Bændablaðið - 13.06.2024, Page 43

Bændablaðið - 13.06.2024, Page 43
43SkoðunBændablaðið | Fimmtudagur 13. júní 2024 Nú í byrjun júnímánaðar fengu landsmenn yfir sig sannkallað vetrarveður sem varði í marga daga. Á sama tíma var sauðburði að ljúka hjá flestum sauðfjár- bændum og merar í óðaönn að kasta folöldum. Tímasetningin var því afar óheppileg fyrir slíkt veður svo ekki sé meira sagt. Bændur eru harðgerðir eftir átök við óblíð náttúruöfl og vanir að bjarga sér sjálfir. Þeir eru flestir lítið fyrir það að biðja um aðstoð, en bæta frekar við sig verkum. Þannig hafa þeir lagt í mikla vinnu við að bjarga búfénaði í hús eða önnur skjól og hugsa um hann meðan óveðrið stóð yfir. Vegna mismunandi aðstæðna og veðurs er líklegt að sums staðar hafi verið erfiðara við þetta að eiga en annars staðar. Þá er líklegt að eitthvað af fé hafi króknað í veðurofsa, kulda og blautum krapasnjó þrátt fyrir baráttu bænda þeim til bjargar og að eftirköst vegna undanvilltra lamba, júgurbólgu og annarra krankleika verði nokkur. Það var ánægjulegt fyrir bændur að verða vitni að því að lögregla, Almannavarnir, Bændasamtökin, stjórnvöld og fleiri skyldu láta sig málið varða og nú þegar hefur undirritaður fengið símtal frá átakshópi sem myndaður var þar sem spurt var út í stöðuna á okkar bæ og boðin aðstoð ef á þyrfti að halda. Það ber að þakka og passar vel við það sem bændum var sagt eftir óveðrið og fjárfellinn sem fylgdi í september 2012. Þá var gefið út að bændur skyldu vera óhræddir við að hringja í Neyðarlínuna 112 ef hætta væri á ferðum og þeir réðu ekki við aðstæður einir. Þá yrði allt gert til að senda aðstoð. Þá mun átakshópnum ætlað að vinna áfram að samantekt upplýsinga um tjón bænda af óveðrinu ásamt þeim miklu kalskemmdum í túnum sem hafa komið upp á ákveðnum svæðum. Þá væri frábært og upplífgandi fyrir sauðfjárbændur ef ráðherra tæki sig til og færi að tillögum umboðsmanns Alþingis og gerði upp misræmi í greiðslum fyrir ull sem upp kom fyrir nokkrum árum vegna breytinga uppgjörstímabils ullar. Því miður stefnir í dag í að Bændasamtökin, fyrir hönd sauðfjárbænda, þurfi að fara í mál við ríkið til að knýja fram leiðréttingu sem þó er nú þegar viðurkennd af hálfu ríkisins með réttarsátt við nokkra bændur á síðasta ári. Nú þegar óveðrinu er loks lokið líta sauðfjárbændur bjartari augum til framtíðar. Innan tíðar fer fé til fjalla, fræ í flög og áburður á tún. Lífið kemst í fastar skorður á ný og gott er að hafa jákvæðni að leiðarljósi í framhaldinu. Styðjum hvert annað og hvetjum til dáða. Tökum höndum saman og berjumst fyrir tilverurétti íslensks landbúnaðar og bændastéttar, bæði gagnvart óblíðu veðurfari og ekki síður stjórnvöldum. Enginn bóndi. Enginn matur. Ekkert líf. Höfundur er sauðfjárbóndi og ýmislegt fleira. ÖFLUG VÖKVADRIFIN VERKFÆRI FRÁ HYCON DÖNSK GÆÐASMÍÐI OG ÁRATUGA REYNSLA Tangarhöfða 1, 110 Reykjavík / 551 5464 / wendel.is Brothamrar Kjarnaborvélar Steypusagir Vatnsdælur GlussadælurNiðurrekstarhamrar Kynning verður á Fusion Vario Plus! Léttar veitingar í boði! Viðburður hefst kl. 16 og lýkur kl. 19 SLÁTTUHÁTÍÐ - 14. JÚNÍ! Gunnbjarnarholti Shane McKenna frá McHale verður á staðnum! McHale tækin verða í aðalhlutverki en til sýnis verða einnig tæki frá öðrum framleiðendum, má þar nefna Bergmann heyhleðsluvagn, Holaras stæðugerðarbúnað, Giant liðléttinga, Sulky áburðardreifara og Hispec keðjudreifara. Smiðjuvellir 9 300 Akranes 430 6600 akur@akur.is AKURShús - íbúðarhús og frístundahús Afhent óuppsett í einingum eða uppsett á byggingarstað – Allt eftir þínum óskum Kynntu þér húsabæklinginn okkar á akur.is og fáðu verðáætlun í húsið þitt Íslensk hönnun & framleiðsla ára 1959- 2024 Sendu okkur línu á akur@akur.is Högni Elfar Gylfason. Og svo kom vorið Frelsinu fegnar að loknu óveðri. Mynd / Högni Elfar

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.