Skógræktarritið - 15.05.2011, Side 78
SKÓGRÆKTARRITIÐ 201176
drapi) til 13 (birki), sjá nánari lýsingu í grein Ægis
Þórs Þórssonar.12,14 Niðurstöðurnar koma fram hér í
meðfylgjandi töflu.
Eins og má sjá í töflunni getur planta með blend-
ingsútlit, með útlitsgildi [4–6], verið hvað sem er,
þ.e. fjalldrapi, birki eða skógviðarbróðir. Ein leið til
að aðgreina skógviðarbróður frá öðrum plöntum er
að tengja nafnið eingöngu við þrílitna kynblendinga.
Það vantar líka almennt heiti fyrir þrílitna birki og
þar gæti nafnið komið vel að notum.
Af hverju er útlitsbreytileikinn svona mikill?
Stutta skýringin er sú að það er mikið genaflæði á
milli birkis og fjalldrapa vegna kynblöndunar, þ.e.
kynblendingur myndast og víxlfrjóvgast við for-
eldrategundirnar og þannig hefur erfðaefni flust á
milli tegundanna. Þótt kynblendingur birkis og fjall-
drapa sé þrílitna planta er hann ekki alveg ófrjór,
þ.e. ekki allar kynfrumur eru gallaðar, þannig getur
hann víxlfrjóvgast við aðrar plöntur og þar af leið-
andi fer genaflæði af stað. Langt er síðan sýnt var
fram á þetta ferli með víxlunartilraunum.5 Í nátt-
úrunni eru þrílitna blendingar frekar algengir. Af
þeim birkiplöntum sem við höfum rannsakað voru
þeir að meðaltali 10% yfir allt land, en tíðnin virðist
vera breytileg eftir landsvæðum.12,14 Auk þess höfum
við fundið merki þess að tegundablöndun birkis og
fjalldrapa hefur átt sér stað frá byrjun Nútíma, eða
allt frá því að birkiskógar og skóglendi mynduðust
fyrst á Íslandi eftir síðustu ísöld.10 Auk þess hafa
sameindaerfðafræðilegar rannsóknir sýnt fram á að
genaflæði á milli birkis og fjalldrapa hefur átt sér
stað vegna kynblöndunar víða um land og það hefur
jafnvel gerst í langan tíma í sögu birkiskóga á Ís-
landi.13
Þakkir
Ægi Þór Þórssyni er kærlega þakkað fyrir framlag
hans til vísindalegrar þekkingar á erfðafræði íslenska
birkisins. Höfundur þessarar greinar vill þakka eftir-
farandi fyrir gott samstarf og samvinnu í gegnum
tíðina, fjær og nær: Þorsteini Tómassyni, Peter Ti-
gerstedt, Pat Heslop-Harison, Mark Atkinson, Di-
anne Howland, Elina Salmela, Aðalsteini Sigurgeirs-
syni, Þresti Eysteinssyni, Snæbirni Pálssyni, Martin
Lascoux, Johann Greilhuber, Margréti Hallsdóttur,
og síðast en ekki síst, Lilju Karlsdóttur.
Skógviðarbróðir – þrílitna planta við Hreðavatn.