Læknablaðið - 01.07.2024, Page 42
386 L ÆKNABL AÐIÐ 2024/110
Þegar þrengdi að Læknablaðinu vetur-
inn 1976 og erfitt var að prenta blaðið
hérlendis fóru Örn Bjarnason, þá rit-
stjóri blaðsins, og Jóhannes Tómasson
rit stjórnarfulltrúi á fund ritstjórnar
danska læknablaðsins, Ugeskrift for Læ-
ger. Í gegnum persónuleg tengsl við
ritstjóra danska blaðsins, Povl Riis, en
einnig Jens Andersen. Handsalað var
samkomulag um að Læknablaðið yrði
prentað í Kaupmannahöfn á vegum
danska læknafélagsins. Við það tæki-
færi gaf danska ritstjórnin Læknablaðinu,
trédáta sem félagarnir Örn og Jóhannes
komu heim á skrifstofu blaðsins og er
dátinn því merkistákn um „björgun“
Læknablaðsins af dönsku ritstjórninni
fyrir tilstilli Arnar.
Povl var mikill Íslandsvinur og ferð-
aðist mikið um land okkar, jafnvel meira
en margir Íslendingar hafa gert. Reyndar
komu bæði Jens og Povl til Íslands, en
ferðir Povls voru reglulegar og til marks
um tengsl hans og vináttu við Ísland átti
hann einnig þátt í endurreisn Nesstofu,
sem sagan segir að sé honum að þakka.
Povl Riis var líflæknir dönsku hirðar-
innar og sennilega einn frægasti læknir
Dana. Hann var mikill frumkvöðull í að
stofna dönsku vísindasiðanefndina.
Hann alþjóðavæddi blaðið og í sam-
vinnu við náinn hóp ritstjóra British
Medical Journal (BMJ), Lancet, New Eng-
land Journal of Medicine og fleiri stofn-
aði hann The International Committee of
Medical Journal Editors í Vancouver með
það að markmiði að staðla ritun vísinda-
greina og heimildalista, þannig að ekki
þyrfti að umrita efnið við innsendingu
til blaðanna.
Enn í dag leggur Vancouver-sáttmál-
inn staðalinn fyrir ritun vísindagreina,
siðfræði rannsóknarvinnu og höfundar-
rétt um allan heim. Povl Riis var einnig
Meira um danska dátann
https://www.laeknabladid.is/tolublod/2014/06/nr/5206Povl
https://ugeskriftet.dk/nyhed/nekrolog-povl-riis-og-uge-
skrift-laeger
Sagan af danska dátanum
Helga Ágústa Sigurjónsdóttir
ritstjóri, innkirtlalæknir
í hópi norrænna ritstjóra sem tóku
saman Helsinki-sáttmálann (Helsinki II-
Deklarationien) 1975. Tengsl Læknablaðsins
við ritstjórn danska læknablaðsins er
enn gjöfult, sem og tengsl við ritstjórnir
norsku, sænsku og finnsku læknablað-
anna.
Það er við hæfi að minnast þessa nú
þegar Örn Bjarnason fyrrverandi rit-
stjóri Læknablaðsins er nýfallinn frá og
þakka honum enn og aftur fyrir hans
óeigingjarna starf í þágu Læknablaðsins. Í
þessu blaði birtast einnig minningarorð
um Örn eftir Vilhjálm Rafnsson, fyrr-
verandi ritstjóra Læknablaðsins, og sam-
starfsmann.
Heilsu- og sálfræðiþjónustan óskar eftir geðlækni sem starfar með fullorðnum.
Um getur verið að ræða starfshlutfall eða skilgreint samstarf.
Megin starfsstöð stofunnar er á Akureyri. Veitt er staðar- og fjarþjónusta fyrir allan aldur og er um að
ræða miðstöð heilsueflingar þar sem eru 24 fagaðilar í þverfaglegu teymi. Alls eru 9 sálfræðingar á stofunni,
þrír hjúkrunarfræðingar, iðjuþjálfi, félagsráðgjafi o.fl. fagstéttir.
Sjá upplýsingar á www.heilsaogsal.is
Nánari upplýsingar hjá Sigrúnu V. Heimisdóttur, framkvæmdastjóra í netfanginu
sigrun@heilsaogsal.is eða í síma 8623252.