Skógræktarritið - 15.10.2010, Blaðsíða 67
SKÓGRÆKTARRITIÐ 201066
í kalksaltpétri (kalsíum nítrat, Ca(NO3)2). Lífríki í
góðu standi getur tekið við miklu nítri eða 100-200
kg/ha. Sjaldan er þó þörf á að gefa svo mikið, held-
ur gefa mest á þær plöntur sem geta vaxið hratt (t.d.
reyni, ösp, víði og sitkagreni). Grös eru yfirleitt fljót
að taka upp nítur og með níturgjöf vex hlutur þeirra
oftast mikið á kostnað annarra úthagaplantna svo
sem lyngtegunda og flestra smárra tvíkímblöðunga.
Níturgjöf breytir því gróðurlendinu í átt að graslendi
sem getur síðan gert útplöntun trjáa erfiðari en ella.
Þar að auki er of mikil níturgjöf sóun. Ef of mikið er
gefið tapast hluti efnisins af svæðinu með flutningi
niður í dýpri jarðlög eins og lýst er hér að framan.
Belgjurtir binda nítur andrúmsloftsins í ammóní-
um. Með því að flytja þær inn á svæðið má leggja
grunninn að varanlegri frjósemisaukningu. Með
hárri hlutdeild þeirra í undirgróðri trjánna verður
níturáburðargjöf óþörf. Nánar verður fjallað um
belgjurtir hér á eftir.
Fosfóráburður
Fosfóráburð er sjálfsagt að bera á lítt gróin svæði.
Það sem gefið er mun vera áfram á svæðinu en ekki
tapast. Með fosfóráburðargjöf eykst oftast nær frjó-
semi jarðvegsins varanlega. Ekki þarf að gefa mikið,
20–40 kg fosfór á hektara er nægilegt og sjálfsagt
er að nýta sérhverja jarðvinnslu til að blanda fos-
fór saman við jarðveginn. Þetta má t.d. gera þegar
plantað er og setja þá áburðinn undir þá plöntu sem
er verið að gróðursetja. Alltaf má svo bera aftur á
yfirborðið. ,,Of mikil“ fosfórgjöf er ekki endilega
sóun. Efnið mun ekki fara neitt heldur nýtast síðar.
Brennisteinsáburður
Eina ráðið til að byggja upp brennisteinsforða er
að byggja upp lífrænan forða. Gefa má brennistein
sem áburð og sjálfsagt er að gera það sem oftast en
lítið í senn. Á hvern hektara er sem samsvarar 4-8
kg/ha af brennisteini nægjanlegt. Brennisteinn er í
mörgum gerðum af blönduðum áburði og þægilegt
að nota hann til að bæta úr brennisteinsskorti sam-
hliða öðrum áburðarefnum.
Lífrænn áburður
Ofangreind áburðarefni eru áburðarsölt og nýtast
ekki, að ammóníum-jóninni undanskilinni, sem
orkugjafi fyrir örverur. En jörð er ekki frjósöm nema
í henni séu örverur. Örverur sjá um að hringrásin
eða veltan sé hröð og næringarefnin nýtist aftur og
aftur á sama svæði. Með áburðargjöf og árlegum
plöntuvexti vex frjósemi jarðarinnar og þar með
fjölgar örverunum. Einnig má flýta því ferli með því
að flytja lífræn efni inn á svæðið.
Slík efni, lífrænn áburður, svo sem húsdýraáburð-
ur eða molta, hafa þann kost umfram áburðarsöltin
að vera fæða fyrir örverur og smádýr. Úr slíkum
áburði losna plöntunæringarefni, svo sem brenni-
steinn og fosfór, smám saman. Þannig er þörf
plantnanna fullnægt. Með smádýrum berst fosfórinn
einnig um jarðveginn og nær þannig meiri dreifingu
en ef hann væri gefinn sem áburðarsalt. Rétt er þó
að hafa í huga að lífrænn áburður er í meginatriðum
ekkert öðruvísi en það lífræna efni sem myndast á
staðnum. Í mörgum tilfellum er kostnaðarminna að
mynda lífræna efnið á staðnum frekar en að flytja
það að. Ef aðgengi að lífrænum áburði er gott og
hægt er að flytja hann án of mikillar fyrirhafnar er
sjálfsagt að gera það.
Seinleystur áburður
Til er áburður sem kallast seinleystur áburður. Oft-
ast er um að ræða áburðarsölt sem eru húðuð með
hálfgegndræpri húð og út um hana streyma áburð-
arsöltin á löngum tíma eða efnasambönd sem leysast
hægar í vatni en áburðarsölt. Allt er þetta gert til
að draga úr hinum neikvæðu saltáhrifum. Þegar
áburðarsalt er notað er að einhverju leyti hægt að
draga úr saltáhrifum með því að setja áburðinn
í eina holu við hlið trjáplöntunnar. Það dregur úr
leysnihraðanum miðað við það að dreifa áburðinum
jafnt. Holudreifingin er einnig kostur ef hætta er á
of miklum grasvexti.
Með áburðargjöf má byggja upp frjósemi lands.
Öll plöntunæringarefni verða að vera tiltæk. Lykil-
efni sem vantar í rýrt land eru nítur, fosfór og
brennisteinn. Áburðarblöndur sem innihalda þessi
áburðarefni á því að nota, en ekki er þörf á að nota
blöndur þar sem kalí er í mesta magni svo sem í
áburðartegundinni Blákorni. Því efni er algjör óþarfi
að dreifa þegar uppskeran er ekki fjarlægð.
Notkun belgjurta til að auka frjósemi
Í 1. tbl. Skógræktarritsins árið 2009 var fjallað al-
mennt um belgjurtir og sjónunum beint að alaska-
lúpínu. Í síðasta riti var síðan fjallað um belg-
jurtategundir sem líklegt er að hægt sé að nýta sem
áburðargjafa í skógrækt. Þessar tegundir eru ekki
tiltækar hvar sem er en þó eru þær til það víða að