Skógræktarritið - 15.10.2010, Page 78

Skógræktarritið - 15.10.2010, Page 78
77SKÓGRÆKTARRITIÐ 2010 um, en Færeyingar lentu í Tyrkjaráni eins og við. Ólíkt því sem þó gerðist hjá okkur, þá komst ekkert af því fólki, sem var tekið, til baka aftur. Í Hvalba var ferðalöngunum svo sýnt svæði út frá grunnskóla bæjarins þar sem áhugi er á að koma upp útivistar- skógi og er sveitarstjórnin búin að kaupa landið. Hugmyndir eru um að nýta nálægðina við skólann og leyfa börnunum að setja niður plöntur, en það fyrirkomulag getur ræktað upp bæði trjágróður og skógræktarfólk! Eftir stutta skoðun á görðum í bænum var svo stefnan tekin til Þvereyrar, eftir að búið var að þakka Otto fyrir móttökurnar. Hádegisverður var snæddur við viðarlundinn í Trongisvági, en þar tóku á móti hópnum Kristin Michelsen, bæjarstjóri Þvereyrar og Ólavur Rasm- ussen verkefnisstjóri, ásamt Anitu Farstad, en sveitarfélagið Þvereyri bauð upp á hádegismatinn, hveitibrauð með rúllupylsu og skerpikjöti. Að snæð- ingi og tölum loknum var haldið í göngu um viðar- lundinn. Lundurinn er mikið notaður af íbúum og gestum (ferðamönnum), auk þess sem hann er mikil- vægur fyrir fuglalífið á svæðinu, en í honum má finna sjaldséða flækinga, t.d. glókoll, gransöngvara og glóbrysting, auk þess sem hegrar koma þar við því sem næst á hverju ári. Nokkur aldursdreifing er milli mismunandi hluta skógarins. Elstu tré eru frá því á 4. áratugnum, en þau yngstu gróðursett fyrir um tveimur árum. Um svæðið rennur á og sáu ferða- langarnir lax þar á svamli. Kom fararstjórinn reynd- ar höndum á hann, en þó ekki það fast að næðist að draga hann að landi. Búið var að útbúa tjörn við yngsta hluta skógarins, sem mun nýtast fuglunum vel í framtíðinni og auka á fjölbreytileika skógar- ins. Til fyrirmyndar er líka að þegar var búið að setja upp bekki við tjörnina, þótt trén í kring væru ekki enn orðin mjög hávaxin. Skógrækt er reyndar óvenju öflug í sveitarfélaginu, þar sem náðst hefur gott samstarf milli sveitarstjórnar og skógræktarinn- ar og hefur sveitarfélagið verið að kaupa upp land á svæðinu til að gróðursetja í. Að gönguferð lokinni beið ný og betri rúta hópsins og var stefnan tekin á bæinn Sumba, sem er syðsti bær í Færeyjum. Var ekin gamla leiðin til Sumba (nýja leiðin er mun styttri og um jarðgöng), sem var Við viðarlundinn í Trongisvági sést vel munur á gróðurfari innan og utan girðingar. Innan girðingar nær lyng og kjarr sér á strik og grasið er hávaxið, en utan girðingar er gras snöggt vegna beitar og gróðurþekjan rofin. Mynd: BJ

x

Skógræktarritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.