Skógræktarritið - 15.05.2011, Side 52
SKÓGRÆKTARRITIÐ 201150
efnið er styrkt af RANNÍS, Umhverfis- og orku-
rannsóknasjóði Orkuveitu Reykjavíkur (UOOR),
Reykjavíkurborg og Garðabæ.
Markmið verkefnisins er að meta með heildstæð-
um hætti virði þjónustu vistkerfa Heiðmerkur með
það að leiðarljósi að veita eigendum Heiðmerkur
öflugt tæki til ákvarðanatöku og markvissrar stjórn-
unar Heiðmerkur og annarra sambærilegra svæða. Í
þessum tilgangi var svæðinu skipt í sex afmarkaða
verkþætti, þar sem þeir þjónustuþættir sem falla
innan hvers verkþáttar voru metnir. Leitast var við
að nota þá verðmatsaðferð sem heppilegust er í
hverju tilviki og forðast eftir fremsta megni tvítaln-
ingu þar sem verðmæti mismunandi þjónustuþátta
geta mögulega skarast. Verkþættirnir voru:2
1. virði Heiðmerkur sem uppspretta neysluvatns,
2. virði Heiðmerkur sem fjölnota útivistarsvæði,
3. virði skógarins sem uppspretta kolefnisbind-
ingar, viðarnytja og annarra afurða skógarins,
4. virði Elliða- og Vífilsstaðavatns,
5. mikilvægi líffræðilegs og jarðfræðilegs fjöl-
breytileika,
6. virði óháð notkun, eða svokallað tilvistargildi.
Rétt er að taka það fram áður en lengra er haldið
að ekki er öllum þáttum verkefnisins lokið en þeim
mun ljúka á næstu mánuðum.
Uppspretta neysluvatns
Markmið þessa þáttar var að meta til verðs þá þjón-
ustu sem Heiðmörk veitir sem uppspretta neyslu-
vatns fyrir stóran hluta íslensku þjóðarinnar. Þó
svo að neysluvatn sé manninum lífsnauðsynlegt og
flestir líti á það sem óendanlega verðmætt er það
samt þannig að á Íslandi er að finna umtalsverðan
fjölda svæða sem eru vel fallin til neysluvatnstöku.
Verðmæti neysluvatnsauðlindarinnar í Heiðmörk
felast því í raun og veru í þeim sparnaði sem hlýst
af því að þurfa ekki að sækja vatnið annars staðar.
Verðmæti neysluvatnsauðlindarinnar var því metið
með svokallaðri staðkvæmdaraðferð (replacement
cost method). Eftirfarandi skilyrði þurfa að vera
uppfyllt til að réttmæta megi notkun staðkvæmdar-
aðferðarinnar:3
1. staðkvæmdin þarf að vera jafn góð hvað
varðar gæði og magn þjónustu vistkerfisins
sem hún leysir af hólmi,
2. staðkvæmdin er ódýrasti valmöguleikinn
sem getur komið í staðinn fyrir þjónustu
vistkerfisins,
3. notendur eru reiðubúnir að greiða þann
kostnað sem hlýst ef þjónustu vistkerfisins
nýtur ekki lengur við.
Að teknu tilliti til ofangreindra skilyrða varð Engja-
dalskvísl fyrir valinu sem staðkvæmd fyrir neyslu-
vatnsauðlindina í Heiðmörk. Niðurstöður rann-
sóknarinnar sýna að verðmæti þeirrar þjónustu
sem Heiðmörk veitir sem uppspretta neysluvatns,
byggt á staðkvæmdaraðferð liggur á bilinu 2,8 til
3,2 milljarðar króna á verðlagi ársins 2009 4 og felst
það í þeim sparnaði sem hlýst af því að þurfa ekki
að sækja drykkjarvatn fyrir höfuðborgarsvæðið úr
Engjadalskvísl.
Virði útivistarsvæðisins
Markmið þessa verkþáttar er að meta til verðs þann
ábata sem notendur Heiðmerkur hljóta af útivist á
svæðinu. Heiðmörk býður upp á fjölbreytta mögu-
leika til útivistariðkunar allan ársins hring og sem
dæmi um slíka frístundaiðkun má nefna göngur og
hlaup, veiðar, hjólreiðar, hestamennsku, náttúru-
skoðun, skíðagöngu, berja- og sveppatínslu auk
þess sem svæðið er ákaflega vinsælt á meðal höfuð-
borgarbúa til bíltúra.
Ábati notenda, eða þau verðmæti sem hljótast
af beinni notkun svæðisins til útivistar, er metinn
með ferðakostnaðaraðferð. Ferðakostnaðarað-
ferðin grundvallast á því að litið er á ferðakostnað
notenda sem lágmarksgreiðsluvilja þeirra fyrir að-
gangi að útivistarsvæðinu. Notendur geta ekki með
neinu móti stundað útivist í Heiðmörk án þess að
ferðast þangað og eru því útivistin sjálf og ferðin
stuðningsvörur5. Meta má því eftirspurnina eftir
útivist í Heiðmörk með því að safna gögnum um
ferðavenjur mismunandi notendahópa og um allan
þann kostnað sem notendur þurfa að standa straum
af til þess að stunda útivistina. Þar með hægt að
meta þann velferðarábata sem hlýst af svæðinu sem
útivistarsvæði. Sjálft matið á eftirspurnarferlinum er
framkvæmt með talningarlíkönum sem taka mið af
því hvernig gögnunum var safnað, þ.e. hvort þeim
var safnað á staðnum á meðal notenda eða með til-
viljanakenndu úrtaki á meðal almennings.
Gögnum um frístundaiðkun í Heiðmörk var safnað
með þrenns konar hætti; á staðnum, með netkönnun