Bændablaðið - 13.06.2024, Qupperneq 49

Bændablaðið - 13.06.2024, Qupperneq 49
49SkoðunBændablaðið | Fimmtudagur 13. júní 2024 REYKJAVÍK AKUREYRI 590 5100 klettur.is Rafmögnuð gæði Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann 30. maí sl. að vísa skipulagstillögu vegna nýs deiliskipulags fyrir íbúðarsvæði í landi Ytri-Varðgjár í Eyjafjarðarsveit, í auglýsingu skv. 1. mgr. 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagssvæðið nær yfir 18,5 ha. svæði í landi Ytri-Varðgjár sem í gildandi Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-2030 er að mestu skilgreint sem íbúðarsvæði ÍB12 og að litlum hluta sem skógræktar- og landgræðslusvæði. Nýja deiliskipulagið gerir ráð fyrir 35 lóðum fyrir íbúðarhús og verður aðkoma að svæðinu frá Veigastaðavegi. Skipulagstillagan er aðgengileg á sveitarskrifstofu Eyjafjarðarsveitar, Skólatröð 9 Hrafnagilshverfi, milli 13. júní og 25. júlí 2024, á heimasíðu sveitarfélagsins, www.esveit.is og á vef Skipulagsgáttar, www.skipulagsgatt.is undir málsnúmeri 623/2023. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að koma athugasemdum á framfæri til 25. júlí 2024. Hægt er að koma athugasemdum á framfæri undir málinu á vef Skipulagsgáttar með innskráningu rafrænna skilríkja. Frekari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9, 605 Akureyri, eða í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is. Skipulags- og byggingarfulltrúi Ytri-Varðgjá íbúðarsvæði, Eyjafjarðarsveit Auglýsing deiliskipulagstillögu Eigum til sölu nokkra notaða 40 feta frystigáma, sem seljast sem einangraðir gámar. Tilvaldir fyrir þá sem vantar auka geymslupláss til lengri eða skemmri tíma. REYNSLUMIKLIR GÁMAR TIL SÖLU Sími 568 0100 | stolpigamar.is um að heimila kjötafurðastöðvum að renna saman án eftirlits byggist á misskilningi og ófullnægjandi upplýsingum. Eftirlit Samkeppniseftirlitsins í samrunamálum beinist ekki síst að því að ganga úr skugga um að viðskiptavinir, í þessu tilviki m.a. bændur, verði ekki fyrir tjóni af skertri samkeppni og eftir atvikum njóti þeirrar hagræðingar sem að er stefnt. Í ljósi þessara ríku hagsmuna bænda þekkist hvergi að samrunaeftirliti sé kippt úr sambandi, líkt og hér hefur verið gert. Ekkert nágrannaríkja okkar telur það til hagsbóta fyrir bændur og neytendur að afurðastöðvar geti runnið saman án nokkurrar hindrunar og myndað einokun. Mikilvægt er því að endurskoða undanþáguheimildina að þessu leyti. 5. Ganga þarf úr skugga um að undanþáguheimildirnar sam- ræmist alþjóðaskuldbindingum Í álitsgerð dr. Carl Baudenbacher, sem áður er getið, er því slegið föstu að Ísland hafi fullt frelsi til að setja eigin reglur um framleiðslu og vinnslu kjötafurða og annarra afurða sem sérstaklega eru undanskilin EES-samningnum, þ.m.t. varðandi undanþágur frá samkeppnisreglum. Um þetta er enginn ágreiningur, svo ég viti til. Ísland er augljóslega ekki bundið af því hvernig ESB eða Noregur haga sínu regluverki í landbúnaði. Það er hins vegar staðfest í álitsgerðinni að svigrúmið takmarkast við þá starfsemi og afurðir sem sérstaklega eru undanskildar EES- samningnum. Nefna má að tilteknar landbúnaðarafurðir falla innan gildissviðs EES-samningsins. Staðreyndin er sú að við breytingar atvinnuveganefndar á frumvarpinu var ekki gengið úr skugga um þetta. Í bréfi matvælaráðuneytis til atvinnuveganefndar Alþingis, frá 8. apríl sl., er bent á að „áhrifamat hins upprunalega frumvarps nær ekki til svo víðtækra breytinga líkt og ákveðið var að gera á lögunum í meðförum þingsins“. Það er því ekki búið að svara þeirri spurningu hvort undanþágu- heimildirnar, eins og þær eru útfærðar, sé samþýðanlegar EES-samningnum. Nýlega hefur verið greint frá því að Eftirlitsstofnun EFTA hafi snúið sér til matvælaráðuneytisins og óskað eftir skýringum á þessum breytingum á búvörulögum. Gera verður kröfu til þess að Alþingi taki skýra afstöðu til þessa. 6. Hlusta þarf eftir sjónarmiðum bænda sjálfra Allt of margir virðast nálgast umræðuna þannig að hafa þurfi vit fyrir bændum. Ég legg til að stjórnvöld tali meira við bændur sjálfa í staðinn fyrir að tala yfir þá. Þetta hefur Samkeppniseftirlitið reynt að gera, m.a. með því að láta framkvæma viðhorfskannanir þar sem bændur lýsa persónulegri afstöðu sinni til álitaefna. Þessar kannanir færa okkur heim sanninn um að bændur eru upp til hópa framsæknir og vilja nýta krafta samkeppninnar sér í hag. Þar birtist oft afstaða sem er ólík þeirri sem talsmenn og aðrir þjónar hagsmunasamtaka vilja halda á lofti. Gangi ykkur allt í haginn. Höfundur er forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Ég legg til að stjórnvöld tali meira við bændur sjálfa í staðinn fyrir að tala yfir þá ...
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.