Skógræktarritið - 15.10.2010, Blaðsíða 10
9SKÓGRÆKTARRITIÐ 2010
Upp, þúsund ára þjóð,
með þúsund radda ljóð.
Upp allt, sem er og hrærist
og allt, sem lífi nærist.
Upp, harpa Guðs, þú heimur.
Upp, haf og landageimur.
Skín, sól, á sumarfjöll,
og signdu vatnaföll,
breið geisla guðvefsklæði
á grundir, skóg og flæði,
gjör fjöll að kristallskirkjum
og kór úr bjarga virkjum.
Það er sem þjóðskáldið Matthías Jochumsson sé sér-
staklega að lýsa Þingvöllum, þar sem liggja dýpstu
rætur þjóðarsögu, kristni og menningar, þegar hann
yrkir svo í sálmi, er flytur áþekk fagnaðarstef og lof-
söngur hans, ,,Ó, Guð vors lands“, sem varð þjóð-
söngur Íslendinga. Hann kallar þjóðlíf og lífríki til
lofgjörðar í heimshörpu Guðs í fagurri einingu, svo
að sól signi sumarfjöll og breiði geisla guðvefsklæða
á grundir, skóg og flæði og fjöll verði að kristals-
kirkjum og kór úr bjarga virkjum.
Skógrækt setur mark sitt á land og umhverfi og hefur
víðtæk áhrif á lífsfarnað og gæfu. Tré eru lífsundur
sem tengja jörð við himin. Jesús Kristur líkir sér enda
við trjástofn, er hann segir: ,, Ég er vínviðurinn, þér
eruð greinarnar,“ sem þarf þó að hirða vel og hreinsa
svo að lífsveigur hans streymi vel um þær.
Stofnun Skógræktarfélags Íslands á Alþingishá-
tíðinni 1930, í Furulundi, þar sem skógrækt hófst
hér á landi við aldamót þrjátíu og einu ári fyrr, er
dýrmætur þáttur í sögu Þingvalla og íslenskrar
þjóðar. Gróskumikið starf félagsins er táknmynd um
þá Guðsblessun og grómögn er héðan berast inn í
hjörtu þjóðar, menningu hennar og sögu. Sú mynd
sýnir að uppbygging og ræktun lands og lýðs sækja
sér þrótt í ættjarðarást og lífsvirðingu, er nærast af
uppsprettulindum lífgandi trúar sem á Þingvöllum
var lögtekin af lýði. Með þá mynd í huga fer ég með
bæn í Jesú nafni og færi með henni fyrir hönd ís-
lenskrar kristni og kirkju Skógræktarfélagi Íslands
heillaóskir á 8o ára afmæli þess:
Himneski faðir. Þökk fyrir Þingvelli og dýrmæta
sögu þeirra.
Blessa þá sem þjóðarhelgidóm með kristalskirkjum
fjalla og kór úr bjarga virkjum. Þökk fyrir gró-
anda sumars, orð þitt og anda sem gefa og næra
lífið. Þökk fyrir Furulund og aðra gróðurreiti, tré
og skóga landsins, sem minna á að líf nærist bæði
af krafti jarðar og himinljósi. Þökk fyrir uppbygg-
ingar- og skógræktarstörfin, er gagnast lífi og gleðja
það. Þökk fyrir Skógræktarfélag Íslands og einstök
skógræktarfélög sem tengjast því. Þökk fyrir 80 ára
sögu þess, er sýnir góðan árangur af hugsjónum og
fórnfúsum verkum stofnenda þess og frumherja, og
einurð, dug og dáðir þeirra, sem á eftir fylgdu og
sáu bjarta drauma rætast um vaxandi skóga og trjá-
lundi, er græða og fegra landið. Blessa þau, sem nú
halda uppi merkjum félagsins og marka stefnu þess.
Gef að blessun þín fylgi áformum þeirra og gjörðum,
svo að ræktunarstörfin séu árangursrík og útivistar-
og yndiskógum fjölgi á landinu og styrki lífsrætur
og miðli helgri návist þinni. Forða háska og ógnum
sem steðja að gróðurvinjum og lífríki sökum trúar-
skorts og lífsvirðingarleysis. Gef að íslensk þjóð
sæki sér þrótt til endurreisnar eftir efnahagsáföll og
raunir með því rækta skóga og græða upp landið og
hlúa vel að trúar- og menningararfi sínum og beri
þér í Jesú nafni gróskumiklar greinar á blómgandi
þjóðarmeiði.
Kom, Jesú Kristí trú,
kom, kom og í oss bú,
kom, sterki kærleiks kraftur,
þú kveikir dáið aftur.
Ein trú, eitt ljós, einn andi
í einu fósturlandi.
Guð faðir, lífs vors líf,
þú lands vors eilíf hlíf,
sjá, í þér erum, hrærumst,
og af þér lifum, nærumst,
þú telur minnstu tárin
og tímans þúsund árin.
Matthías Jochumsson