Læknablaðið - 01.07.2024, Blaðsíða 38
Barnalæknaþjónustan til bjargar
Bætt þjónusta við veik börn og foreldra
þeirra var hvatinn að stofnun Barna-
læknaþjónustunnar ehf. haustið 1995.
Fram að því höfðu foreldrar aðeins átt
kost á að leita utan dagvinnutíma til
Læknavaktarinnar eða á bráðavaktir
sjúkrahúsanna. Hugmyndin var því sú
að gefa foreldrum kost á að leita álits
sérfræðings í barnalækningum utan
sjúkrahúsanna þegar um bráð veikindi
væri að ræða.
Skyndivaktir höfðu verið starfrækt-
ar við barnadeildir sjúkrahúsanna í
Reykjavík um árabil, en þær voru settar
á laggirnar eftir að skæður heilahimnu-
bólgufaraldur hafði geisað á árunum eft-
ir 1975. Á þessar vaktir var hægt að vísa
veikum börnum og foreldrar gátu í sum-
um tilvikum leitað þangað beint. Aðsókn
á skyndivaktirnar fór með tímanum vax-
andi og því oft löng bið eftir þjónustu
ef læknar á vakt þurftu að sinna öðrum
eða meira aðkallandi verkefnum.
Fyrr á árinu 1995 höfðu Kristleifur
Kristjánsson og Ólafur Gísli Jónsson
barnalæknar fundað með þáverandi
framkvæmdastjóra Domus Medica um
stofurekstur barnalækna þar á dag-
vinnutíma. Þeir vildu jafnframt bjóða
upp á tíma hjá barnalækni á kvöldin
og um helgar. Niðurstaðan var sú að
innréttað yrði húsnæði á 1. hæð Domus
Medica fyrir þessa starfsemi. Kristleif-
ur og Ólafur áttu síðan þá um sumarið
fundi með Tryggingastofnun ríkisins
þar sem þetta var kynnt og af hálfu TR
ekki gerðar athugasemdir við þau áform
að veita þjónustu utan dagvinnutíma.
Einnig studdi stjórn Læknafélags Íslands
þessar fyrirætlanir.
Stofnendur ellefu barnalæknar
Barnalæknaþjónustan ehf. var síðan
formlega stofnuð í byrjun október 1995.
Stofnendur voru 11 barnalæknar, al-
mennir og sérfræðingar í ýmsum undir-
greinum barnalækninga. Kristleifur var
kosinn framkvæmdastjóri og Ólafur
Gísli stjórnarformaður.
Starfsemin byrjaði mánudaginn 16.
október 1995 þegar fyrst var opið fram á
kvöld. Þá komu 4 sjúklingar en fór síðan
hratt fjölgandi. Frá upphafi hefur verið
opið kl. 17-22 virka daga og 11-15 um
helgar og alla frídaga ársins. Yfirleitt er
einn læknir á vakt og annar á bakvakt.
Foreldrar hringja og fá tíma á vaktinni
og er því aldrei löng bið eftir þjónustu
og ekki mikill fjöldi veikra barna á bið-
stofunni á hverjum tíma. Greiðsla fyrir
komu á vaktina hefur frá upphafi ver-
ið sú sama og fyrir almennt viðtal hjá
barnalækni á daginn.
Fyrstu árin kom mótframlag TR úr
sameiginlegum einingapotti fyrir sér-
fræðiþjónustu lækna utan sjúkrahúsa en
þegar starfsemi Barnalæknaþjónustunn-
ar óx var augljóst að gera þyrfti sérsamn-
ing um hana. Í samningi við TR 28. des-
ember 2001 var samið um einingafjölda
sem samsvaraði um það bil 11.000 kom-
um árlega og var það óbreytt í samningi
við Sjúkratryggingar Íslands 30. júní
2008. Með fólksfjölgun undanfarinna ára
hefur einingafjöldi aukist til samræmis
og samsvarar nú um það bil 12.000 kom-
um árlega. Þessi fjöldi reyndist fyrstu
árin vera nálægt þörfinni en í seinni tíð
er veruleg og vaxandi þörf á að auka
umsaminn einingafjölda.
Urðu að finna annan stað
Vorið 2021 kom í ljós að nær öll starfsemi
lækna í Domus Medica myndi hætta í
lok þess árs og var því nauðsynlegt að
finna stofurekstri barnalækna og starf-
semi Barnalæknaþjónustunnar annan
stað.
Samið var við eigendur húseignar-
innar að Urðarhvarfi 8 í Kópavogi og 800
fermetra húsnæði á 5. hæð A innréttað
fyrir stofurekstur barnalækna á daginn
og starfsemi Barnalæknaþjónustunnar
utan dagvinnutíma á sama hátt og verið
hafði í Domus Medica. Stofnað var nýtt
félag, Domus barnalæknar ehf., sem sér
um rekstur húsnæðisins.
Starfsemin hófst í Urðarhvarfi í árs-
byrjun 2022 og starfa þar nú barnalæknar
á eigin stofu á daginn auk fjögurra HNE-
-lækna en 25-30 barnalæknar deila með
sér Barnalæknaþjónustuvöktunum. Ólaf-
ur Gísli hefur verið formaður stjórnar
Frumkvöðlar í læknastétt
382 L ÆKNABL AÐIÐ 2024/110
Ólafur Gísli Jónsson
barnalæknir