Skógræktarritið - 15.10.2010, Blaðsíða 45
SKÓGRÆKTARRITIÐ 201044
Inngangur
Ár og lækir eru mikilvægir manni og náttúru um
allan heim og þar er Ísland engin undantekning.
Afrennslissvæði eða vatnasvið hvers lækjar er það
landsvæði sem vatn safnast af til lækjarins, hvort
heldur það rennur neðanjarðar eða eftir yfirborði.
Erlendar rannsóknir hafa sýnt fram á að gróður á
vatnasviðum getur haft mikil áhrif á efnabúskap,
hitastig og stöðugleika lækjavistkerfa,1, 2, 3 ásamt því
að hafa áhrif á lífríki lækjanna, t.d. vatnagróður,
smádýr og fiska.4, 5, 6
Hér á landi hafa verið umtalsverðar framkvæmdir
í skógrækt og landgræðslu undanfarna áratugi. Um
103 þúsund hektarar hafa verið græddir upp, þar af
75 þús. ha með landgræðslu og 28 þús. ha með skóg-
rækt frá árinu 1990.7 Að stórum hluta hefur þessi
ræktun verið kostuð af stjórnvöldum. Samkvæmt
nýlegum skoðanakönnunum er almenningur ánægð-
ur með þessa ræktun og vill að meira sé gert.8, 9 Áhrif
þessara aðgerða á læki og ár sem renna um svæðin
hafa lítið verið skoðuð hérlendis. Hins vegar hefur
verið sett fram sú tilgáta að jarðvegs- og gróðureyð-
ing landsins á fyrri öldum hafi haft mjög neikvæð
áhrif á fæðuvefi í lækjum og ám hér á landi og að
hugsanlega hafi stórlega dregið úr fæðuskilyrðum og
þar með stofnstærð laxfiska við þær breytingar.10 Í
því samhengi má spyrja: Getur endurheimt gróður-
fars á vatnasviðunum leitt til breytinga í hina áttina?
Þau áhrif sem auðveldast er að koma auga á, þegar
skógur er ræktaður á lítt grónum svæðum, eru að
lífrænar leifar, t.d. lauf og dauður viður, eykst mjög
í lækjum.5 Þetta efni getur orðið fæða örvera og
smádýra, sem eru mikilvæg fæðuuppspretta fyrir líf-
verur ofar í fæðukeðjunni, svo sem fiska.11 Íslenskar
aðstæður, svo sem jarðvegur og gróðurfar, eru um
margt ólíkar því sem gerist í nálægum löndum,12
og því getur reynst erfitt að heimfæra niðurstöður
þaðan á Ísland. Verkefnið SkógVatn, sem hófst árið
2007, hafði það markmið að kanna áhrif skógrækt-
ar og landgræðslu á vistkerfi lækja. Einn liður í því
var rannsókn á niðurbroti lífrænna leifa og er hluti
þeirra niðurstaðna kynntur hér.
Staðarlýsing
Rannsóknin var gerð á níu afmörkuðum vatnasvið-
um á Fljótsdalshéraði á Austurlandi. Þrjú þeirra voru
Lauf í læk:
flutningur laufs í læki og niðurbrot þess
Höfundar Helena Marta Stefánsdóttir, Bjarni Diðrik Sigurðsson,
Brynhildur Bjarnadóttir, Edda S. Oddsdóttir og Jón S. Ólafsson
1. mynd: Kortið sýnir staðsetningu lækjanna (bláar línur)
sem rannsakaðir voru á Fljótsdalshéraði. Þrenns konar
lækir voru innan rannsóknarinnar: Skóglausir lækir (AS1-
AS3), lækir í birkiskógum og kjarri neðan 400 m h.y.s.
(AB1-AB3) og lækir í gróðursettum barrskógum neðan
200 m h.y.s. (AG1-AG3). Grái flöturinn sem umlykur
lækina sýnir vatnasvið viðkomandi lækja.