Skógræktarritið - 15.10.2010, Page 82
81SKÓGRÆKTARRITIÐ 2010
Lokaorð
Þegar fyrstu fregnir bárust af því að fyrirhuguð
væri skógræktarferð til Færeyja var ekki laust við
að margir hváðu, enda Færeyjar verið þekktar fyrir
flest annað en skóga. „Eru einhver tré í Færeyjum?“
var spurning sem var þó nokkuð oft borin upp fyrir
ferð og „Sáuð þið TRÉÐ í Færeyjum?“ spurning sem
kom upp eftir að heim var komið. Svarið við fyrri
spurningunni er auðvitað já, það eru tré í Færeyjum
og reyndar mun fleiri og stærri heldur en margir gera
sér í hugarlund og svarið við seinni spurningunni er
nei, við sáum TRÉN og skógana. Skógræktarferðir
undanfarinna ára hafa verið til landa ríkum af skógi,
sem hafa á stundum látið skóga hérlendis virka
heldur takmarkaða í samanburði og ekki laust við
að gætt hafi smá öfundar í garð þessa ríkidæmis. Um
Færeyjar gildir annað mál. Þar eru skógar og skóg-
rækt mun nær okkar aðstæðum og gefst þar raunar
tækifæri til að sjá skógrækt sem heyr að sumu leyti
erfiðari lífsbaráttu en skógrækt hér á landi. Samt
vaxa trén í Færeyjum áfram og vegur skógræktar þar
fer vaxandi. Og þrátt fyrir takmarkaðan fjölda og
smæð margra skógarreitanna var vel hægt að öfunda
Færeyinga ögn af viðarlundunum sínum.
Þakkir
Öllum þeim sem tóku á móti okkur og sinntu okkur
í Færeyjum eru færðar bestu þakkir. Einnig ferða-
félögunum, því ferðir verða ekki virkilega skemmti-
legar, nema skemmtilegt fólk sé með í för. Sérstakar
þakkir fær Tróndur Leivsson fyrir skipulagningu,
góða leiðsögn og almennt utanumhald í ferðinni,
sem og fyrir yfirlestur greinar.
Heimildir:
Føroya Fróðskaparfelag, 1989: Træplanting í Føroyum
í eina øld – A century of tree-planting in the Faroe
Islands. Sérrit nr. XIV af Fróðskaparriti, ritst. Andrias
Højgaard, Jóhannes Jóhansen og Søren Ødum. Føroya
Fróðskaparfelag,Tórshavn. Aðgengilegt sem PDF-skjal á
www.us.fo/Default.aspx?ID=10363
Hannon, Gina E. & Bradshaw, Richard H.W., 2000:
Impacts and Timing of the First Human Settlement on
Vegetation of the Faroe Islands. Quaternary Research
54: 404–413.
Leivur Hansen, 1976: Trjárækt í Færeyjum. Ársrit Skóg-
ræktarfélags Íslands 1976: 39–42.
Snorri Sigurðsson, 1980: Skóg- og trjárækt í Færeyjum.
Ársrit Skógræktarfélags Íslands 1980: 41–46.
Umhvørvisstovan. Heimasíða. Vefsíðuslóð: www.us.fo/
Default.aspx?AreaID=31. Skoðuð í sept. 2010.
VISITFAROEISLANDS, 2010. Án titils. Vefsíðuslóð:
www.visitfaroeislands.com. Skoðuð í sept. 2010.
VISITFAROEISLANDS, 2010: Welcome to the Faroe
Islands. Vefsíðuslóð: www.faroeislands.com. Skoðuð í
sept. 2010.
Wikimedia Foundation Inc., 2010: Faroe Islands. Vef-
síðuslóð: en.wikipedia.org/wiki/Faroe_Islands. Skoðuð í
sept. 2010.
Ýmsar munnlegar heimildir – Tróndur Leivsson, Hans
Hjalte Skaale, Tóri í Hoyvik og fleiri leiðsögumenn og
móttökuaðilar.
Íslensku ferðalangarnir allir saman komnir í Runavik. Mynd: BJ