Skógræktarritið - 15.10.2010, Blaðsíða 76
75SKÓGRÆKTARRITIÐ 2010
bæði Ólafur Ragnar Grímsson og Margrét Dana-
drottning sett þar niður tré – Ólafur alaskaösp en
Margrét blóðbeyki. Landið hefur, frá því snemma á
6. áratugnum, verið í eigu sveitarfélagsins, en Skóg-
friðingarnevndin fer með umsjón skógarins. Skógur-
inn er nokkuð fjölbreyttur, meðal annars eru margar
þintegundir og töluvert af gullregni meðfram stíg í
gegnum lundinn. Frá viðarlundinum var svo gengið
niður í bæinn Kunoy, kíkt á eina litla vatnsmyllu
sem varð fyrir ferðalöngunum og því næst stigið upp
í rútu og haldið til Klakksvíkur.
Í Klakksvík var byrjað á að fara til kirkju og hlýða
á fræðslu Alex Sólstein, fyrrverandi skólastjóra, um
Christianskirkjuna, sem er glæsileg. Í kirkjunni er
geysistór altaristafla, sem var upphaflega freska í
dómkirkjunni á Viborg á Jótlandi. Þar lá hún hins
vegar undir skemmdum vegna raka frá vegg kirkj-
unnar, var færð yfir á léreft af ítölskum sérfræðing-
um og svo geymd á safni í Kaupmannahöfn. Þar segir
sagan að arkitektinn Peter Koch hafi séð hana, viljað
finna henni viðeigandi stað og hannað kirkjuna utan
um hana. Kirkjan er annars byggð með hefðbundnu
færeysku kirkjulagi og var vígð árið 1963.
Frá kirkjunni var svo haldið til viðarlundarins Úti
í Gröv utan við Klakksvík. Byrjað var á smá hress-
ingargöngu upp í hlíð að smáhýsi, þar sem ferða-
langarnir fengu úthlutað hádegissnarli til að gæða
sér á. Færeyingarnir hafa greinilega ekki viljað að
gestirnir yrðu svangir, því í pokanum voru tvær sam-
lokur af stærri gerðinni, banani og súkkulaðistykki.
Eftir matinn var svo haldið í göngutúr um svæðið.
Skógrækt í viðarlundinum hófst um 1980 og er
lundurinn alls rúmir 3 ha að stærð, ofan og neðan
vegar. Neðan vegar eru elstu gróðursetningarnar
og hærri trén og er þar mjög skemmtilegt útivistar-
svæði, sem er mikið nýtt af íbúum Klakksvíkur, en
meðal annars má finna þar tótt, talda frá víkingatím-
anum, en eftir er að framkvæma fornleifauppgröft.
Skógurinn er mjög fjölbreyttur og má meðal annars
finna þar nokkrar tegundir af lenju og elri, alaska-
ösp, reyni, skógarfuru, lerki, fjallafuru, hafþyrni og
margt fleira.
Því næst var haldið aftur til Klakksvíkur og farið
í smá gönguferð um bæinn að skoða trjágróður í
görðum, meðal annars garð listamannsins Edward
Fuglö og gamla læknagarðinn, en það var eini
garðurinn í Klakksvík með trjám þegar C.E. Flens-
borg var þar á ferðinni 1902. Eða
eins og segir í skýrslu hans: „Det
eneste Sted, hvor jeg paa Rejsen
saa Træer og træagtige Planter af
nogen Betydning, var i Distriks-
læge Djurhuus‘s have i Klaks-
vig, hvor Doktoren har ladet ud-
føre ret betydelige Arbejder“. Frá
görðum var svo haldið í heimsókn
til bruggverksmiðju Føroya Bjór,
þar sem þyrstir ferðalangarnir
fengu kynningu á starfseminni og
Á röltinu um skógarlundinn í Kunoy.
Tróndur Leivsson við viðarlundinn
Úti í Gröv. Þar er að finna töluvert af
áhugaverðum runnum. Takið einnig
eftir skemmtilegu skiltinu. Mynd: BJ