Skógræktarritið - 15.05.2011, Side 23

Skógræktarritið - 15.05.2011, Side 23
21SKÓGRÆKTARRITIÐ 2011 Fallegustu og beinvöxnustu evrópulerkitrén í Holtsdalstilrauninni austur á Síðu, sem gróðursett var 1996–1998 er meðal annars af kvæmunum frá 1. Celerina (1750 m) í Sviss og 2. Törbel (2100 m). Þau virðast hafa vaxið upp hnökralaust alveg frá gróðursetningu og voru rúmlega þriggja metra há vorið 2010. samari í framleiðslu, en hvar ætli skurðpunkturinn í kostnaði liggi á milli hefðbundinna aðferða og nýrri, sé tekið tillit til affalla, endurgróðursetninga og grisjunarvinnu næstu 10–15 árin í kostnaðarút- reikningunum? Hefðbundin framleiðsluaðferð er mjög góð fyrir þær tegundir og kvæmi þeirra, sem vitað er að gefa af sér hátt hlutfall af vel aðlöguðum plöntum að okkar loftslagi, þrátt fyrir það tæknilega inn- grip sem skyggingaraðferðin er. Skyggingaraðferðin hjálpar til við að stýra vexti skógarplantna í átt að gefnum óskum um stærð plantna og sverleika stofna fyrir gróðursetningu. En skyggingaraðferðin er hreinlega til vansa hjá tegundum sem eru á mörkunum að hegða sér rétt við íslenska ljóslotu. Evrópulerkikvæmið kennt við Sandvika í Noregi á merki­ lega mörg bein og falleg tré í Holtsdal. Hafrænt loftslag ríkir í Sandvika á vesturströnd Noregs. Getum við stytt okkur leið og sótt betur aðlöguð kvæmi þangað af annarri kynslóð, talið frá upprunalegum heimkynnum í Ölpunum, með millistoppi í Skotlandi?

x

Skógræktarritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.