Skógræktarritið - 15.05.2011, Side 21

Skógræktarritið - 15.05.2011, Side 21
19SKÓGRÆKTARRITIÐ 2011 Evrópulerki frá 1780 m h.y.s. í Celerina í Austur­Sviss er orðið að feikna stórum og beinvöxnum trjám í trjásafninu í Múlakoti. Gróðursett 1972 og vel yfir 15 m á hæð. aldar á vatni og áburði fram að skyggingu í ágúst. Í byrjun ágúst er hafður svartur dúkur yfir plöntunum frá 16 síðdegis til 8 næsta morgun til að framkalla vaxtarstopp. Dúklagningin er endurtekin daglega í um viku tíma. Byrjað er á skyggingunni um það bil sem 5 cm vantar upp á óskaða hæð plantnanna fyrir afhendingu. Þetta er gert til að örva endabrums- myndun og stöðva hæðarvöxt. Fyrir afhendingu næsta vor er búið að flokka plönturnar eftir hæð, svokölluð hæðarjöfnun, og sverleika. Of stórum plöntum, of litlum og lélegum er hent og kallast það frákast. Geymsluaðferðir eru ýmsar fyrsta veturinn fram að afhendingu, til dæmis utandyra í opnum eða byrgðum körmum, köldum plasthúsum eða í frystigeymslum. Það gefur augaleið, að með þessari hefðbundnu framleiðsluaðferð, sem notuð er á flest allar trjáteg- undir í skógarplöntuframleiðslu, verður engin flokk- un sem skilur á milli plantna, sem eru vel aðlagaðar að íslensku sumri og þeirra sem haga sér vitlaust, til dæmis ljúka vextinum of seint fyrir haustið. Ofangreind hæðarjöfnun, sverleikajöfnun og frá- kast hefur tæpast nokkur áhrif á hvernig plönturnar munu bregðast við náttúrulegri ljóslotu. Evrópulerki í lok annars vaxtasumars í 40 gata bökkum. Ein flokkun fór fram við flutning úr köldu húsi í karm í júní. Myndin er tekin 14. október 2010, en plönturnar voru orðnar alveg heiðgular upp í topp tveimur vikum seinna.

x

Skógræktarritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.