Læknablaðið - 01.07.2024, Blaðsíða 43
L ÆKNABL AÐIÐ 2024/110 387
að pilla sig og aldrei barist í 10 ár til að
fela stelpu sem sonur hans væri skotinn
í en þrátt fyrir öll manndrápin fær mað-
ur á tilfinninguna að kviðan sé áróður
gegn styrjöld og hámarki nær hún með
setningunni „ἰητρὸς γὰρ ἀνὴρ πολλῶν
ἀντάξιος ἄλλων“ eða „því einn læknir
er jafngildi margra
manna“ en einnig er
minnst á lækna í Njálu
og í Íslendingasögum
er sá titill oftar hafður
um konur enda karlarn-
ir oft drepnir nei það
er nú ekki skýringin en
lesið hef ég Njálu um
40 sinnum þar sem mér
þykir útgáfa ÍF best og
af hljóðlesurum Einar
Ólafur Sveinsson sem skrifaði margt um
Njálu en söguna las maður fyrst nauð-
ugur í menntaskóla hjá kennara sem
þótti ekkert gaman
að kenna og var eins
og gamall stálþráður
þegar hann stóð við
töfluna og þuldi margt
mislíklegt en trúlega
var fátt óraunhæfara en
brúðhjónin Hildigunn-
ur og Kári í restina því
vandfundin tel ég sé
kona skapföst og skel-
egg sem líkleg er til að
giftast þeim sem drep-
ið hefur eiginmann
hennar en nú víkur sögunni vestur til
Breiðafjarðardala því ég lá allt sumarið
1989 á sófa í Búðardal og las Dægradvöl
sem er þriðja bókin sem ég hampa og
Gallinn við skáldsögur, einkum glæpa-
sögur, er að þær byggja á persónum sem
aldrei hafa verið til og er því erfitt að fá
áhuga á þeim enda hallast ég að bókum
sem fjalla um meintar sögulegar persón-
ur eða fólk sem gengið er út frá að ein-
hverju leyti að hafi verið til og skal ég
greina frá fjórum slíkum í aldursröð en
alls ekki stafrófsröð því fyrst kemur Ilí-
onskviða frá árunum kringum 750 fyrir
Krists burð þar sem rauði þráðurinn er
reiði Akkillesar út í Agamemnon konung
sem stal frá honum stelpu með tómum
yfirgangi og ofsa en þegar Akkilles tók
að halda að sér höndum gekk Grikkjum
ekki neitt í bardögum þar sem þeir voru
komnir til að frelsa drottningu Menelás-
ar konungs í Spörtu en hún var fegursta
kona í heimi og jafnan nefnd Helena
fagra sem París Alexander hafði rænt eft-
ir að Afródíta lofaði honum Helenu fyr-
ir að segja Heru og Aþenu að Afródíta
væri fallegri en þær en
spurningin hafði vakn-
að þegar epli var kastað
fyrir þær þrjár sem á
var letrað „τῇ καλλίστῃ“
eða „hinni fegurstu“
og kallast í dag þrætu-
eplið þannig að Aga-
memnon fór með 1184
skip og um hundrað
þúsund menn að hjálpa
Menelási bróður sín-
um að frelsa konuna
frá þessum flagara en
þetta segir Heródótus að sé hið mesta
bull og París og Helena hafi aldrei ver-
ið í Tróju því Príamus konungur hefði
strax fleygt Helenu í Menelás og sagt
Hvaða bækur hafa fylgt þér lengst,
þú hefur lesið oftast eða haft mest áhrif á þig?
Stefán Steinsson
geð-, heimilis- og bráðalæknir
Ilíonskviða, Afródíta
og dægradvöl í Búðardal
þótti spennandi þegar Gröndal ungur
flatmagaði út í móa og skaut fugla með
Hómer sér við hlið sem hann gluggaði í
milli fugla en mér fannst ég illa mennt-
aður svo þetta atti mér út í grísku- og
latínunám við HÍ en þegar ég ætlaði að
bæta við sanskrít fékk ég kvíðakast og
svo var Djunki en fjórða bókin er Íslenzk-
ur aðall sem ég átti að gera ritgerð um í
ML og las í jólafríinu þegar kom eldgos
í Leirhnjúk (það var 20. desember 1975)
svo allt fór í handaskolum og lítið vit
reyndist í ritgerðinni þótt ég þykist í dag
vita hvað ég myndi skrifa um því Þór-
bergur var skyldur föðurfólki mínu en
bænda- og sveitarígur var milli bæja og
frændrækni lítil þótt ég geti kinnroða-
laust fullyrt að hann skrifi þarna um
fólk sem var til og ég fái greiðlega áhuga
á svo ef ég ætti að skrifa um fimmtu
bókina væri það Svefnhjólið en nú sækir á
mig svefn og læt ég staðar numið.
Ég skora Sigrúnu Lilju Sigurgeirsdóttur, sérnáms-
lækni á geðdeild Landspítala að skrifa um sínar
bækur.
„...en þrátt fyrir öll manndrápin
fær maður á tilfinninguna að
kviðan sé áróður gegn styrjöld
og hámarki nær hún með setn-
ingunni „ἰητρὸς γὰρ ἀνὴρ
πολλῶν ἀντάξιος ἄλλων“
eða „því einn læknir er jafngildi
margra manna...“