Skógræktarritið - 15.10.2010, Blaðsíða 65

Skógræktarritið - 15.10.2010, Blaðsíða 65
SKÓGRÆKTARRITIÐ 201064 Í síðasta Skógræktarriti var fjallað um þær belg- jurtir sem hægt er að nota sem hjálparplöntur í skógrækt. Hér verður fjallað um plöntunæringarefni og hvernig líklegt er að auka megi vöxt trjáplantna með áburðargjöf og/eða með því að auka almennt á frjósemi svæðis með belgjurtaútplöntun. Leiðbein- ingarnar eru miðaðar við ræktun á lítt grónu landi, enda er reynsla höfundar að mestu takmörkuð við skógrækt á slíku landi. Með áburðargjöf er verið að koma plöntunæringarefnum í jörð þar sem þau verða aðgengileg trjáplöntum. Flest ræktunarfólk er vant að rækta í eigin nytjagarði og bændur eru vanir heyskap. Í báðum tilfellum er hluti uppskerunnar fjarlægður og þar með hluti plöntunæringarefnanna. Fyrir það tap þarf að bæta. Í skógrækt gegnir öðru máli. Þar er mjög langt í að plöntunæringarefnin verði fjarlægð. Í skógrækt er sjálfsagt að taka land til ræktunar sem ekki er þegar nýtt í aðra ræktun. Nóg er af slíku landi. Oftast er um að ræða land þar sem lítill sem enginn gróður er fyrir. Slíkt land er hins vegar mjög snautt af plöntunæringarefnum. Þessum efnum þarf að koma til plantnanna. Í skógræktarstarfi er hagkvæmt að gefa áburðarefnin í sem fæstum að- gerðum, helst með einni aðgerð í upphafi ræktunar. Í þeim tilfellum þarf að gefa eins stóra skammta og ræktunin þolir. Þá væri líka gott að stuðla að fram- vindu sem leiðir til aukinnar frjósemi. Þar skiptir ræktun níturbindandi tegunda miklu máli. Hráefni til plöntuvaxtar Plöntur er frumbjarga lífverur. Það þýðir að þær mynda öll lífrænu efnin sín sjálfar með ljóstillífun. Nokkur hráefni til vaxtar verða þær að ná í úr jörð. Þau mikilvægustu í skógrækt eru nítur, fosfór og brennisteinn því að alltaf er skortur á þessum efnum í íslenskri jörð. Öll þessi efni eru notuð í myndun byggingarefna og hvata. Önnur efni skipta minna máli og því verður eftirfarandi umfjöllun nærri ein- skorðuð við þau fyrst upptöldu. Nítur (N). Af þeim efnum sem plöntur taka úr jörð er upptaka níturs einna mest. Þegar nítur er gefið fæst alltaf einhver uppskeruauki. Nóg er af nítri í andrúmsloftinu en í þannig formi að plöntur geta ekki nýtt sér það. Með því að stuðla að dreifingu og vexti níturbindandi plantna má auðveldlega bæta úr níturskorti. Með níturbindingu er nítur úr andrúms- lofti í fyrstu bundið í lífrænu efni og skilar sér síðan í jarðveg að hluta og með tíð og tíma vex níturforði jarðvegs. Um það er fjallað síðar í greininni. Áður en lengra er haldið er gott að líta á hringrás umræddra efna í náttúrunni. Hringrás níturs í líf- ríkinu er svona í grófum dráttum. Plöntunæringarefni, belgjurtir og vöxtur trjáplantna Nokkrar leiðbeiningar um ræktunaraðgerðir Höfundur Jón Guðmundsson Plöntur taka upp nítur á tvenns konar formi: sem amm- óníum eða nítrat.Út frá því sjónarmiði eru þessi efni jafn- góð plöntunæringarefni. Samt sem áður er mikill munur á ammóníum og nítrati. Ammóníum er fæða fyrir örverur en nítrat ekki. Ammóníum helst kyrrt í jarðvegi en nítrat skolast niður í grunnvatnið ef plöntur ná ekki að taka það upp. Þaðan tapast það endanlega úr jarðveginum þegar örverur melta það og breyta því í nítur andrúmsloftsins. Ammóníum er þannig betri áburður en nítrat því að það helst í jarðveginum en nítrat berst niður í dýpri lög. Þegar lífræn efni brotna niður losnar nítur sem ammóníum en ekki sem nítrat.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98

x

Skógræktarritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.