Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.07.2024, Side 42

Læknablaðið - 01.07.2024, Side 42
386 L ÆKNABL AÐIÐ 2024/110 Þegar þrengdi að Læknablaðinu vetur- inn 1976 og erfitt var að prenta blaðið hérlendis fóru Örn Bjarnason, þá rit- stjóri blaðsins, og Jóhannes Tómasson rit stjórnarfulltrúi á fund ritstjórnar danska læknablaðsins, Ugeskrift for Læ- ger. Í gegnum persónuleg tengsl við ritstjóra danska blaðsins, Povl Riis, en einnig Jens Andersen. Handsalað var samkomulag um að Læknablaðið yrði prentað í Kaupmannahöfn á vegum danska læknafélagsins. Við það tæki- færi gaf danska ritstjórnin Læknablaðinu, trédáta sem félagarnir Örn og Jóhannes komu heim á skrifstofu blaðsins og er dátinn því merkistákn um „björgun“ Læknablaðsins af dönsku ritstjórninni fyrir tilstilli Arnar. Povl var mikill Íslandsvinur og ferð- aðist mikið um land okkar, jafnvel meira en margir Íslendingar hafa gert. Reyndar komu bæði Jens og Povl til Íslands, en ferðir Povls voru reglulegar og til marks um tengsl hans og vináttu við Ísland átti hann einnig þátt í endurreisn Nesstofu, sem sagan segir að sé honum að þakka. Povl Riis var líflæknir dönsku hirðar- innar og sennilega einn frægasti læknir Dana. Hann var mikill frumkvöðull í að stofna dönsku vísindasiðanefndina. Hann alþjóðavæddi blaðið og í sam- vinnu við náinn hóp ritstjóra British Medical Journal (BMJ), Lancet, New Eng- land Journal of Medicine og fleiri stofn- aði hann The International Committee of Medical Journal Editors í Vancouver með það að markmiði að staðla ritun vísinda- greina og heimildalista, þannig að ekki þyrfti að umrita efnið við innsendingu til blaðanna. Enn í dag leggur Vancouver-sáttmál- inn staðalinn fyrir ritun vísindagreina, siðfræði rannsóknarvinnu og höfundar- rétt um allan heim. Povl Riis var einnig Meira um danska dátann https://www.laeknabladid.is/tolublod/2014/06/nr/5206Povl https://ugeskriftet.dk/nyhed/nekrolog-povl-riis-og-uge- skrift-laeger Sagan af danska dátanum Helga Ágústa Sigurjónsdóttir ritstjóri, innkirtlalæknir í hópi norrænna ritstjóra sem tóku saman Helsinki-sáttmálann (Helsinki II- Deklarationien) 1975. Tengsl Læknablaðsins við ritstjórn danska læknablaðsins er enn gjöfult, sem og tengsl við ritstjórnir norsku, sænsku og finnsku læknablað- anna. Það er við hæfi að minnast þessa nú þegar Örn Bjarnason fyrrverandi rit- stjóri Læknablaðsins er nýfallinn frá og þakka honum enn og aftur fyrir hans óeigingjarna starf í þágu Læknablaðsins. Í þessu blaði birtast einnig minningarorð um Örn eftir Vilhjálm Rafnsson, fyrr- verandi ritstjóra Læknablaðsins, og sam- starfsmann. Heilsu- og sálfræðiþjónustan óskar eftir geðlækni sem starfar með fullorðnum. Um getur verið að ræða starfshlutfall eða skilgreint samstarf. Megin starfsstöð stofunnar er á Akureyri. Veitt er staðar- og fjarþjónusta fyrir allan aldur og er um að ræða miðstöð heilsueflingar þar sem eru 24 fagaðilar í þverfaglegu teymi. Alls eru 9 sálfræðingar á stofunni, þrír hjúkrunarfræðingar, iðjuþjálfi, félagsráðgjafi o.fl. fagstéttir. Sjá upplýsingar á www.heilsaogsal.is Nánari upplýsingar hjá Sigrúnu V. Heimisdóttur, framkvæmdastjóra í netfanginu sigrun@heilsaogsal.is eða í síma 8623252.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.