Skógræktarritið - 15.05.2011, Page 6
SKÓGRÆKTARRITIÐ 20114
Við skógarlund Skógræktarfélags Mýrdælinga í
Deildarárgili í Mýrdal stendur fallegur minnisvarði.
Hann er þó ekki tengdur skóginum, heldur er hann
reistur til minningar um Deildarárskóla í Mýrdal.
Minnisvarðinn er í Deildarárgildi í landi Skamma-
dalshóls, þar sem skólinn stóð. Hann er gerður
úr stuðlabergssteinum sem áletruð plata er fest á.
Deildarárskóli var starfræktur frá 1904 til 1959
þegar hann var lagður niður á þessum stað og sam-
einaður skólanum á Ketilsstöðum. Skólahúsið gamla
var hins vegar flutt á Höfðabrekkuafrétt, þar sem
það er notað sem leitarmannaskáli.
Heiðursvarðinn var reistur af fyrrverandi nem-
endum sem söfnuðu fyrir gerð hans og voru um sex-
tíu gamlir nemendur skólans viðstaddir athöfnina
þegar varðinn var afhjúpaður árið 2005.
Skógurinn í Deildarárgili er ræktaður af Skóg-
ræktarfélagi Mýrdælinga.
Texti og myndir Jón Geir Pétursson
HEIÐURSVARÐAR Í SKÓG UM LANDS INS – VI. HLUTI
Minnisvarði um Deildarárskóla
Við skógarlund Skógræktarfélags Mýrdælinga í Deildarárgili
Ármúla 13a | Borgartúni 26 | 540 3200 | www.mp.is
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Viltu komast í kynni við Mosa?
Hafðu samband við þjónustuver MP banka í síma
540 3200, með tölvupósti á thjonusta@mp.is eða komdu
við í útibúum okkar í Ármúla 13a eða Borgartúni 26.
Skemmtileg saga um ævintýri Mosa eftir Úlf Eldjárn fylgir
með, en einnig er hægt að hlusta á hana í flutningi Arnar
Árnasonar á sérstakri heimasíðu Mosa, www.mp.is/mosi
.
Hann er af sjaldgæfri dýrategund sem kallast mosalingar. Þeir una sér best í mjúkum skógarbotni.
Honum finnst best að borða hnetur og lítil bleik ber. Þessi fallegi baukur er hannaður af íslenska
hönnunarfyrirtækinu Tulipop fyrir MP banka og hjálpar krökkum sem eru 12 ára og yngri að spara.
Mosi hjálpar krökkunum að safna á skemmtilegan hátt