Skógræktarritið - 15.05.2011, Side 95

Skógræktarritið - 15.05.2011, Side 95
93SKÓGRÆKTARRITIÐ 2011 Myndirnar sýna hin sterku einkenni reyniviðar. T.v. er reyniviðarskál og t.h. er hluti af borði úr reyniviði þar sem birki er rennt inn á milli. Takið eftir hve reyniviðurinn er mikið dekkri en birki og dökkbrúnar línur áberandi. Reyniviðarbikar á reyniviðarborði. Ungur reyniviður getur verið ljós með mjög dökkan kjarna, eins og sést í bikarnum. Borðið er úr gömlum reyniviði. Fáar viðartegundir eru eins harðar eftir þurrkun og reyniviður, en viðurinn er ásamt gullregni mesti „harðviður“ sem vex hér á landi. Viðurinn er mismunandi á lit, frá ljósu að dökku, árhringir eru frekar ógreinilegir og mikið er um brúnar rendur. Kjarnviður er mismikill milli trjáa og fylgir ekki alveg árhringjum. Reyniviður rýrnar nokkuð mikið við þurrkun og því er erfitt að þurrka heila trjáboli. Lítil náttúruleg fúavörn er í viðnum og reyniviðurinn endist sérlega illa í jarðvegi. Hann hentar hins vegar vel í rennsli og húsgögn því að sveigju- og höggþol er mikið. Reynir virðist vera vel aðlagaður íslenskum veður- farsaðstæðum. Hann þroskar t.d. alltaf fræ og laufg- ast og fellur laufblöð á eðlilegum tíma. Tegundin hefur verið lengi í landinu og vex um allt land. Umhverfið hefur áhrif á trjávið Það eru ekki aðeins viðartegundir sem skipta máli þegar viður er valinn til smíða. Umhverfisþættir hafa mikil áhrif á viðinn og við ýmis konar umhverfisáreiti myndast verðmætir bútar. Klofnir stofnar eru t.d. algengir í lauftrjám. Fyrir neðan skiptingu bolsins má ganga að því vísu að skrautlegar viðargerðir sé að finna. Kýli og óreglulegur vöxtur mynda oft óvenjulegar viðargerðir og áhugaverðar litabreytingar verða í viði við árás sveppa, skordýra og baktería. Norna- vendir myndast t.d. við sveppasýkingu. Þar myndast í sífellu á sama stað nýjar greinar sem á endanum vaxa saman og er viðurinn sem myndast veikur en skrautlegur. Þar sem mikil útvöxtur er fyrir neðan greinar en dæld fyrir ofan, verða árhringir sveigðir og óreglu- legir og mynda oft speglun. Með því að saga slíka búta úr bolnum þvert á radíus má varðveita og nýta speglunina í þeim hlut sem smíða á. Við markaðssetningu er gott að vísa til þess sér- stæða, þar sem það kann að gefa tekjur í framtíð- inni, ekki það sem er til alls staðar. Markaður fyrir innlenda framleiðslu úr trjáviði er líklega til, það þarf bara að finna hann, og ef svo er ekki þarf að búa hann til. Reynir hefur alla burði til að verða ,,íslenska tréð” í húsgagnaframleiðslu. Sá viður er hvergi á markaði að neinu ráði. Tegundin er auðræktanleg í frjóum jarðvegi og nóg er um bein og stórvaxin tré til að nota í kynbótum. Breytileiki í viðarlit er einnig kost- ur ef litið er til kynbótastarfs. Þeir sem rækta skóg mættu hafa þetta í huga.

x

Skógræktarritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.