Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.07.2024, Blaðsíða 34

Læknablaðið - 01.07.2024, Blaðsíða 34
378 L ÆKNABL AÐIÐ 2024/110 Hrefna Dögg Gunnarsdóttir lektor við Háskóla Íslands segir gert ráð fyrir ætluðu samþykki í nýrri evrópskri reglugerð um heilbrigðisgagnasvæði. Auka eigi sjálfsákvörðunarrétt sjúklinga yfir eigin gögnum, en á sama tíma samræma skráningu heilbrigðisupplýsinga í gagnasöfnum, sem og aðgang og notkun þeirra í öðrum tilgangi en að veita heilbrigði sþjónustu. Ísland þurfi að undirbúa sig. ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson Algjör stefnubreyting og nú gert ráð fyrir ætluðu samþykki Árlegt málþing Vísindasiðanefndar var haldið í apríl síðastliðnum þar sem fjall- að var um upplýsingagjöf til þátttakenda í vísindarannsóknum um atriði sem varða heilsu þeirra. Á málþinginu fjallaði Hrefna Dögg Gunnarsdóttir meðal annars um nýja reglugerð Evrópusambandsins um eitt heilbrigðisgagnasvæði en hún er nýskip- aður lektor við lagadeild Háskóla Íslands eftir að hafa búið og starfað í Danmörku undanfarin ár. Áður bjó hún með annan fótinn á Svalbarða um fimm ára skeið þar sem eiginmaður Hrefnu, Wesley Farnsworth, vann að doktorsverkefni í jöklasögu. „Þá var komið að mér og við fluttum til Kaupmannahafnar. Þar vann ég að doktorsverkefni um lögbundnar kröf- ur til gagnsæis þegar heilbrigðisgögn eru notuð í vísindaskyni og kenndi við lagadeild Kaupmannahafnarháskóla,“ segir hún. Nú eru þau flutt heim, Wes starfar sem rannsóknarsérfræðingur við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands og Hrefna er nýtekin við stöðu lektors við lagadeild HÍ. „Þessi nýja reglugerð Evrópusam- bandsins felur í sér að nú verður gert ráð fyrir ætluðu samþykki rannsóknarþátt- takenda um að fá mikilvægar (significant) upplýsingar um eigið heilsufar. Það þýð- ir jafnframt að þátttakandi í rannsókn þarf að óska sérstaklega eftir því að fá ekki slíkar upp lýsingar,“ segir hún. „Þetta er algjör stefnubreyting frá því sem verið hefur. Til þessa hefur þurft að afla samþykkis rannsóknarþátttak- enda til að veita þeim heilsufarsupplýs- ingarnar,“ segir Hrefna og bætir við að breytingin sé kannski helst sambærileg við þær reglur sem gilda hér á landi um líffæragjafir. Hvernig á að meðhöndla gögnin? Hrefna tekur fram að reglugerðin sé enn í formlegu ferli innan Evrópusambands- ins þótt undirbúningur hafi staðið yfir um hríð. „Það er verið að reyna að auka sjálfs- ákvörðunarrétt sjúklinga yfir eigin gögn- um, en á sama tíma samræma skráningu heilbrigðisupplýsinga í gagnasöfnum, sem og aðgang og notkun þeirra í öðrum tilgangi en að veita heilbrigðisþjónustu,“ segir hún. „Að því er varðar upplýsingagjöf til þátttakenda í vísindarannsóknum kem- ur einnig fram að nánari útfærsla á því hvernig upplýsingar verða veittar rann- sóknarþátttakendum verða háðar lands- rétti hvers ríkis og því er mikilvægt að hefja undirbúning hér á Íslandi. Ekki síst vegna þess að í fyrirliggjandi drögum að reglugerðinni segir að hún hafi gildi fyrir EES-löndin og þar af leiðandi fyrir Ísland.“ Þarna blasa við tvö meginverkefni að sögn Hrefnu. „Annars vegar að ákveða framtíðarskipan málaflokksins og hins vegar að taka afstöðu til þess hvernig skuli meðhöndla rannsóknarniðurstöð- ur sem þegar eru til og upplýsingar úr vísindarannsóknum sem að hófust eða fengu leyfi á grundvelli þess lagaum- hverfis sem nú gildir. Í þessu samhengi kunna rannsóknarþátttakendur að hafa skrifað undir samþykkisyfirlýsingu sem kveður á um að þau muni ekki fá neinar einstaklingsbundnar upplýsingar um heilsufar sitt,“ segir hún. „Fólk gæti val- ið hvaða upplýsingar það vill fá og hverj- ar ekki.“ Hrefna bendir einnig á mikilvægi þess að tryggja að heilsufarsupplýs- ingarnar ‚ferðist‘ eingöngu í gegnum heilbrigðisstarfsfólk sem lýtur lögbund- inni þagnarskyldu. „Með því á ég við að tryggt sé að heilsufarsupplýsingarnar

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.