Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.07.2024, Blaðsíða 3

Læknablaðið - 01.07.2024, Blaðsíða 3
L ÆKNABL AÐIÐ 2024/109 347 Hlíðasmára 8 201 Kópavogi sími 564 4104 Útgefandi Læknafélag Íslands Ritstjórn Helga Ágústa Sigurjónsdóttir, ritstjóri og ábyrgðarmaður Berglind Jónsdóttir Halla Viðarsdóttir Lilja Sigrún Jónsdóttir Oddur Ingimarsson Ólöf Jóna Elíasdóttir Sæmundur Rögnvaldsson Tölfræðilegur ráðgjafi Sigrún Helga Lund Ritstjórnarfulltrúi Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@lis.is Blaðamaður Hávar Sigurjónsson Auglýsingar Ingvar Freyr Ingvarsson ingvar@lis.is Umbrot Margrét E. Laxness melax@lis.is Prófarkalestur Aðalsteinn Eyþórsson Upplag 1850 Áskrift 24.900,- m. vsk. Lausasala 2490,- m. vsk. Prentun og bókband Litróf Vatnagörðum 14 104 Reykjavík Dreifing Íslandspóstur Höfðabakka 9 110 Reykjavík © Læknablaðið Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og geyma efni blaðsins á rafrænu formi, svo sem á netinu. Blað þetta má eigi afrita með neinum hætti, hvorki að hluta né í heild, án leyfis. Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar (höfundar, greinarheiti og útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna: Medline (National Library of Medicine), Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation Reports/Science Edition, Scopus og Hirsluna, gagnagrunn Landspítala. The scientific contents of the Icelandic Medical Journal are indexed and abstracted in Medline (National Library of Medicine), Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation Reports/Science Edition and Scopus. ISSN: 0023-7213 Læknablaðið THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL Sjúkratryggingar neita að greiða fyrir einfaldar bakaðgerðir sem lina sársauka fólks sem kemst ekki að á Landspítala. Hulda Brá Magnadóttir taugaskurðlæknir segir það ljótan blett á íslensku samfélagi. ■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Hlustið á viðtalið á hlaðvarpi Læknablaðsins Sjúklingum gert að greiða brjósklosaðgerðir úr eigin vasa „Það stríðir gegn öllum mínum prinsippum fyr- ir íslenskt þjóðfélag að fólk þurfi að borga fyrir bakaðgerðirnar hjá okkur úr eigin vasa,“ segir Hulda Brá Magnadóttir, sem ásamt Guðrúnu Guðmundsdóttur býður fyrstu skurðaðgerðir við brjósklosi utan Landspítala. Báðar eru þær heila- og taugaskurðlæknar. Báðar koma þær erlendis frá til að gera aðgerðirnar. Hulda Brá er fyrsta íslenska konan sem út- skrifaðist úr sérgreininni og Guðrún önnur. Landspítalinn hefur ekki bolmagn í aðgerðirnar en Sjúkratryggingar neita að borga. „Að standa fyrir framan manneskju sem er að bugast úr verk út af brjósklosi, vitandi það að á klukkutíma, eða innan við það, geti ég breytt lífi manneskjunnar og hún labbað út án þess að vera skökk, og getur farið í sturtu, hugsað um börnin sín og unnið — ég get það ekki.“ Þær Guðrún ætla að halda sínu striki og skera í Orkuhúsinu þrátt fyrir að ríkið taki ekki þátt í kostnaði. „Fólk dregur ekki milljónir upp úr vasanum til að borga fyrir svona aðgerðir. Að hugsa sér að manneskja í venjulegu starfi, ör- yrki, einstæð móðir eða faðir, þurfi að taka lán til að borga fyrir svona aðgerð vegna verkja sem hamla því að gera nokkurn skapaðan hlut, er ljótt í íslensku samfélagi. Það á ekki að eiga sér stað,“ segir Hulda Brá í viðtali við Læknavarpið, hlað- varp Læknablaðsins. Hún lýsir því hvernig þær hafi verið orðnar spenntar að koma heim eftir kall spítalans og búist við betra veðri hjá Sjúkratryggingum. Þær hafi því ákveðið að hefja leika í von um breytta afstöðu ríkisins, enda biðlistarnir lengri en sagt sé. „Fyrst þarf skjólstæðingurinn að komast til sérfræðings til að láta meta sig og ef hann kemst ekki til sérfræðings er enginn biðlisti. Hann er því algjörlega falskur.“ Hulda hafði séð 20 manns þegar viðtalið var tekið og nú hefur fyrsta aðgerðin verið gerð. „Það vilja allir aðgerð og fólk fór grátandi frá mér.“ Þær Guðrún áætli að verðið sé 1,2 milljónir króna fyrir hverja aðgerð, sem kalli á svæfingalækni, skurðlækni, skurðhjúkrunarfræðing og aðstöðu og búnað. „Ég vil ekki vera að selja neitt og á ekki að gera það. Þetta er spurning um lífsgæði og aðgerð sem ég get gert, veitt og hjálpað fólki.“ Hulda Brá og Guðrún eru báðar í fullu starfi erlendis. Hún í Bandaríkjunum og Guðrún í Danmörku. „Við ætlum að reyna að skiptast á og dekka viku og viku og sjá hvernig staðan þróast.“ Hulda Brá segir frá störfum sínum ytra í Læknavarpinu, þegar hún kom heim og vann á Landspítala. Af hverju hún fór aftur út eftir fjög- ur ár þar, þótt hana langaði að búa á Íslandi. Hulda Brá Magnadóttir segir frá ferli sínum og því hvernig hún verður nú, ásamt Guðrúnu Guðmunds- dóttur, fyrst til að skera við brjósklosi utan Landspítala. Mynd/gag Verða að forgangsraða á Landspítala „Tilvísanir til heila- og taugaskurðlækna vegna bakvandamála hafa margfaldast á síð- ustu árum og spítalinn annar ekki vaxandi eftirspurn eftir mati skurðlæknis,“ segir Þór- ir Svavar Sigmundsson, framkvæmdastjóri skurðlækningaþjónustu og skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu á Landspítala. Vegna skorts á skurðstofurými og fjölgunar annarra flóknari aðgerða á heila og mænu, séu gerðar færri brjósklosaðgerðir en áður. „Sjúklingum er forgangsraðað eftir ein- kennum og ekki settir á formlegan biðlista nema raunhæft sé að framkvæma aðgerð inn- an 4-6 vikna.“ Flestir sjúklingar með brjósklos fái verkjalyf og sjúkraþjálfun með ágætum árangri. Einhverjir þeirra hefðu að hans mati mögulega haft gagn af aðgerð fyrr, sem lík- lega hefði bæði flýtt bata og bætt lífsgæði. Þórir segir talsvert færri brjósklosaðgerðir á hverja 100 þúsund íbúa hér en í nágranna- löndunum. Þar séu flestar aðgerðirnar gerðar utan sérhæfðra sjúkrahúsa. Okkar besta fólk leggur traust sitt á okkur Okkar besta fólk í sjúkraflutningum hefur reitt sig á þjónustu okkar um árabil. Þau þurfa að geta treyst því að öll tæki og búnaður sé örugglega í lagi og virki eins og til er ætlast. Höfðabakki 7, 110 Reykjavík | expert.is

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.