Börn og menning - 2024, Síða 52
50
b&m
efni og alþjóðlegt. Fylgst er með öllum rannsóknum
sem aðrar þjóðir sinna á þessu sviði.
Afa og ömmu-safnið
Þetta sérstaka safn var stofnað 1993 og alls leggja
um 170 aðilar til fé til að halda uppi starfsemi þess.
Þessi hópur, sem samanstendur af sjálfboðaliðum
sem skapa þennan vettvang og afla fjár til starfsemi
hans, ræður því hvaða bækur eru keyptar í Afa og
ömmu-safnið og að sjálfsögðu verða þá fyrir valinu
bækur sem voru í uppáhaldi hjá eldri kynslóðinni.
Á þennan hátt er kominn vettvangur til að tengja
saman kynslóðirnar.
Myndlist
Safnið tekur til varðveislu myndskreytingar og
myndasögur sem út koma í Finnlandi. Þetta dýr-
mæta og sérstaka safn telur nú 4500 frumgerðir
mynda sem birst hafa í finnskum barnabókum.
Þessar myndir eru mjög eftirsóttar til sýninga og
hægt að fá þær lánaðar til þess. Allar eru þær að-
gengilegar á vef safnsins og því auðvelt að raða þeim
saman í sýningar sem síðan eru settar upp. Sem
hliðarverkefni hafa svo verið gefin út póstkort með
þessum myndum sem höfð eru til sölu.
Vefsetur
Safnið býður upp á vefsetur með heimildaskrám
með mjög fjölbreyttum leitarmöguleikum, ná-
kvæmum efnislýsingum og skilgreiningum sem
gerir kennurum og öðrum sem vinna með börnum
auðvelt að finna efni sem hentar hverjum og einum.
Skrá yfir viðburði
Á vefsíðu safnsins má finna upplýsingar um alls kyns
viðburði sem eru á döfinni í mismunandi söfnum
og skólum í landinu, auk hugmyndabanka um sýn-
ingar og annað sem getur hvatt börn til lesturs og
um leið auðveldað kennurum og öðrum sem vinna
með börnum að finna skemmtilegar hugmyndir
sem hægt er að nota í kennslu.
Kennsla og námskeið
Á vegum stofnunarinnar eru haldin námskeið um
barnamenningu og kynningar á efni eða höfundum.
Stofnunin skipuleggur ýmiss konar viðburði, ým-
ist á eigin vegum eða í samstarfi við aðra, og getur
þannig unnið með t.d. kennurum eða foreldrum
sem eiga ung börn. Námskeið eru haldin í sam-
vinnu við aðrar stofnanir og jafnvel veittar gráður
eða diplómur fyrir þau sem hafa sótt vissan fjölda
námskeiða.
Útgáfa
Stofnunin gefur út sitt eigið tímarit með því
skemmtilega nafni ONNIMANNI. Í því birtast
umsagnir um barnabækur, en einnig ýmislegt rann-
sóknarefni sem unnið er af starfsfólki safnsins og
verkefni unnin af nemendum, meðal annars í bók-
menntafræði, auk hugmynda kennara um lestrar-
hvetjandi verkefni sem hafa virkað vel.
Tímaritið Onnimanni.