður ráku kúabú sem var býsna stórt á þess tíma mælikvarða. „Mér leiddist alltaf að mjólka kýr. Allt hitt var gaman, vélarnar og það dót, svo ég fór í Vélskóla Íslands í fjögur ár og aðeins á sjó,“ segir Björn. Hann fluttist svo til Svíþjóðar ásamt fyrrum eiginkonu sinni og börnum þar sem Björn vann í verksmiðju Volvo í Skövde í Vestur-Gautlandi. „Við ætluðum að vera þar í tvö ár, en þau urðu fjórtán.“ Árið 1995 sneri fjölskyldan heim og tók við búskap í Holti. Árið 2001 var ráðist í að breyta fjósinu í lausagöngu og var settur upp róbót síðasta haust þar sem áður var mjaltagryfja. Aðspurður um hver upplifunin sé af því að vera með mjaltaþjón segir Björn að vinnan sé ekki eins líkamleg og ekki bundin eins þröngum tímaramma. Áður hafi hann mjólkað hátt í hundrað kýr sem hafi tekið samtals fimm tíma á dag. Nú séu kýrnar í kringum sjötíu, sem er nálægt því mesta sem einn mjaltaþjónn ræður við, og felist vinnan helst í þrifum, eftirliti og gjöfum. Nú stendur til að Hanna og Ólafur kaupi sig inn í kúabúið í Holti. Þau eru í kringum fertugt og segist Hanna ekki alltaf hafa stefnt að búskap, á meðan Ólafur var með kindur þegar þau kynntust. Hún er menntuð ljósmyndari og hefur sinnt ýmsum verkefnum því tengt undanfarin ár, á meðan Ólafur hefur starfað við smíðar og verið launamaður á kúabúinu í Holti. Björn vonast til að ná einu góðu tímabili í minkaræktinni á ferlinum, en hann verður 65 ára í haust og segist ekki yngjast upp úr þessu. Aðspurður hvar hann sjái sig eftir fimm til tíu ár kveðst Björn ætla að vera áfram viðloðandi staðinn á meðan hans er þörf og heilsan leyfir. „Ég verð svona próventukarl eins og það var kallað í gamla daga. Það var þannig að menn keyptu kotið og gamli bóndinn fékk að búa þar á meðan hann lifði.“ Mælir með starfi bóndans Helstu verkefni Björns um þessar mundir sem nýr formaður loðdýra- bænda eru að skipuleggja verkun á skinnunum í haust og leggja á ráðin um flutning afurðanna á uppboðshúsið í Finnlandi í vetur. Hann þurfi jafnframt að eiga í samskiptum við WelFur, sem sé alþjóðlegt vottunarkerfi um velferð loðdýra. Björn segir landbúnað og byggð í sveitum vera mikilvæga fyrir landið. Bæði til að viðhalda mannlífi í dreifðari byggðum og til að framleiða innlend matvæli. Hann segist geta mælt með starfi bóndans, þrátt fyrir að það sé tímafrekt og gefi fá færi á fríum. „Þetta er mjög góður lífsstíll ef menn eru ekki að drepast úr áhyggjum af peningum,“ bætir hann við glettinn. Best sé þó að fólk prófi eitthvað annað fyrst. „Þá veit maður af hverju maður er ekki að missa þó maður sé fastur í búskap.“ Í Holti í Flóa er rekið blandað bú með mjólkurframleiðslu og minkarækt. Þá eru einnig nokkrar kindur á bænum. Nýjasta minkahús landsins er í Holti. Það stendur rétt norðan við bæjartorfuna og rúmar 1.500 læður. Hanna Siv Bjarnardóttir og Ólafur Már Ólafsson standa hér með Elínu dóttur sinni. Þegar minkunum er slátrað fara þeir í svokallaðan drápskassa sem hefur verið fylltur af útblæstri bensínvélar. Björn segir ferlið ekki valda minkunum streitu. Björn tók við kúabúinu í Holti árið 1995. Áður hafði hann menntað sig í Vélskóla Íslands og starfað í verksmiðju Volvo í Svíþjóð. Minkarnir fá aðgang að hálmi til að gera þétt hreiður í búrin.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.