Skógræktarritið - 15.10.2010, Blaðsíða 80
79SKÓGRÆKTARRITIÐ 2010
kaffihléi loknu var haldið í gönguferð um stöðina
undir leiðsögn Rakul A. Dam, sem er ræktunarstjóri
stöðvarinnar. Byrjað var á að ganga um safn tegunda
ættuðum frá suðurhveli jarðar (S-Ameríku, Nýja-
Sjálandi, Tasmaníu), því næst farið um ræktunar-
svæðið, kíkt í gróðurhúsin og endað á sölusvæðinu,
en ekki var laust við að sumir ferðalanganna hafi
gjóað ágirndaraugum á sumar plönturnar sem þar
fengust.
Að skoðunarferðinni lokinni var tekinn smá
krókur að Norðurlandahúsinu í Þórshöfn, sem er
sérlega glæsileg bygging. Eftir stuttan stans þar var
svo haldið á Hotel Hafnia í hádegismat. Eftir matinn
skiptist hópurinn. Hluti hópsins valdi frjálsan tíma í
bænum til að skoða Þórshöfn á eigin vegum en hluti
fór með Tróndi og Tóri í trjáskoðunarferð um bæ-
inn. Gengið var frá Hotel Hafnia
til viðarlundarins í Gundadali og
kíkt á garða í leiðinni. Það var
einmitt í Gundadali sem skóg-
rækt hófst 1885, þannig að þetta
er elsti lundur Færeyja. Viðar-
lundurinn er sérlega skemmti-
legur – mjög fjölbreyttur gróður,
gott stígakerfi og í norðurenda
hans stendur Listasafn Færeyja.
Í gegnum lundinn rennur smá
á. Gengið var markvisst í það fyrir nokkrum árum
að gera ána heppilega fyrir fisk, með hreinsun og
aðlögun farvegar, og tókst það svo vel að má nú sjá
sprellandi silung í ánni. Eins og í mörgum öðrum
lundum á eyjunni féll töluvert af trjám í storm-
inum 1988 – einkum stafafura og sitkagreni. Var
hluti þeirra fjarlægður og timbrið notað í gólfið á
Listasafninu, en nokkur tré voru, að yfirlögðu ráði,
skilin eftir á hliðinni og eru það nú ein vinsælustu
trén í garðinum hjá ungviðinu, því þau eru fyrirtaks
klifurtré. Hópurinn safnaðist svo aftur saman niður
við höfn í Þórshöfn og hélt upp í rútuna og af stað
til Kirkjubæjar.
Í Kirkjubæ tók á móti hópnum Jóhan Hendrik W.
Poulsen, prófessor emeritus í færeyskri málfræði,
stundum kallaður „Orðabókin“. Kirkjubær var
Gengið um viðarlundina í Hoydal í góðviðrisþoku. Rakul A. Dam kynnir gróðrarstöðina fyrir hópnum.
Eitt vinsælasta tréð í viðarlundinum
hjá börnum að klifra í og gott dæmi
um hvernig snúa má því sem venju-
lega væri talið áfall í skógrækt upp í
jákvæðan hlut, Mynd: BJ