Bændablaðið - 13.06.2024, Blaðsíða 57

Bændablaðið - 13.06.2024, Blaðsíða 57
57Líf & starfBændablaðið | Fimmtudagur 13. júní 2024 Hún Edda Margrét er hress og lífleg stelpa sem hefur gaman af fimleikum og að fara í tækin í Legolandi! Nafn: Edda Margrét. Aldur: 6 ára. Stjörnumerki: Bogmaður. Búseta: Hafnarfjörður. Skóli: Er í Víðistaðaskóla. Skemmtilegast í skólanum: Textíll og frímínútur. Áhugamál: Dýr og blóm. Tómstundaiðkun: Fimleikar og selló. Uppáhaldsdýr: Panda og lemúr. Uppáhaldsmatur: Pitsa með pepperoni. Uppáhaldslag:Wrecking Ball. Uppáhaldslitur: Svartur og bleikur. Uppáhaldsblóm: Fjóla. Uppáhaldsmynd: Super Mario Bros. Fyrsta minningin: Fyrsta ferðin í Húsdýragarðinn 2 ára. Hvað er það skemmtilegasta sem þú hefur gert?: Fara í tækin í Legolandi. Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór?: Vörður í húsdýragarði. Setja skal inn tölur frá 1-9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um. Erfinginn: Blómastúlka Fjöldi briddsspilara tók þátt í keppni á landsmóti UMFÍ fyrir 50 ára og eldri um síðustu helgi í Vogum á Vatnsleysuströnd. Átján sveitir börðust um gullið þótt á landsmóti sé iðkaður sá forni ungmenna- félagsvandi sem lýsti mönnum ljósið í sveitum landsins forðum, að mestu varði að vera með. Sveit UMF Grindavíkur bar sigur úr býtum. Eitt af fallegri spilum sem umsjónarmaður bridds- þáttarins rakst á í mótinu átti Ásta Sigurðardóttir, sem spilaði í kvennasveitinni Valdísi. Hún var sagnhafi í 4 spöðum í austur í eftirfarandi spili: Gegn fjórum spöðum spilaði suður út laufaás. Skipti svo yfir í tígulgosa til að koma í veg fyrir að tígultaparar færu í hjartað sem suðri sýndist líklegast að brotnaði 3-3. Af sögnum að dæma gat vel hugsast að sagnhafi væri með sex spaða. Ásta hugsaði sig um eftir tígulsvissið. Kannski ályktaði hún að gosinn gæti verið blekkispil, enda líklegra að suður væri með útistandandi punkta eftir að hafa komið inn á sagnir með laufsögn. Ásta drap heima, spilaði laufi og trompaði með drottningu. Tók tvo efstu í hjarta og trompaði smátt heima í hagstæðri 3-3 hjartalegu. Nú spilaði hún spaða á ás og spilaði svo fjórða hjartanu, norður má ekki trompa og kastaði tígli. Ásta kastaði þá síðasta laufinu heima, suður drap með blankri tíu og spilaði meira laufi. Ásta drap, lagði niður spaðakóng og spilaði nú tígli á kónginn. Í tveggja spila endastöðu átti Ásta heima níuna blanka í spaða og tígulhund. Í blindum var fríhjarta og tígull. Hún spilaði nú síðasta hjartanu úr blindum og norður sá sína sæng uppreidda með gosa og trompfimmu. Tíundi slagurinn kom með framhjáhlaupi. 420 og 10 impar inn. NS-karlarnir teknir í bakaríið! Gaman er að geta þess að sveit Valdísar var ekki eina hreina kvennasveitin í mótinu, enda stendur innreið kvenna í briddsinn yfir svo um munar. Mun fleiri konur eru í hópi nýliða hjá Bridgesambandi Íslands þessa dagana en karlar. Verður spennandi að sjá áhrif innrásarinnar til lengri tíma, því sannarlega er bridds íþrótt fyrir öll kyn og alla aldurshópa. Matthías Imsland, framkvæmdastjóri Bridgesambands Íslands, hefur rýnt í áhorf á síðustu leiki Íslandsmótsins í sveitakeppni sem fóru fram í lok apríl. Leikirnir voru sýndir á briddsforritinu