Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.07.2024, Blaðsíða 14

Læknablaðið - 01.07.2024, Blaðsíða 14
358 L ÆKNABL AÐIÐ 2024/110 R A N N S Ó K N beinandi varðandi forvarnir og lýðheilsu þar sem hægt væri að draga úr nýgengi með markvissum forvarnaraðgerðum og koma þannig í veg fyrir að spáin raungerist. Styrkleikar og veikleikar Helstu styrkleikar þessarar rannsóknar liggja í gæðum þeirra gagna sem aflað hefur verið í Krabbameinsskrá frá árinu 1954. Krabbameinsskráin er lýðgrunduð og telst 99% þekjandi.26,27 Spáin byggist einnig á upplýsingum frá Hagstofunni22 og NORDCAN,16 sem samanstanda einnig af lýðgrunduðum upp- lýsingum þar sem áreiðanleiki og réttmæti gagna hefur verið tryggt.18,28 Styrkleikar hennar felast einnig í þeim nýjungum sem beitt er í greiningaraðferðum sem taka mið af íslenskum aðstæðum auk þess sem hér eru tekin inn nýrri gögn en eru aðgengileg annarsstaðar. Spá um fjölda lifenda hefur ekki verið gerð aðgengileg á Íslandi áður og er hér í fyrsta sinn sett fram sem háspá, lágspá og miðspá sem byggja á mismunandi forsendum. Eins og með aðrar spár þarf að taka þessari spá með fyrir- vara. Helstu óvissuþættir í spá um fjölda krabbameinstilfella varða það hvaða breytingar verða á nýgengi af 100.000 íbúum ásamt því hvernig mannfjöldinn þróast. Hér er fyrst og fremst gert ráð fyrir óbreyttu nýgengi. Til samræmis við það sem höf- undar NORDPRED mæla með,19 var Nordpred-líkanið notað fyrir krabbamein í lungum vegna þess hve mikið hefur dregið úr tóbaksreykingum. Ekki er mælt með að nota Nordpred fyrir stóru meinin, eins og brjóst, blöðruhálskirtil og ristil- og enda- þarmskrabbamein, því þar hefur verið í gangi ýmist skipulögð lýðgrunduð skimun eða óskipulögð skimun í stórum stíl og miklar sveiflur í greiningarvirkni. Til dæmis spáði Nordpred 50% aukningu á krabbameini í blöðruhálskirtli fram til 2040 vegna mannfjöldabreytinga, en að á móti kæmi 61% lækkun vegna lækkandi áhættu. Sú spá byggist á þeirri miklu nýgeng- islækkun sem varð frá árinu 2005 og er hugsanlega bæði til komin vegna minnkandi notkunar á PSA-mælingum og jafn- vel ákveðinnar mettunar í greiningum þar sem PSA-mælingar höfðu verið mikið notaðar undanfarna áratugi.29 Ekki er hægt að reikna með að þessi nýgengislækkun haldi áfram. Lítilsháttar ósamræmi var í nýgengistímabili og mann- fjöldatölum milli útreikninga okkar, sem byggðu á líkani um óbreytt nýgengi, annars vegar, og útreikninga sem byggðu á NORDCAN hins vegar. Í fyrrnefnda tilvikinu var miðað við síðasta útgefna tímabil krabbameinsskrár (2018-2022), mann- fjöldatölur miðuðust við sama tímabil og notuð var nýjasta mannfjöldaspá Hagstofu Íslands. Í NORDCAN er hins vegar gengið út frá lokaárinu 2021 fyrir nýgengistölur og mann- fjöldaspáin þar er eldri en tölur Hagstofu sem notaðar voru fyrir Ísland, og Norrænu ráðherranefndarinnar30 sem notaðar voru í samanburði milli Norðurlandanna. Spá 1 um fjölda lifenda er einföld spá og er einungis byggð á fjölda á lífi í árslok 2022 og mannfjölda í árslok 2040. Eðli málsins samkvæmt fjölgar lifendum meira en nýgreindum, því gefur spá 1 lægsta mögulega gildi. Í spá 2 og 3 er byggt á þróun síðustu ára fyrir fjölgun lifenda en ekki kafað dýpra í fæðingarárganga, breytta áhættuþætti og framfarir í meðferð. Smæð þjóðarinnar er veikleiki, hún veldur miklum tilvilj- unarsveiflum í öllum tölum. Til að auka stöðugleikann var ekki unnið með tölur fyrir stök ár heldur meðaltöl yfir fimm ára tímabil. Ályktanir Spáð er mikilli fjölgun krabbameina á Íslandi fram til ársins 2040. Það má rekja til mannfjöldaþróunar og þá helst vegna fjölgunar í elstu aldurshópum. Öldrun þjóðar og bætt lifun mun leiða til fjölgunar einstaklinga sem greinast, jafnframt fjölgun þeirra sem lifa lengi með krabbamein og krefjast oft áralangrar meðferðar. Ef þessi aukning gengur eftir, mun hún auka álag á heil- brigðiskerfið, sem brýnt er að bregðast við. Hægt er að nota spána til að undirbúa heilbrigðiskerfið til að mæta þessari auknu þjónustuþörf, en ekki síður til að draga úr líkunum á því að hún raungerist. Hægt væri að draga úr þessari aukn- ingu með því að auka enn frekar forvarnir og fræðslu sem miðar að því að draga úr áhættuþáttum á borð við áfengis- og tóbaksnotkun, ofþyngd og hreyfingarleysi, svo dæmi séu tek- in. Eins væri hægt að auka hlutfall þeirra sem greinast með mein á fyrri stigum með markvissum skimunum og bæta þannig lifun.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.