Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.07.2024, Blaðsíða 46

Læknablaðið - 01.07.2024, Blaðsíða 46
390 L ÆKNABL AÐIÐ 2024/110 Reynir Tómas Geirsson Alþjóðleg samvinna á daginn og kertaljós um kvöld — Dagur í lífi nokkuð vel erns eftirlaunalæknis 07:45 Vakna eins og flesta daga svona bara þegar það gerist. Enginn morgun- fundur kl. 08.00 sem þarf að mæta á. Súrmjólk með morgunkorni og rúsínum plús kaffi og brauðsneið, hlusta á útvarp- ið. Allt rólegt. 09:20 Kominn af stað á bílnum til að kaupa slökkvitæki sem þarf í íbúð leigjanda míns. Endurnýjaði leigu- samninginn um daginn og áttaði mig á að þetta vantaði ásamt viðbótarreyk- skynjara til að hafa öryggismálin í lagi. 10:10 Leiðindarigning og rok. Ekki beint veðrið til að hjóla niður á Kvenna- deild. Tek strætó, enda erfitt að leggja bíl við spítalann. Hef fengið að vera á ágætri skrifstofu í kjallaranum frá því ég fór á eftirlaun. 78 ára karl er vel geymd- ur þar niðri. Þau segja á deildinni að ég sé í dagvistun. En þetta hefur bjargað mér eftir að ég missti eiginkonuna fyrir nær sex árum – eftir meira en hálfa öld af hamingju. Ég hef stað til að fara á yfir daginn. Hef getað sinnt rannsóknavinnu og nefndarstörfum fyrir heilbrigðis- yfirvöld þar sem reynsla og þekking fyrri ára kemur enn að notum. Klínískri starfsævi lauk fyrir tíu árum. Sakna ekki sjúklinganna. 10:30 Lít fyrst á netskeytin. Sé að starfsmaður landlæknis hringir eftir klukkustund og sný mér að skilaboðum frá kollega í Noregi. Ég hef unnið með honum að yfirlitsgrein um þungunarrof á Norðurlöndum. Hann átti frumkvæðið og frumvinnuna, en ég hef lagt sitthvað til, ekki síst í skrifunum. Greinin er að fara í gott bandarískt-alþjóðlegt tímarit. Vinn lokaleiðréttingar í „track changes“ með hliðsjón af ábendingum ritstjórans. Lærði að höndla svona þegar ég var sjálfur aðalritstjóri norræna tímaritsins í mínu fagi. Landlæknisembættið hringir á tilsettum tíma og ég skýri frá fram- gangi verkefnis sem þau báðu mig að vinna. 11:45 Held áfram með greinina og er að ljúka því þegar svengdin segir til sín kl. 13.00. Ágætt að fá sér hádegismat á Lans- anum. Elda þá ekki í kvöld. 13:20 Klára greinina, skrifa kollegan- um í Ósló og sendi allt til hans. Vonandi verður hún endanlega samþykkt til birtingar eftir „minor changes“. Undirbý með símtali og netskeyti komu klúbbs lækna frá Bretlandi í næstu viku. Að- stoða íslenskan kollega í undirbúningn- um. Hann fluttist til Skotlands fyrir löngu og er virkur meðlimur í klúbbn- um. Tvö netskeyti í viðbót, meðal annars vegna rannsóknaverkefnis. 14:20 Tek skutluna inn í Fossvog. Spjalla við gamlan nemanda sem er mér samferða í bílnum. Undirbý mig fyrir fund um mál sem varðar sérnám og sest í Blásali á 7. hæð. 15:00 Ég hef verið formaður svonefndr- ar mats- og hæfisnefndar í átta ár og sú reynsla nýtist nú á klukkustundar góð- um fundi til að finna lausn á ákveðnu vandamáli. Lausnin finnst. D A G U R Í L Í F I L Æ K N I S Reynir Tómas Geirsson stundar vísindin og heldur í tengslin þótt klínískri starfsævi hafi lokið fyrir áratug. Dagurinn er þéttskipaður. Mynd/gag 16:05 Geng úr Fossvognum heim í Safa- mýri í úðarigningu. Fær mér kaffisopa. Gott að slaka á. Læknablaðið er komið. Lít í það og sé pistilinn „Dagur í lífi …“ Get ég ekki skrifað um minn dag? 17:15 Fer til bróður míns. Hann var að taka til í geymslu þriðja bróðurins sem er kominn á hjúkrunarheimili. Við ræðum málið. Bjarga 101 árs gömlu guðfræðikveri sem pabbi fékk sem barn og merkti sér. Mágkonan býður mér að borða með þeim og ég þigg það með þökkum. 19:00 Kominn heim og slaka bara á. Les bók um Tyrkjaránið, enda nýkominn úr ferð til Marokkó þar sem sögulegur bær frá þeim tíma var meðal annars heim- sóttur. Skip ránsmannanna í Grinda- vík og við Bessastaði kom þarna að heimahöfn með fanga sína og góss eftir mánaðarferð frá Íslandi sumarið 1627. 21:30 Skrepp niður á Kvennadeild til að ná í gagnamöppur mats- og hæfisnefnd- ar sem ég ætla að skila til nýs formanns í heilbrigðisráðuneytinu á morgun ásamt USB-kubbi með öllum gögnum nefndar- innar. Nú má leggja alveg við dyr Kvennadeildar. Allt sett í skottið. 22:30 Kveiki á kertum eins og ég hef gert öll kvöld þegar ég er heima, í nær sex ár. Það þarf ekki fleiri ljós í stofunni. Sakna hennar alla daga. En er um leið þakklátur fyrir allt sem lífið hefur gefið mér.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.