Bridge Base Online eins og flestar helstu viðureignir í briddsheiminum þessa dagana. „Það er mjög áhugavert að skoða áhorfstölur á BBO frá Íslandsmótinu í sveitakeppni. Það horfa yfir 6.500 manns á einstök spil þegar topparnir eru teknir í hverjum leik. Í heildina erum við sennilega að tala um vel yfir 10.000 áhorfendur,“ segir Matthías. Allt bendir til vaxandi áhuga landsmanna á bridds. Um 20.000 Íslendingar eru samkvæmt athugunum virkir í spilamennsku en nýliðun hefur slegið öll met síðustu misseri. Næsta stórverkefni í íslensku briddslífi er Evrópumótið. Ísland sendir lið í opnum flokki og kvennaflokki. Eftir öfluga frammistöðu í æfingaleik gegn hollensku Evrópumeisturunum á dögunum ríkir bjartsýni og spenna í herbúðum briddsara hvað varðar opna flokkinn og kannski koma íslensku valkyrjurnar sterkar inn einnig. Áfram Ísland! Umsjón: Björn Þorláksson, bjornthorlaksson@gmail.com Valdísarkonur tóku karla í bakaríið Björn Þorláksson. Það er fátt skemmtilegra í skák en að fórna drottningu fyrir mát. Það er þó sjaldgæft að sú staða komi upp og þó nokkur dæmi eru um að skákmenn, sem hafa fengið upp þannig stöðu, missa af því og sjá það ekki fyrr en eftir á, þegar skákinni er lokið. Aðalsteinn Leifs Maríu- son, sem á ættir sínar að rekja í Hlíðskóga í Bárðardal, tefldi stutta en snarpa skák fyrir skákfélagið Goðann á Íslandsmóti skákfélaga í mars árið 2023. Skákin endaði með því að Aðalsteinn mátaði andstæðing sinn í aðeins 15 leikjum, eftir að hafa boðið drottninguna sína á silfurfati í 12. leik. Andstæðingur Aðalsteins þáði hana ekki, enda mjög svo grunsamlegt þegar þú færð svona boð upp í hendurnar. Hann valdi hins vegar ekki besta leikinn í kjölfarið og flæktist í þvinguðu mátneti þar sem hann þáði reyndar drottninguna á endanum, en þá var skákin töpuð. Þetta var fyrsta kappskák Aðalsteins, en hann hafði fram að því einungis teflt atskákir eða hraðskákir. Skák þessi vakti þó nokkra athygli meðal liðsfélaga hans því það er sjaldgæft að bjóða upp á drottningarfórn fyrir mát og hvað þá í sinni fyrstu kappskák. Aðalsteinn tefldi aðra ekki ósvipaða skák í október 2023 en reikna má með umfjöllun um hana síðar. Ef lesendur Bændablaðsins luma á áhugaverðum skákum geta þeir haft samband. Umsjón: Hermann Aðalsteinsson, lyngbrekku@simnet.is Aðalsteinn Leifs Maríuson (Goðinn) var með svart. Svartur á leik. 12….Dh3! (Hvítur má ekki drepa drottningu svarts þar sem Bh4 er mát) 13. fxe3 - Bh4+ 14. g3 - Dxg3+ 15. hxg3 - Bxg3 mát! Eftir 13. leik hvíts verður tap alltaf niðurstaðan. Drottningarfórn fyrir mát Hermann Aðalsteinsson. Létt Miðlungs Þung Þyngst Viltu taka þátt? Hafðu samband. sigrunpeturs@bondi.is SUDOKUÞRAUTIR HUGARÍÞRÓTTIR Norður J543 Q65 Q32 Q96 Vestur AQ AK1042 K9876 7 Austur K9876 87 A104 854 Suður 102 J93 J5 AKJ1032 Aðalsteinn Leifs Maríuson. (t.h.) Tryggvi Ingason, sálfræðingur og briddsmeistari að vestan, mátti sín lítils í norður meðan valkyrjurnar í Valdísi náðu framhjáhlaupum og skærabrögðum við briddsborðið líkt og enginn væri morgundagurinn. Ásta Sigurðardóttir og Valgerður Eiríksdóttir voru ánægðar að loknu dagsverkinu á landsmóti UMFÍ.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.